Vikan - 23.05.1985, Qupperneq 24
Heimaræktað
krydd
Nýjar kryddjurtir gefa matnum
einstaklega ferskt og skemmtilegt
bragð og þaö er lítið mál að rækta
sumar kryddjurtir í pottum innan-
húss. Tímían er meðal þeirra
kryddjurta sem geta lifaö góðu lífi
í gluggakistunni í eldhúsinu.
Tímíanfræ fæst víða í blóma-
verslunum og hjá Sölufélagi garð-
yrkjumanna. Svipað má segja um
graslauk, steinselju, sítrónu-
melissu, mintu og meríam.
Best er að sá fræjunum grunnt i
meðalstóra potta eða aflanga
potta, breiða síðan plast yfir
pottinn og láta það vera þar til
plöntumar eru famar að vaxa
aðeins. Plastið er tekið af einu
sinni á dag í um 15 mínútur til þess
að ekki fúni. Ágætt ráð er að
gegnvæta moldina með heitu vatni
áður en fræjunum er sáö.
Þegar plöntumar em famar að
vaxa vel má klippa af þeim að vild
og nota við matseldina. Athugið aö
það þarf tvisvar til þrisvar
sinnum meira af nýjum krydd-
jurtum en þurrkuðum í matarrétti.
Ræktunin gengur best í glugga
þar sem sólar nýtur hluta úr degi.
Vökvið í meðallagi, áburðargjöf
er óþörf en úðið plöntumar öðm
hver ju með vatni.
Þegar komið er fram á haustið
má ýmist klippa plöntumar niður
og þurrka meö því að hengja upp
greinar eða leggja á eldhúspappír
í nokkra daga. Það á vel við um
tímían, en það er ekki verra að
frysta kryddjurtimar í smá-
knippum, einkum steinselju, dill
og graslauk.
Þurrkuðu jurtimar em
geymdar á svölum, dimmum staö
í vel lokuðum Qátum.
Ef sumarið verður sólríkt og
hlýtt er ágætt aö setja pottana
með kryddjurtunum út á skjól-
góðan og sólríkan staö.
Hvað þýðir
„stonewashed"?
Þegar maður kaupir sér galla-
buxur velur maður snið og útlit,
athugar síðan verðið og kíkir á
miðana. Hvað þýðir það þegar á
miöanum sténdur „stone-
washed”?
I beinni þýðingu segjum við að
buxumar séu „malarþvegnar” og
það er ekki fjarri lagi, buxur eða
annað úr gallaefni er stundum
þvegið með möl. Aðferðin hefur
komist í tísku á undanfömum
fimm árum. Það vom Japanir
sem létu sér detta í hug aö nota
hana tU aö gefa gallabuxum þetta
vinsæla notaða, slitna útlit.
Flíkin er fyrst saumuð og síðan
þvegin. Mölina, sem notuð er,
þekkjum við Islendingar vel, það
er einfaldlega bætt vikri í þvotta-
vélina. Vikursteinamir júöa bláa
litinn úr buxunum og þegar bux-
umar koma úr vélinni hafa þær
þetta frábæra slitna útlit, rétt eins
og maður hafi gengið í þeim í eitt
ár án afláts.
Rósir í gosdrykk
Rósin er drottning blómanna og
margir álíta hana fegursta og
göfugasta blómið. En rósir lifa
aðeins stutt. Eitt ágætt ráð, sem
reynst hefur vel tU að lengja
líftíma afskorinna rósa, er að
setja þær í vasa með volgu 7-Up.
Þær springa betur út og haldast
lengur f rískar og faUegar.
24 Vikan 21. tbl.