Vikan


Vikan - 20.12.1984, Side 32

Vikan - 20.12.1984, Side 32
bygging. Andi gamals tíma og glæstra fyrirmanna svífur þarna yfir og gamlar slitrur úr VIKUNNI, lesn- ar á unglingsárunum, koma upp í kollinn, nánar tiltekið lýsingar úr þeirri frægu Angeliquesögu sem allir á táningsaldri lásu og fæstir létu síðan kvikmyndina fram hjá sér fara. Óraunverulegur blær einhvers sem ekki er eign hversdagsins í lífi almúgamannsins á norðurhjara. Fyrir innan stórt anddyri tekur á móti gestinum Erika Vignial sem er almannatengslafulltrúi fyrirtæksins í Evrópu. Hún býður í snæðing á næsta matsölustað við glæsigötuna og félagi okkar verður Sylvia Behdjet sem var einkaritari Helenu Viö 17. afhendingu Haute Couture gullfingurbjargar Helenu Rubinstein. jules Francois Crahay frá Lanvin, Claude Ury frá Helenu Rubinstein og madame Chirac, borgarstjórafrú í París. Rubinstein til dauðadags þeirrar síðarnefndu. Núna er einkaritarinn hættur störfum hjá fyrirtækinu en heldur alltaf tryggð við það, kemur í heimsókn þegar tími gefst. Erika Vignial er önnum kafin kona og aðspurð segir hún það geta verið erfitt að vera í slíku starfi. Hún er upphaflega svissnesk, á þó ítalska móður og er núna gift Frakka. Búsett í París. ,,Þetta hefur í för með sér tvöfalt líf því ég er líka eiginkona og móðir tveggja barna, á átján ára son og sextán ára dóttur. Það veldur oft árekstrum að uppfylla bæði hlut- verkin og það er óvenjulegt að lifa fj ölskyldulífi í slíku starfi. Því er auðveldara fyrir karlmenn að vera í því og konur verða oft að vera ein- hleypar til þess að halda kröftunum. Mikið samkvæmislíf fylgir þessu og ég verð að vera mikið á ferðinni. Ef vel á að vera þarf vinnudagurinn oft að ná yfir allan sólarhringinn. Karlmenn eru frjálsari því þeir taka ekki jafnmikið mið af fjölskyldulíf- inu. Hins vegar sækja konur fram og það er merkilegt að fylgjast með því að oft taka þær til dæmis bestu prófin í skólum. Starfinu fylgja líka mikil tengsl við fjölmiðla og fólk í diplómatastöðum, semja verður fyrirlestra og ræður og ekki má gleyma mikilvægi þess að halda sam- böndum við rétta aðila. ’ ’ Þetta reynast allt orð að sönnu. Þegar við reynum að komast úr dyr- unum ætlar síminn aldrei að þagna, inn koma aðilar frá fyrirtækinu og utan úr bæ í ýmsum erindagjörðum og sonurinn hefur samband: ,,Hvar er eiginlega hægt að ná sambandi við þig mamma?” Það síðasta er leyst með því að bjóða honum með í matinn. I anddyrinu mætum við einka- ritaranum fyrrverandi, hún er smá- vaxin og fjörleg og það er mikið að gera við að heilsa öllum sem hana þekkja í kring. ,,Við erum öll eins og ein stór fjöl- skylda og þetta er andi sem Helena sjálf skapaði í kringum sig og við reynum öll að halda.” Við erum komnar á veitingastað- inn innan stundar og Sylvia segir: ,,Ég var mjög heppin að fá starfið, hún réð mig sjálf og frá því fylgdi ég henni um allan heiminn. Það var árið ’53 og ég að leita mér að at- vinnu. Flaug reyndar ekki í hug þegar ég sá hana að þarna væri sjálf- ur forstjórinn á ferð. Helena Rubinstein var mikill vin- ur Givenchy og dáðist að Yves Saint Laurent. Var mjög hrifin af perlum og keypti þær í kílóum í Japan. Hún 3Z VíKan 4S. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.