Vikan - 23.05.1985, Page 35
15
Draumar
Tvíburar með stein í gegnum nefið
Mig dreyndi draum sem
mér þætti gaman að fá
ráðningu á.
Mér fannst mamma vera
búin að eignast tvtbura,
tvær stelþur, að mig minn-
ir. Þær voru Ijósrauð-
hærðar, sætar en með stein
í gegnum nefið, grænan,
og mamma sagði að sig
hefði dreymt að hún ætti
að setja steina í gegnum
nefið á þeim. Allir voru
ofsaánægðir með bömin.
Þá hafði kona bróður mtns
líka eignast tvíbura, strák
og stelpu. Strákurinn leit
út eins og einn frændi okk-
arsem er dáinn, en varmeð
fitu aftan á hálsinum, en
stelpan var ósköp venjuleg.
Ég var ofsaánægð með
öll bömin, þó sérstaklega
bömin hennar mömmu. Þá
fannst mér við vera niðri í
bæ og vera að fá okkur að
borða, þá sagði mamma
mér að vinningur hefði
komið á happdrættismiða
sem við pabbi ættum
saman, upp á hundrað
þúsund, en ég sagði henni
að pabbi ætti miðann einn,
þvthann hefði borgað mið-
ann, og var fegin að hann
gæti þá eytt þeim á tvíbur-
ana.
Þá fannst mér ég vera að
horfa út um gluggann
heima og horfa yfir X. Þá
var risið þar piparkökuhús
sem gnæfðiyfir öll hin hús-
in og var verið að skreyta
það, mér fannst jólin vera
að koma.
Með fyrifram þökk,
X.M.
Ekki er gott að ráða í
þetta með steinana gegn-
um nefið en að öðru leyti
virðist draumurinn tákna
að þú eða fjölskylda þín
lendi í smáerfiðleikum.
Það er ef til vill ósamlyndi
innan fjölskyldunnar. Þó
tekst að ráða fram úr því og
virðist móðir þín koma við
sögu þar. Þá er happdrætt-
isvinningurinn líka merki
um erfiðleika sem þó verða
yfirstignir. Seinasti partur-
inn af draumnum bendir
svo til þess að eftir samráð í
fjölskyldunni komist allt í
samt lag aftur.
Koss og
mótþrói
Hæ, hæ, ágæti draum-
ráðandi!
Þannig er mál með vexti
að mig dreymdi draum og
vil ég vita ráðningu hans.
Eg var að vinna t salt-
fiski og var í pásu. D
vinkona mtn sat mér á
vinstri hönd og S (vinurtnn
minn) hægra megin við
mig. Svo segir hann: ,,Má
ég ekkikyssaþig?",,Nei,
sagði ég. Hann sagði þá:
,,Af hverju ekki?" ,,Sérðu
ekki að D og Ó eru
héma?" Og svo bara kyssti
hann mig. En ég barðist á
móti. Svo kom mamma að
vekja mig í vinnuna.
Ein að austan.
Eitt er hægt að fullyrða
um þennan draum: hann
snertir ekkert samband þitt
við vin þinn þótt hann sé
þér augljóslega hugleikinn.
Að dreyma myndarlegan
karlmann er venjulega
happamerki ógiftri stúlku,
það er að segja ef hann er
ókunnugur. Að dreyma vin
sinn er ekki sama lukkan.
Kossinn bendir til þess að
þér áskotnist eitthvert
óvænt happ. Vinnan virðist
koma þar við sögu en salt-
fiskurinn er bara góðs viti.
En þau viðbrögð þín við
kossinum að berjast á móti
benda til þess að þú sért að
bæla niður smávandamál.
Það virðist þó ætla að fá
farsælan endi.
Látum vera þótt sólardagarnir séu ekki
margir, Guðsteinn. En ertu viss um að þetta sé
besta aðferðin til að fá jafna sólbrúnku?
frhjtkT
Ég get sagt þér álit mitt á kjarnorkuvopnum á íslandi í
einu orði: KA-BAANNGGGG!
21. tbl. Vlkan 35