Vikan - 15.01.1981, Síða 21
Smásagan
konu sinni, henni frú Guðrúnu
Brands, mig að gjöf. Ég man
enn hve innilega hún kyssti
mann sinn fyrir mig.
Mikið sem litlu dóttur þeirra,
Betu, langaði til að fá mig. Það
var varla að madame Jónsson
tímdi því.
L SL<
f.v » *>
— þara aðeins. Mér var valinn
staður í kistunni með spari-
peysufötunum.
Ég var ætíð ómissandi þegar
þau hjónin þurftu að vera við
jarðarför. Þegar Páll Jónsson
var í landi og sagði við konu
sína: ,,Við verðum að fylgja á
morgun, Gunna mín,” vissi ég
að húsmóðir mín tæki mig og
skartaði með við jarðarför.
Hún húsmóðir mín þekkti svo
mikið af dánu fólki.
Mér þótti skemmtilegra við
jarðarfarir en í gestaboðum.
Við jarðarfarir hitti ég mörg,
mörg sjöl, en ég verð að segja
að þessi íslensku ullarsjöl hafa
allt of stutt kögur og allt of
gróft fyrir minn smekk.
Ég sá hvernig hinar konurnar
horfðu á mig, er ég féll yfir
herðar húsmóður minnar — án
þess að ég sé neitt að gorta. Það
er svo fjarri mér.
Það er dálitið leiðinlegt að
íslendingar kunna ekki að
segja rétt „voile” (þeir segja
vojl, en það á að segja vú-all).
Mér sárnaði eða ég varð að
brosa að því, þegar frúrnar
spurðu hvort ég væri úr vojli,
ég sem er úr ekta pure silki
voile.
Þannig liðu árin hvert af
öðru, meðan mín ástkæra
húsmóðir lifði. Mér þótti
ákaflega leitt að vera svo ekki
við jarðarför húsmóður
minnar, frú Guðrúnar Brands,
þegar hún dó. En það varð
ekkert við því gert.
Dætur þeirra Guðrúnar og
Páls skiptu með sér arfinum er
þeim féll í skaut. Ég vissi að
undir niðri vildu allar systurnar
eiga mig. Það var af einskærri
hógværð að þær rifust ekki um
mig heldur sögðu hver við
aðra: ,,Vilt þú ekki sjalið
hennar mömmu?”
Ég kom í hlut Betu. Hún er
líka elst.
Hún Beta valdi mér stað á
gamla hægindastólnum, sem
var farinn að slitna. Hún vildi
auðvitað ekki hafa mig niðri í
kistu þar sem enginn gat notið
fegurðarminnar.
alltaf við skápsfélaga mína sem
jafningja. Lítillæti er aðals-
merki hinna göfuglyndu.
Ég verð nú að segja að ég var
fegið að Beta hefur ekki
mölkúlur í skápnum sínum.
Það er fjarri mér að tala illa um
mína látnu húsmóður, en
mölkúlulyktin þótti mér alltaf
heldur bagaleg í sparifatakistu
frú Guðrúnar Brands, blessuð
sé minning hennar.
Beta viðrar alltaf á vorin.
Ég ligg þá alltaf efst á svala-
handriðinu. Fingerðustu hlut-
irnir eru alltaf látnir efst. Lífið
er bara þannig.
Þið getið séð fyrir ykkur
kögrið mitt silfraða bylgjast i
golunni og sólina glitra í því
svo stirnir á. Beta viðrar alltaf í
sól.
Hún Gunna litla Betudóttir
kom út á svalir. Hún sem hafði
svo oft fitlað við kögrið mi'tt
sem barn, þegar ég var á gamla
stólnum í stofunni til fegurðar-
auka. Hún Gunna litla Betu-
dóttir var hreint ekki svo lítil
lengur. Hún var raunar orðin
stærðar stúlka, spengileg með
granna fingur, svona svipað og
madame de Bijou. Ég hafði
alltaf vonað að hún setti á stofn
parfumerie, svona svipað og
madame de Bijou. Þá gæti hún
haft mig á herðum sér þegar
fínustu kúnnarnir koma að
versla.
Beta var semsagt að viðra í
vorsól og andvara. Gunna kom
út á svalir og horfði á mig eins
og hana þyrsti í að njóta
fegurðar minnar, sem er raunar
ekki nýtt fyrir mér, þótt ég segi
sjálft frá. Þá, — ó, hvernig get
ég fengið mig til að segja
ykkur? Ég fæ enn kökk í
hálsinn við tilhugsunina. E. t.
v. er bara gott fyrir mig að
segja einhverjum frá því, þá
yrði mér sorglausari sefi: Hún
Gunna litla kallar inn til
mömmu sinnar: „Mamma, má
ég ekki eiga þessa gráu
sjaldruslu, sem var alltaf á ljóta
Ég er, ef satt skal segja,
augnayndi — án þess að ég sé
nokkuð að gorta. Beta virti
mig fyrir sér. Hún hefur
eflaust verið að velta því fyrir
sér hvort ég væri samboðið svo
gömlum stól. Ég huldi snjáð
bakið með þeim elegans sem
mér er í blóð borinn.
Beta þekkti ekkert dáið fólk,
held ég, því ég fór aldrei í jarð-
arför eftir þetta.
Þegar litla Gunna hennar
Betu skyldi fermast, átti að
vera veisla. Þau hjónin keyptu
nýtt sófasett á milljón. Þessum
grey gamla stól var þá fleygt á
haugana. Óæðri hlutir verða
víst að sætta sig við þau örlög.
Ég verð að segja að þetta var
allra viðkunnanlegasti stóll.
Ég var vandlega brotið
saman og lagt inn i skáp. Beta
hefur, eflaust ekki viljað láta
einhverja gesti, e.t.v. herða-
breiða karlmenn, leggjast upp
að mér og sjúska mig. Ég ræði
3. tbl. Vikan XI