Vikan - 03.02.1983, Page 41
Þegar blómín
taka völdín
Það fer víst ekki framhjá neinum að við lifum á tækni-
öld og allt er að verða annaðhvort alsjálfvirkt eða að
minnsta kosti hálfsjálfvirkt. Ef marka má auglýsingar
eru tii ofnar og kjötstykki sem taka höndum saman um að
sjá húsbúum fyrir dýrindisfæðu þótt þeir sjálfir komi
hvergi nærri. Það allra nýjasta eru blómin, sem að sögn
sjá um sig sjálf þegar mennskir íbúar fara í sumarleyfi
um lengri eða skemmri tíma. Kannski fer að líða að því
að mannveran verði nútímaþjóðfélagi jafnþýðingarmikil
og botnlangatotan er mannsbúknum — það þurfi sérfræð-
inga til að eygja breytingu við endanlegt brottnám.
Þeir eru ófáir sem hafa gaman
af blómum og sanka að sér kynstr-
um þeirra til ræktunar í gluggum,
á borðum, veggjum, gólfum og
öðrum þeim stöðum sem tylla má
blómum í húsnæðinu. Umönnun
blómanna veitir mannfólkinu
mikla ánægju og ekki spillir ef
þessilitlu fósturbörn launa með
því að vaxa og dafna í takt við von-
ir eigandans. Alls kyns bækur eru
gefnar út áhugamönnum til fróð-
leiks um þessi efni og verslanir á
þessu sviði rifna út. Það er víst
alls enginn leikur að umgangast
þessar elskur fremur en annað í
svo nánu sambýli því tilfinninga-
lífið er viðkvæmt. Blóm þurfa sína
næringu, vökvun og svo að sjálf-
sögðu félagsskap. Að tala við þau
er núna það sem gildir og þeim er
víst alveg sama þótt þar leiki þau
hlutverk fórnardýrsins — mótaðil-
inn haldi orðinu allan tímann!
En meira að segja hörðustu
ræktunarmenn þurfa sitt sumar-
leyfi og einnig að geta brugðið sér
frá heimilinu í lengri eða skemmri
tíma. Og þá vandast málið. Aö
vísu má biðja Jón eða Gunnu um
\ að halda elskunum við í vökvun,
en oft getur verið erfiðleikum
/ bundið að finna ættingja sem vill
fara einu sinni í viku til að vökva
þau nægjusömustu, tvisvar fyrir
þau þurftarmeiri og að ekki sé
minnst á drykkjusjúku jurtirnar
sem þurfa sitt næstum daglega.
En örvæntið ekki — tækniþjóðfé-
lagið hefur enn sem fyrr séð um
sína. I heildsölu Hallgríms Jóns-
sonar aö Reynimel 24, Reykjavík,
má finna blómavökvara — eins
konar hjálpartæki fyrir blóm sem
vilja sjálf sjá um vökvunina þegar
eigandinn bregður sér að heiman.
Tækið nefnist Blumat og er fullyrt
að það tryggi vatnsmagn sem full-
nægi rakaþörf plöntunnar. Annar
hlutinn er látinn í blómapottinn,
vei niður í moldina, en hinn end-
inn er holur plastþráður, sem
lagður er í ílát, fyllt með vatni.
Vatnsílátið þarf að velja eftir
tímalengdinni — þannig að fyrir
viku dugir vatnsglas en stærri flát
þarf fyrir lengri tímabil. Mælt er
með viðbótarvökvun einu sinni í
mánuði til þess að halda kerfinu í
reglulega góðu lagi. Hægt er að
gefa áburð ásama máta og honum
er þá bætt í vatnsflátið í hæfileg-
um mæli. Einnig er bent á að í
vatn sem stendur lengi getur safn-
ast slý sem lokar fyrir rennslið og
má koma í veg fyrir það með því
að nota undir vatnið flát sem eru
ónæm fyrir ljósi. Þannig má telja
að glær vatnsflát muni fremur
óheppileg til þessara nota.
Nokkrum Blumatvökvurum var
dreift í hendur blómavina á Vik-
unni og báru þeir saman bækur
sínar aö reynslu lokinni. Helstu
ókostir voru að fyrirtækið þótti
dýrt, einn Blumatvökvari kostar
95 krónur og ef gera má ráð fyrir
15 plöntum á heimili er þetta tals-
verður kostnaður. Ekki má
gleyma að blóm á einkaheimili
geta hæglega farið allvel upp fyrir
þá tölu. Einnig þótti okkur að
plöntum af minni gerðinni hætti til
að vökna um of, þannig að þetta
hentaði betur stærri blómum sem
þurfa þá jafnframt stærri potta.
Niðurstaðan var því að þetta gæti
reynst nokkuð heppileg lausn fyrir
fyrirtæki þar sem um stór blóma-
ker er að ræða, þá bæði til dag-
legra nota og líka ef lokað er um
hátíöir eða í sumarleyfum. Einnig
gæti reynst heppilegt að eiga
nokkra slíka fyrir drykkjusjúku
blómin á heimilinu til þess að
fækka ferðum hjálparkokkanna,
en gamla lagið myndi enn sem
fyrr reynast haldbest — Jón og
Gunna vökva á meðan Sigga og
Svenni fara að heiman og síðan öf-
ugt. Og þá er ekki ógáfulegt að
eiga saman nokkra Blumatvökv-
ara til að fækka feröum og þá hægt
að skiptast á um notkun þeirra,
því sjaldnast hendast allir vinir og
venslamenn í burtu samtímis.
L5
5. tbl. Víkan 41