Vikan - 23.05.1985, Síða 38
VÍDEÓ VIKAN
Vídeó-Vikan er þáttur fyrir þá sem áhuga hafa á myndböndum og þeim kvikmyndum
sem unnt er að verða sér úti um hjá myndbandaleigum til afnota í heimahúsum.
Við leggjum áherslu á að ekki er ætlunin að gagnrýna
þætti og kvikmyndir heldur kynna þær sem á boðstólum eru
og við teljum óhætt að mæla með.
Ævintýri í
forboðna beltinu
Kvikmynd byggfl 6 sögu Stawart Harding og Jean Lafiaur.
Framlaiflandi: Don Carmody, John Dunning og Andra Unk.
Tónlist: Elmar Bamstein.
Leikstjóri: Lamont Johnson.
Aðallaikarar: Patar Strauss, Molly Ringwald,
Emia Hudson og Michael Ironsida.
Sýningartimi: 87 minútur.
Islenskur taxti.
Það er rétt að taka það fram í upp-
hafi að hér er um algjöra og nýstár-
lega „fantasíu” að ræða þótt auðvit-
að hafi sumar þeirra komist nærri
veruleikanum síðar meir. Má þar til
nefna hugmyndir Jules Veme og
fleiri skáldsagnahöfunda.
En hér erum við komin örlítið fram
i timann, eða allt til ársins 2136! —
Wolff (sem leikinn er af Peter
Strauss) svarar kalli frá stjómstöð
vegna þriggja stúlkna sem hafa
komist i hann krappan á plánetunni
Terrull.
Þar ræður ríkjum skepna ein
ófrýnileg, eins konar blanda vél-
mennis og mennsks manns, sem
nefnist „yfirhundur” í íslenskri þýð-
ingu með myndinni.
Að undangengnum ýmsum atrið-
um, sem byggjast á tæknibrellum og
haganlega smiðuðum geimfarar-
tækjum, sjáum við Wolff kominn á
plánetuna Terru þar sem hann tekur
til að berjast við hermenn „yfir-
hunds”.
Hann verður að lúta í lægra haldi
og stúlkurnar eru fluttar til staðar
sem er eins konar „sorphaugur” en
þar hefst „yfirhundur” við.
Wolff er staðráðinn í því að gefast
ekki upp enda eru góð verðlaun í
boði, mæld í geimaldareiningum! En
honum gengur illa að finna dvalar-
stað hinnar óhugnanlegu skepnu.
Þaö verður honum til happs að rek-
ast á unga stúlku, Niki, (sem leikin
er af Molly Ringvald).
Hún er öllum hnútum kunnug á
Terru 11 og þeim tekst að finna
„yfirhund”, sem er vel varinn, og
pyndingartæki hans verða þeim
næstum að fjörtjóni.
Leikarinn Peter Strauss er okkur
kunnur úr framhaldsþáttum sem
voru sýndir i íslenska sjónvarpinu
fyrir nokkrum árum.
Eins og áöur sagði er myndin ein
stór „fantasía” en hugmyndaflugið
ræður ríkjum og gerir hana á marg-
an hátt eftirsóknarveröa sem af-
þreyingarefni — til að sleppa frá
daglegu og vanabundnu amstri eina
kvöldstund.
Fyrirheit um morð
Framleiðendur: Ron Samuals og Gary Cróole.
Handrit: David E. Peckinpah og Stancil E.D. Johnson M.D.
Leikstjóm: Jerry Jameson.
Aflalleikarar: Lynda Carter, Stave Forrest,
Granville Van Dusen og Monte Markham.
islenskur texti.
Lagleg stúlka, Brianne O’Neil
(Lynda Carter), starfar á Kyles-
bamum, þar sem viðskiptavinimir
eru flestir af lægri stéttum varðandi
vínmenninguna. En þar koma einnig
góðir vinir Briar, Tom Hunter
(Steve Forrest), sem er orðinn
þekktur leikari, og Kyle Durham
(Monte Markham), sem á barinn, og
eru þeir þar tiðir gestir.
Justin Prices (Granville Van Dus-
en) kemur á barinn eitt kvöldið og
dregur strax að sér athygli Briar.
Þetta þróast upp i náinn kunnings-
skap. Eitt kvöldið, þegar Bri kemur
heim, verður hún vör við einhvem
undarlegan umgang umhverfis hús-
ið.
Justin lofar aö hjálpa henni við aö
varpa ljósi á þetta en fljótlega eftir
hið dularfulla atvik við húsið hennar
fær hún upphringingu sem skelfir
hana. Hún er frá manni sem segist
vera moröingi og kallar sig „rakar-
ann”, þvi hann klippi hárið af fómar-
lömbum sínum.
„Rakarinn” leggur gátu fyrir
Bri og lykilorð varðandi morö sem
hann þegar hefur framið. Bri tekur
hann alvarlega.
Hún hefst handa um að rannsaka
götumar í nágrenninu og kemst að
þeirri skelfilegu niðurstöðu aö „rak-
arinn” fylgist með hverju fótmáli
hennar.
Síöla kvölds hringir „rakarinn” í
Briákrána. Hún heyrir umgang og
léttir þegar hún sér Kyle .. . þar til
hún sér aö hann klæðir sig eins og
Tom Hunter ...
Þannig lýkur ekki myndinni heldur
er þetta aðeins upphafið á einstakri
spennumynd sem gæti vel sómt sér
við hlið mynda Alfreds Hitchcook
eða annarra meistara dularfullra
spennumynda seinni ára.
„Mesta spennumynd ársins,” var
sagt um Hotline þegar hún kom fyrst
til sýningar. — En þið dæmið sjálf,
eftir að hafa séð meö eigin aug-
um...
38 Vikan 21. tbl.