Vikan - 03.06.1982, Síða 51
Draumar
Dvergvaxinn
njósnari
Kæri draumráðandi.
Mig dreymdi svo skrýtinn
draum að ég ætla að biðja þig
að ráða hann fyrir mig.
Ég man ekki hvar ég var en
mér fannst pabbi minn vera
búinn að ráða njósnara til að
njósna um mig. Jœja, ég og
strákur, sem við skulum kalla
X, göngum upp I skóla, þar
erum við alltaf á kvöldin. Þá
ræðst á mig strákur sem ég er
ofsalega hrifin af (Z) og hann
byrjar að kyssa mig og halda
utan um mig. Z er með stelpu
og hún var þarna og horfði á
okkur. Þegar Z hætti að kyssa
mig var hún farin, alla vega sá
ég hana ekki. Svo allt í einu
var ég orðin berfœtt og það var
fullt af glerbrotum svo ég varð
að tipla á tánum og svo fannst
mér ég vera á leiðinni út í
sjoppu og þá sá ég njósnarann
og hann var dvergur og ég
sagði við hann: Þú þarft ekkert
að njósna um mig núna, ég er
að fara út í sjoppu og er
berfœtt svo að ég fer varla
lengra. (Hann var með slöngur
í hendinni og tværstelpur
löbbuðu á eftir honum.) Svo
sagði hann: Það eru bara
þessar tvœr stelpur. Og mér
fannst hann meina að hann
ætlaði að hafa mök við þœr en
ekki fleiri. Ég vona að þú ráðir
drauminn fyrir mig.
Takkfyrir. p.K.
Þessi draumur getur merkt
tvennt, annars vegar að þú
lesir of mikið af hasarbók-
menntum eða þú horfir á
myndir með undarlegum
atvikum, hins vegar að þetta sé
tákndraumur.
Ráðning tákndraums er þessi:
Þú mátt gæta þess að fram-
kvæma ekkert vanhugsað á
næstunni og þarft að vera gætin
í sambandi við heilsuna því
kæruleysi getur valdið einhvers
konar veikindum (ekki alvar-
legum en ef til vill þrálátum og
jafnvel sársaukafullum). Þú ert
nokkuð ósjálfstæð og tekur
óhreinleika einhverra sem þú
þekkir mjög nærri þér og verður
mjög leið og jafnvel
örvæntingarfull þegar þú verður
vör við að einhver er að baknaga
þig. Margir telja dverga mikið
gæfutákn I draumi og það ætti
að l.-essa þig eitthvað, annars er
þessi draumur ekkert til að taka
hátíðlega því allt byggist þetta á
þinni eigin afstöðu og því
hvernig þú sjálf stendur þig og
engan háska er að finna þó las-
leiki geri vart við sig (ef þú ert
ekki gætin). Forðastu að láta
undan vanhugsuðum áætlunum
því þar er helst að ''ænta álags á
heilsu þína.
Grýlurnar í
draumi
Kæri draumráðandi!
Éyrirstuttu dreymdi
mig draum sem mér leikur for-
vitni á að fá ráðningu á. Mér
fannst ég og vinkona mín vera
að ganga á Laugaveginum.
Síðan sáum við skrýtið hús og
við gengum inn I húsið, þar
inni voru Ragnhildur Gísla-
dóttir og Grýlurnar. í húsinu
voru mörg herbergi. í hverju
herbergi var annaðhvort ein af
Grýlustelpunum eða einhverjir
ókunnir menn. Við vinkona
mín gáðum inn í öll herbergin
og I einu herberginu var Ragn-
hildur sjálf. Við fórum inn og
spjölluðum við Ragnhildi.
Ragnhildur bað okkur þá að
hjátpa sér og Grýlunum í
kvöld, því þær ætluðu að halda
ball. Við hjálpuðum þeim á
ballinu ef þær vantaði eitthvað.
Síðan vorum við á sama stað
um nóttina, ég, vinkona mín
og Grýlurnar. Svo daginn eftir
fórum við. Þá sáum við Helgu
Möller og litla stelpu með
henni, ég gæti trúað að það
væri dóttir hennar. Vinkona
mín sagði strax Hæ við Helgu
og síðan ég. Helga var í
hárauðum stuttum kjól. Litla
stelpan sem var með Helgu
sagði strax Hæ við okkur, en
Helga leit illilega til okkar. Við
ákváðum að elta Helgu inn I
búðina sem hún fór inn í. Litla
stelpan sem var með Helgu
talaði við okkur en Helga
hrakti okkur burt. Þá vaknaði
ég
Með fyrirfram þökkfyrir
ráðninguna. Ein forvitin,
Þessi draumur er fyrir ein-
hverjum erfiðleikum hjá þér, ef
til vill lasleika, en þú mátt vera
fegin að Helga hrakti ykkur
burtu því það er ótvírætt merki
um að þessir erfiðleikar verði
ekki alvarlegir og snerti þig
(ykkur vinkonurnar ef til vill
báðar) mjög lítið þegar til
kemur.
Skop
HÚS/y/EÐi s-
LAhJ
U 4-/?
Loksins erum við búin að finna draumahúsið. Nú þurfum við drauma-
lánið.
ÖÍLAþJiH TTGé-
Þú hefur gleymt aö ýta loftnetinu niður!
22. tbl. Vikan 51