Vikan - 23.05.1985, Blaðsíða 41
Þýöandi: Anna
sitja getur hún alltaf staöiö upp!
sagði ég áhugalaus. Mér finnst
maður eigi ekki aö gera sér allt of
mikla rellu út af hjúunum sínum.
Þau fá bara sín ríflega
skömmtuðu laun og basta.
— Hún þyrfti aö komast út með
unga fólldnu á fríkvöldunum
sínum... út aö dansa.
— Hverjir heldurðu aö vilji
dansa við svona klossa! Ja,
afsakaöu bara aö ég segi það en
hún er bæði luraleg og svo klæðir
hún sig í kartöflupoka!
Nokkrum kvöldum síðar gekk
fatasýning inn í stofu hjá okkur.
— Jæja, ég verð að fara, frú!
sagði hún og fór.
Góða skemmtun! sagði
Maríanna.
Ég rauk upp úr sætinu.
— Hver í ósköpunum var þetta?
Soffía Lóren?
— Þetta var Magga! Ég lét hana
fá dálítið af kjólum af mér, sem ég
passaði ekki lengur í. . . hressti
upp á útlitið á henni með smáand-
litssnyrtingu, naglalakki og
svoleiðis.
— Magga? Það er af og frá!
Hárið...
— Ég gaf henni pening fyrir
lagningu. Hún er að fara út að
dansa.
Ég sat heldur súr á svipinn og
vildi láta Maríönnu skilja að
ég var á móti öllu þessu. Maður á
ekki að vera aö skipta sér of mikið
af hjúum sínum. Það er allt í lagi á
meðan þau sitja í hálfköldu her-
berginu sínu á kvöldin og láta sér
leiöast. Maður veit þó hvar maður
hefur þau þá. En ef maður byrjar
að gera tilraunir á manneskju-
legum grundvelli getur það fyrr
eða síðar leitt til einhvers í viðbót.
Það hefur maður séð í tímans rás
— afnám þrælahaldsins, þræla-
uppreisnin í Kentucky 1844,
kvennahreyfingin í kjölfar
frönsku byltingarinnar. Nei, þetta
var stórhættuleg tilraun sem
Maríanná var aö gera.
Næsta miðvikudag, þegar
Magga var í fríi um kvöldið,
þekkti ég hana enn ekki þegar hún
leið í gegnum stofuna okkar.
— Er að fara, frú! sagði hún og
var næstum stríðnisleg um leiö og
hún brosti.
— Skemmtu þér vel! sagði
Maríanna og kinkaði kolli ljúf í
fasi.
— Höfuðiö á henni... hatturinn.
. . þetta var hattur, var það ekki?
tautaði ég þegar hún var komin út.
— Henni fannst að fyrst hún
væri komin í almennilegan kjól þá
vantaði hana bara hatt og hanska.
. . svo ég fór með hana í hatta-
verslun. . . maður verður að vera
almennilegur ef maður vill halda
stúlkunum sínum. Allir aörir
bjóða þeim nú orðið herbergi með
litsjónvarpi, eigin eldunarkrók,
hljómflutningstækjum og að
minnsta kosti þrjú fríkvöld í viku.
— Og skómir og. . . taskan. . .
hefurðu líka verið að gefa henni
það?
Maríanna kinkaði kolli en leit
ekki í augun á mér.
— Þetta var taska úr krókódíla-
skinni, var það ekki?
Enn kinkaði hún kolli.
— Jú, en ég átti hana áður. Ég á
ekkert sem passar við hana
lengur. Svo mér fannst alveg eins
að hiún gæti fengið hana. Ég vil
ekki áð hún rykfalli.
Ég fór og fékk mér sæti argur á
svip. Það var ekki bara
peninganna vegna heldur for-
dæmisins sem ég var á móti
þessu. Ég var viss um aö þetta
myndi hefna sín. Það er nú alltaf
þannig í þessum heimi að fólk
tekur alla höndina ef maöur réttir
þvílitlafingur.
Það liðu nokkrar vikur og svo
kom Magga aftur stormandi inn í
stofu til okkar eitt miðvikudags-
kvöldið. I þetta skiptið var hún
komin í pels af Maríönnu.
— Nei, heyrðu mig nú! hrópaöi
ég upp þegar stelpan var komin út
fyrir dymar.
— Þoldirðu nú ekki að sjá gamla
pelsinn minn? Heyrðu mig nú, ég
er nú búin að fá nýjan og þaö mink
svo þú getur ekki kvartað. Þennan
nota ég aldrei.
— Ertu að segja mér að þú hafir
gefið henni þennan?
Maríanna kinkaði kolli.
Það var bara eitt fyrir mig að
gera í þessari stöðu. Ég stóð upp,
fór út og skellti á eftir mér.
Það liðu nokkrar vikur. Svo dag
nokkum, þegar ég kom heim úr
bænum, þá stóð Maríanna yfir
uppþvottinum og var eitthvað
undarleg á svipinn.
— Hvað gerðist? Einhver
dauður og grafinn? spurði ég.
— Það er Magga, kjökraði hún,
hún er að fara. Hún er búin að
segja upp. Og þú veist að það er
vonlaust að fá aðra í staöinn.
— Farin, hvemig þá?
Maríanna þurrkaði framan úr
sér.
— Hún er búin að fá vinnu á
snyrtistofu. Hún sagði að eftir að
hún varð svona vel klædd og fín þá
gæti hún bara ekki látið sjá sig
með rauðar og þrútnar uppþvotta-
hendur á böllunum!
E£
Stjömuspá
Hrúturinn 21. mars 20. apríl
Þú heföir gott af
dálítilli hreyfingu
núna. Þú ert að veröa
aút of værukær.
Vinnan veitir heldur
ekki holla hreyfingu
og hún er stundum
einhæf. Þú kemst í
samband við mann
sem veitir þér
stuöning í erfiðu
máli.
Krabbinn 22. júni - 23. júli
Skipuiagsgáfur þínar
munu nýtast tú hins
ýtrasta þessa viku og
þú munt fá betra
tækifæri til þess að
njóta þín en áður.
Reyndú að notfæra
þér þetta án þess þó
að ofleika. Þaö getúr
orðið tú hins verra ef
þú ofmetnast af þessu.
Vogin 24. sept. - 23. okt.
Nautið 21. april 21. mai
Vertu ekki of svart-
sýnn þótt þér virðist
aút komið í’strand.
Það er ekki aút
komiö undir
húsnæðisstjómar-
láninu.
Reyndu
aö styrkja samband
þitt við þina nánustu.
Ljónið 24. júli 24. ágúst
Þú lendir upp á kant
við nágranna þinn út
af málum sem
sannarlega eru ekki
þess virði aö kýta út
af þeim. Reyndu að
jafna þetta áður en
þetta eitrar áúa göt-
una. Og vertu svo
ekki of forvitinn um
annarra hagi.
Sporðdrekinn 24. okt. - 23. nóv.
Tvíburarnir 22. mai-21. júni
Þú verður óvænt var
við hlýhug Í þinn
garð frá ættingja sem
sannast sagna hefur
ekki sýnt þér mikinn
áhuga upp á síökast-
íð. Þér býðst nýtt
starf sení er áhuga-
vert. Hugsaðu þig
samt vel um.
Meyjan 24. ágúst 23. sept.
Reyndu að láta ekki
draga þig inn í ann-
arra mál. Þaö verður
reynt nú á næstunni
undir því yfirskini að
þú sért svo iífsreynd.
Það er blekking. Þú
ert ekkert veraldar-
vanari en gengur og
gerist. Og þakkaöu
bara forsjóninni.
Bogmaóurinn 24. nóv. - 21. des.
Þú átt kost á góðu
aúkástarfi ef þu kær-
ir þig um. Vertu
samt ekki of lengi að
ákveöa þig því nú úta
menn á aukavinnu'
eins og happdrættis-
vinning. Reyndu að
láta ekki fjárhags-
áhyggjur ná tökum á
þér.
Það er mála sannast
að þessi vika virðist
ætla aö veröa
túbreytingarútú hjá
þér. Það er ekki von
á neinum stór-
tíðindum og þú ættir
þá bara að nota
tímann og hafa það
eins huggulegt og
aöstæður leyfa.
Þú skalt ekki kaupa
miða í happdrætti
þótt þéim sé stöðugt
haldiö að þér því það
er ekkert úklegrá aö
þú vinnir á þá nú
fremur en endranær.
Annars eru líkur á að
þú farir í smáferða-
lag á næstunni.
Stemqenin 22. des. 20. ian.
Þaö er eins og það
hvíú hálfgerö þoka
yfir úfí þínu þessa
viku. Reýndu aö gera
eitthvaö sem nær að
lyfta drunganum.
Vertu vingjamleg viö
vinnufélaga þína,
kauptu handa þeim
vínarbrauð með kaff-
iriu og svoleiðis.
Vatnsberinn 21. jan. - 19. febr.
Þetta er sannkaúaðui
framkvæmdatími.
Reyndu aö virkja
fjölskylduna tú
sameiginlegra átaka.
Þá nýtast kraftámir
best. Faröu þér samt
ekki um of. Þáð
kemur dagur eftir
þennan dag.
Fiskarnir 20. febr. 20. mars
Þetta er óhappavika.
Það verðá sem betur
fer engin stórslys en
leiðindabarriingur.
Það er ekki fyrr en
undir lok vikunnar
sem fer eitthvað að
rætast úr þessu. En
þá verðá úka um-
skipti tú hins betra.
21. tbl. Vikan 41