Vikan


Vikan - 03.06.1982, Blaðsíða 19

Vikan - 03.06.1982, Blaðsíða 19
fara í rúmið ef ég ætti ekki líka að sofa í bílnum allan næsta dag. William fylgdi mér upp stigann og nam staðar við dyrnar að her- berginu mínu. „Þaö er sitthvað sem mig langar til þess aö tala við þig um. Gætum við. . .?” „Að sjálfsögðu.” Ég gekk á und- an honum inn í herbergiö og hann lokaði dyrunum hljóölega á eftir okkur. „Það er varöandi morgundag- inn,” sagði hann. „Ég er að hugsa um að fara með þig á slysstaðinn svo þú getir sjálf talað við lögregl- una.” „En hvers vegna það? Lögregl- an segir áreiðanlega ekkert annað við mig heldur en við þig og föður þinn. Þar verður aðeins sagt að maðurinn í bílnum hafi veriö Ross — en það var ekki rétt! ” Hann tók um axlirnar á mér og sneri mér að sér. „Það getur ekki hafa veriö nokkur annar, Kristy, og þess vegna vil ég að þú talir við lögregl- una. Það mun valda þér sársauka en er nauösynlegt þrátt fyrir það.” „Þú trúir engu vegna þess að þú vilt ekki trúa því,” hálfhrópaði ég upp yfir mig og var að því komin að fara að gráta. „Það hefði verið miklu betra fyrir mig að fara hingað ein. Hvers vegna þurftir þú endilega aö koma með?” „Þúveist þaðnú,”sagöihann. TÁ, ÉG VISSI ÞAÐ. Ég vissi það meira að segja áður en hann dró mig að sér og áður en ég fann varir hans á mínum. Þetta var nú bara smákoss, sagði ég hálfhátt og afsakandi við sjálfa mig þegar ég var aftur orð- in einsömul. Þetta var bara smá- koss, hugsaði ég þegar ég lá í rúm- inu, starði upp í loftið og gat ekki sofnað. En innst inni vissi ég að þetta var annaö og meira. En ég elskaði Ross, eða hvað? Stundum sér maður hlutina í mun réttara ljósi á nóttunni og nú sá ég Ross allt í einu í sinni réttu mynd. Hann var töfrandi en skeyt- ingarlaus og lék sér gjarnan að til- finningum manna eftir því sem hæfði honum sjálfum best. Eg hugsaði um allt það sem hann haföi haldið leyndu fyrir mér, um uppruna sinn, trúlofun hans og Alison. Hann heföi átt að vita að fyrr eða síðar kæmist ég að þessu og hann hefði líka átt að gera sér ljóst hve særandi það var fyrir mig að hann skyldi ekki sjálfur hafa sagt mér frá þessu. Hann hafði ekki reynt að setja sig í mín spor. Hvorki þá eöa nú. Hann heföi átt aö skilja hve óróleg og kvíðin ég hlautaðvera. Þessi mikla spenna varö nú til þess að ég fylltist reiöi — reiði í garð Ross, reiði viö sjálfa mig og William. Ég hafði aðeins þekkt hann í tvo stutta daga. Hvaöa rétt hafði hann til þess að smokra sér inn í líf mitt? Hvaða rétt hafði hann til þess að kyssa mig og það þannig að ég gleymdi öllu ööru á meðan? Gleymdi meira að segja manninum sem hafði gefið mér hringinn sem ég bar á fingrinum. 'C'' G VAR ■LLi ÉIRÐARLAHS og reis nú á fætur. Klukkan var kortér yfir eitt. Ég velti því fyrir Framhaldssaga mér hvort Susan væri sofandi og hvort ég ætti að þora að banka upp á hjá henni. Auðvitað svaf hún svefni hinna réttlátu. Ég opnaði gluggann og fann hvernig svalt næturloftið lék um heitar kinnarnar. Einhvers staðar heyrðist hundur ýlfra. Það hljóm- aði undarlega í næturkyrrðinni, næstum draugalega. Nóttina áður, á Waynewater, haföi ég líka heyrt í einmana hundi einhvers staðar útiímorgunskímunni. . . Ég hrökk við þegar ég heyröi bankað létt hjá mér. „Hver er þetta?” „William.” Ég opnaði hægt. Hann var í nátt- fötunum og í dökkbláum slopp ut- an yfir. „Ég gat ekki sofið,” sagði hann afsakandi. „Og ég sá að þaö var ljós inni hjá þér. Getum við ekki talað svolítið saman ? ’ ’ Ég dró náttkjólinn þéttar að mér og settist á stól sem stóð einn sér úti við gluggann, eins langt frá honum og ég gat komist. Hann gekk nokkur skref fram á gólfiö. „Ég hef verið að velta fyrir mér þessum svokölluðu bréfum frá tbl. Vikan 19
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.