Vikan - 03.06.1982, Blaðsíða 31
Umsjón: Þórey
Opnuplakat
►Jteve Strange er hinn litskrúöugi
forsprakki hljómsveitarinnar
Visage og frumkvööull nýrómantík-
urinnar í Bretlandi. Ferill hans á
því sviöi hófst þegar hann var
dyravörður í klúbbnum Blitz.
Klúbbinn sótti hiö skrautlegasta
liö, fólk sem var þreytt á svart-
hvítri ásjónu pönksins en vildi
samt ekki líta út eins og því heföi
veriö kippt út úr sýningarglugga
tískuverslunar við Oxford Street
eöa Kensington High. Þeir
klæddust silki og flaueli en ekki á
neinn hefðbundinn hátt. Máluö
andlit og lakkaöar neglur, jafnt á
karlmönnum sem kvenmönnum,
voru algeng sjón í og í námunda
við klúbbinn og hár gestanna var
sjaldnast brúnt, svart, rautt eða
skolleitt heldur í öllum regnbog-
ans litum. Steve Strange stóö í
dyrunum og ákvaö hver mætti
koma inn og hver ekki. Mick
Jagger var meinuö innganga en
hins vegar fengu ýmsir óbreyttir
inngöngu — ef þeir uppfylltu
skilyröin um útlitið. Meðal þeirra
voru hljóðfæraleikararnir sem
Steve fékk til liðs við sig undir
heitinu Visage.
Steve hefur nýveriö opnaö klúbb
viö The Gardens í Kensington-
hverfi Lundúna. Þar skemmta
trúbadúrar, þar er hægt aö tefla
og spila ýmis spil, á boðstólum
verður te og skonsur, kabarett
listamenn munu troða upp og í
bakgrunninum hljómar egifsk tón-
list og aö sjálfsögðu Steve sjálfur.
Steve Strange heitir réttu nafni
Steve Harrington. Hann er frá
htlu þorpi í Wales. Mamma hans
og pabbi slitu samvistum þegar
hann var sjö ára og í bernsku var
hann á stöðugum þvælingi milli
foreldra sinna. Pabbi hans var
mjög karlmannlegur í útliti og
vildi að strákur yröi eins. Hann
henti honum út í sundlaugina til
þess aö hann lærði að synda og
kenndi honum á sjóskíði. „Allt
saman var þetta gott og blessað en
þegar hann vildi að ég þættist vera
yngri bróöir hans svo við gætum
fariö saman að ná okkur í stelpur
var mér nóg boöið.” Steve var þá
aöeins ellefu ára. Faöirinn dó
þegar Steve var þrettán ára. Steve
segist alla tíö hafa átt bágt meö aö
þola hann og enn ekki geta fyrir-
gefiö honum. Eftir þetta var hann
alinn upp hjá móður sinni og
systur og segist hann vera mikill
mömmustrákur.
Þegar Steve var 16 ára fór hann
til Lundúna. Þar hitti hann
söngvara hljómsveitarinnar
Generation X, Billy ídol. Steve
var fær teiknari og Billy Idol fékk
Steve Strange
hann til að hanna auglýsingar og
miöa fyrir hljómsveitina. Þaöan
lá leiöin í Blitz og síðan í Visage,
sem ekki er hljómsveit í venju-
legum skilningi. Þrír hljóðfæra-
leikaranna eru úr llltravox, þeir
Billy Currie, Chris Cross og Midge
Ure og Rusty Egan, Dave
Formula og fleiri úr ýmsum
áttum. Visage er því varla til nema
á plötum. Félagarnir koma aldrei
fram á tónleikum en leggja hins
vegar mikið upp úr vönduöum
myndböndum. Ef sú stund kæmi
aö Visage léki einhvem tíma saman
á sviði yrði því sjónvarpaö beint út
um allan heim um gervihnött,
segir Steve. Hljómsveitin, með
Steve Strange í broddi fylkingar,
hefur notiö mikilla vinsælda víöa
um heim. Nýjasta platan hennar
heitir The Anvil og hefur henni
verið mjög vel tekiö af plötukaup-
endum.
Útlitið skiptir Steve Strange
mjög miklu. Hann skiptir oft um
hárgreiðslu, háralit og búninga.
Hann segist hafa byrjaö aö klæöa
sig „ööruvísi” þegar hann var tólf
ára og þá var það hans aðferð við
aö segja: Eg þoli ykkur ekki, ég
vil ekki Iítn út e>ns og þiö.
22. tbl. Vikan 31