Vikan


Vikan - 03.06.1982, Blaðsíða 22

Vikan - 03.06.1982, Blaðsíða 22
Fimleikar Þegar leikmaður horfir á hana Kristínu Gísla- dóttur á œfingu hjá félagi sínu, Gerplu, undrast hann ekki þó hún hafi hreppt gullið á al- þjóðlegu móti í Luxemborg árið ’81. Hún vann líka gull fyrir gólfœfingar á íslandsmeistaramót- inu í fyrra og svo mœtti lengi telja. En það var nú í ár sem hún fékk svo umbun fyrir stritið. Hún varð íslandsmeistari í fimleikum í febrúar síðastliðn- um. JSokkru seinna var hún kosin íþróttamaður mánaðarins af Dagblaðinu og Vísi. „Ég byrjaði að æfa fimleika þegar ég var 9 ára. Það var nú eiginlega fyrir tilviljun. Við vorum fjórar vinkon- urnar hér í götunni og ákváðum að fara allar saman í Gerplu. Við erum bara tvær eftir núna, ég og Áslaug, en hún varð númer 2 á íslandsmeistaramótinu,” segir Kristín og brosir hógvær yfir velgengni þeirra vinkvenn- anna. Það þarf ekki að vera hrein tilviljun að Kristínu hafi gengið svo vel í fimleikunum. Ef til vill liggur þetta í ætt- inni. ,,Ég veit það ekki. Systir mín, María Gísladóttir, var ballettdansari í Þýskalandi og dansar núna í Banda- ríkjunum. Þeir sem sáu Giselle í Þjóðleikhúsinu ekki alls fyrir löngu muna eflaust eftir Maríu, en hún dansaði hlutverk Giselle á f jórum sýningum. ,,Nú, og svo var afi minn, Guðjón Runólfsson, og systur hans í fimleikum þegar þau voru ung. En við erum fimm systkinin og það erum bara við tvær systurnar sem erum í fimleikum og ballett.” Eftir að hafa orðið vitni að svo góðum árangri hjá Kristínu er ekkert undarlegt þó aðstandendur Gerplu bindi miklar vonir við hana. Hún er skærasta stjarna þeirra Gerplumanna, sem hef- ur komið síðan Berglind Pétursdóttir vann það einstaka afrek að verða Islandsmeistari í 7 ár samfleytt. En hvernig fer maður að því að verða íslandsmeistari í fimleikum? „Auðvitað með því að æfa og æfa. En stund- um var þetta svolítið erfitt. Ég þarf að fara með strætó á æfingar og það tekur tíma. Svo höfðum við lengi engan þjálfara og urðum að æfa mikið sjálfar. Þá æptum við hver á aðra og reyndum að hvetja hver aðra. Það gat oft veriö erfitt að standa upp úr pásunum. Svo hjálpaði Berg- lind Pétursdóttir okkur mikið fyrir íslandsmeistaramót- ið. En núna erum við búin að fá pólskan þjálfara og hann er alveg frábær. Ég er í 9 bekk í Garðaskóla og auðvitað reyni ég að láta fimleikana ekki koma niður á náminu. En ég þarf oft að fá frí og gæti þetta varla nema af því að skólastjórinn og kennararnir eru mjög skilningsríkir. Við æfum 5 sinnum í viku, svona 2 til 3 tíma í einu, og alltaf um helgar. Ég stefni svo að því að fara í fjölbraut næsta vetur, á íþrótta- braut. Breyttist viðhorf fólks eftir að þú hrepptir titilinn? Nei, alls ekki. Vinir mínir eru bara ánægðir fyrir mína hönd, en ekkert hefur breyst, og ég æfi áfram á meðan ég næ einhverjum árangri. Auðvitað keppir maður að gull- inu næsta ár líka en svo verðum við bara að sjá til....” Fimleikadrottningin: „Liggur kannski í ættinni" ZZ Vikan zz. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.