Vikan - 20.12.1984, Qupperneq 35
Draumar
Draumaprins
í draumi
Hæ, kceri draumráðandi.
Eg er 13 ára og nokkrar vikur
eru síðan ég hætti með strák.
Eg er alveg búin að gleyma hon-
um og hef verið að spá í hina og
þessa en loks er ég fann hinn
heittelskaða draumaprins varþað
bara draumur.
Eg var á stað, svipuðum Eella-
helli, og svona 20 krakkar voru
þar. Við vorum að horfa á bíó
uppi á vegg. Eg sat framarlega en
hann sat aftast með sex vinum
sínum og við horfðumst í augu.
Ég sá að hann var alltaf að segja
þeim hvað ég væri sœt. Eg fór að
hugsa um kvöldið áður, þá höfð-
um við verið að kyssast og hann
hugsaði um það sama. Hann var
ekki íslenskur, hann var Ijós-
brúnn með kolsvart hár og vinir
hans líka. Eftir bíóið urðum við
ein samferða heim og við kysst-
umst einu sinni á leiðinni. Ég
man að þegar mig dreymdi þetta
fann ég ástina og hamingjuna
eins og þetta hefði gerst og ég var
hroðalega vonsvikin er ég vakn-
aði.
Með fyrirfram þökk.
Ein sem hefur draumaprins í
draumi.
Þessi draumur segir svo sem
ekki margt ef litið er á táknin ein
og sér en bendir hins vegar til að
þú eigir létt með að láta þig
dreyma og það vel. Svona indæl-
ir draumar eru áreiðanlega bæði
hollir og góðir og gera sitt til að
halda þér lífsglaðri og þar með
líklegri til að finna þann heitt-
elskaða, líka í vöku!
Barneignir
Kæri draumráðandi!
Eg œtla að biðja þig að ráða
fram úr þessum draumi fyrir
mig. Þessi draumur var mér
mjög minnisstæður þegar ég
vaknaði um morguninn. Þannig
var að ég var heima hjá vinkonu
minni og var að eiga barn sem
mamma hennar tók á móti. Eg
eignaðist litla telpu, mér þótti
óskaplega vænt um hana en samt
grét ég út af því að mér fannst ég
vera ofung.
Sama dag og ég átti hana
ætlaði ég með hana út að labba.
Hún var klædd íósköp venjuleg-
an galla. Svo klæddi ég hana í
gráa jogging-peysu með hettu,
síðan í aðra venjulega prjóna-
peysu og svo aftur í gráa jogging-
peysu og síðast íbleikan útigalla.
Ég fór með hana út í brúnum
barnavagni og labbaði upp
götuna sem ég var í og hitti þar
stelpu sem átti barn þegar hún
var 17 ára. Mér fannst hún vera
brjáluð yfir því hve hún var ung
þegar hún átti telpuna sína og
þess vegna brjáluðyfirþví hve ég
var ung og að eignast barn. Hún
hljóp á eftir mér niður götuna og
ætlaði að drepa telpuna mína.
Þegar ég var komin að húsinu,
sem ég fœddi barnið í, tók ég
eftir því að ég lét blása inn í
vagninn. Eg varð alveg brjáluð úr
hræðslu, hélt að barnið vœri
dáið. Hér er þessi draumur
búinn.
Svo er béma annar draumur
sem mig dreymdi á undan
þessum draumi. Hann ersvona:
Þannig var að ég var stödd á
brúsapalli (skammt frá heimili
mínu). Eg var þar með bam sem
mér fannst ég eiga og það var
telpa. Öll fötin sem hún var í
voru bleik. Allir óku fram hjá
mér og ég hélt telpunni svo fast
að það náði henni enginn. Og
svo vaknaði ég.
Eg grátbið þig að birta þetta
fyrir mig og það fljótlega.
Með fyrirfram þökk fyrir
birtinguna.
B/ess, bless.
Ein áhyggjufull.
Þessir draumar eru báðir
svipaðrar merkingar. Þeir benda
til þess að það séu miklar
sviptingar í sálarlífi þínu og þú
sért mjög ósjálfstæð og viðkvæm
fyrir skoðunum annarra. En
eitthvað sem gerist verður til þess
að þú verður að manna þig upp
og sýna mikið hugrekki og það
kemur sjálfri þér mest á óvart
hvað þú hefur mikið bein í
nefinu. Eitthvað óþægilegt og
eitthvað gott hendir þig á sama
tíma og þetta mun reynast þér
mjög þroskavænlegt tímabil og
þú munt verða mjög glöð út af
einhverju sem þér tekst vel og þú
færð talsvert hrós fyrir.
Oskum félagsmönnum okkar og landsmönnum öllum
gledilegra jóla og farsœls komandi árs.
Verslunarmannafélag
Starfsmannafélagid Sókn
Freyjugötu 27.
Símar 27966 og 25591.
Hafnarfjardar
Strandgötu 33, Hafnarfirði.
Sími 51197.
Landssamband ísl. verslunarmanna
Laugavegi 178
Sími 81660.
45. tbl. Vikan 35