Vikan


Vikan - 23.05.1985, Page 24

Vikan - 23.05.1985, Page 24
Heimaræktað krydd Nýjar kryddjurtir gefa matnum einstaklega ferskt og skemmtilegt bragð og þaö er lítið mál að rækta sumar kryddjurtir í pottum innan- húss. Tímían er meðal þeirra kryddjurta sem geta lifaö góðu lífi í gluggakistunni í eldhúsinu. Tímíanfræ fæst víða í blóma- verslunum og hjá Sölufélagi garð- yrkjumanna. Svipað má segja um graslauk, steinselju, sítrónu- melissu, mintu og meríam. Best er að sá fræjunum grunnt i meðalstóra potta eða aflanga potta, breiða síðan plast yfir pottinn og láta það vera þar til plöntumar eru famar að vaxa aðeins. Plastið er tekið af einu sinni á dag í um 15 mínútur til þess að ekki fúni. Ágætt ráð er að gegnvæta moldina með heitu vatni áður en fræjunum er sáö. Þegar plöntumar em famar að vaxa vel má klippa af þeim að vild og nota við matseldina. Athugið aö það þarf tvisvar til þrisvar sinnum meira af nýjum krydd- jurtum en þurrkuðum í matarrétti. Ræktunin gengur best í glugga þar sem sólar nýtur hluta úr degi. Vökvið í meðallagi, áburðargjöf er óþörf en úðið plöntumar öðm hver ju með vatni. Þegar komið er fram á haustið má ýmist klippa plöntumar niður og þurrka meö því að hengja upp greinar eða leggja á eldhúspappír í nokkra daga. Það á vel við um tímían, en það er ekki verra að frysta kryddjurtimar í smá- knippum, einkum steinselju, dill og graslauk. Þurrkuðu jurtimar em geymdar á svölum, dimmum staö í vel lokuðum Qátum. Ef sumarið verður sólríkt og hlýtt er ágætt aö setja pottana með kryddjurtunum út á skjól- góðan og sólríkan staö. Hvað þýðir „stonewashed"? Þegar maður kaupir sér galla- buxur velur maður snið og útlit, athugar síðan verðið og kíkir á miðana. Hvað þýðir það þegar á miöanum sténdur „stone- washed”? I beinni þýðingu segjum við að buxumar séu „malarþvegnar” og það er ekki fjarri lagi, buxur eða annað úr gallaefni er stundum þvegið með möl. Aðferðin hefur komist í tísku á undanfömum fimm árum. Það vom Japanir sem létu sér detta í hug aö nota hana tU aö gefa gallabuxum þetta vinsæla notaða, slitna útlit. Flíkin er fyrst saumuð og síðan þvegin. Mölina, sem notuð er, þekkjum við Islendingar vel, það er einfaldlega bætt vikri í þvotta- vélina. Vikursteinamir júöa bláa litinn úr buxunum og þegar bux- umar koma úr vélinni hafa þær þetta frábæra slitna útlit, rétt eins og maður hafi gengið í þeim í eitt ár án afláts. Rósir í gosdrykk Rósin er drottning blómanna og margir álíta hana fegursta og göfugasta blómið. En rósir lifa aðeins stutt. Eitt ágætt ráð, sem reynst hefur vel tU að lengja líftíma afskorinna rósa, er að setja þær í vasa með volgu 7-Up. Þær springa betur út og haldast lengur f rískar og faUegar. 24 Vikan 21. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.