Vikan - 23.05.1985, Side 42
Published by arrangement with Lennart Sane Agency, Karlshamn, Sweden. Originally published by Simon & Schuster.
_ érðu til, við
erum bæði óhamingju-
söm. Júdý vill ekkert
með mig hafa nema sem
vin og hún hefur ekki
einu sinni viljað tala við mig
i kvöld. Ég er svo einmana og
vansæll. Kata, ég þarfnast
þín,” sagði hann blátt
áfram. „Korndu upp í
herbergið til mín, elsku
Kata mín.”
Sér til mikillar furðu íhugaði
Kata þetta frekar. Hún þráði
hughreystandi hlýju karlmanns
eftir að hafa mátt þola sárs-
aukann við að vera vísað á bug.
,,Ég veit ekki,” svaraði hún.
„Hvernig eigum við að koma
því í kring?”
,,Vertu ein þeirra fyrstu sem
sjást fara inn í vagninn og
læðstu síðan út um bakdyrnar
þegar frökenin er enn í óðaönn
að telja inn að framan. Fáðu
Heiðnu til þess að hleypa þér;
inn.” Kata var svo örvingluð á
svipinn að Nick tók áhættuna
af því að þrýsta henni snöggv-
ast upp að sér.
,,Allt í lagi, ég skal reyna
þetta en ég get engu lofað. Það
er undir Heiðnu komið. ’ ’
ún fór aftur inn til
þess að ræða við Maxín hvort
þetta væri mögulegt. Maxín var
örlítið í kippnum af tveimur
kampavínsglösum. „Pierre vill
að ég verði líka eftir,” sagði
hún og það var greinilegt að
hana langaði til þess.
,,Ætlar hann með þig
þangað sem liðið heldur til? ”
,,Nei, hann er búinn að
panta herbergi uppi til örygg-
• > >
ís.
Þetta fannst Kötu merkilegt.
„Hamingjan góða, upp á von
og óvon. Það verður dýrt! ’ ’
, Ja, ég veit ekki hvers vegna
við ættum ekki að reyna?”
Stúlkurnar tvær litu á Heiðnu
sem lést vera prinsessa þar sem
hún dansaði um gólfið.
„Heldurðu að Heiðna vilji
verða eftir?
„Ég held hún þori það
ekki.” Þær sendu Heiðnu
merki yfir salinn og flýttu sér
aftur á snyrtinguna.
„Verða eftir?” hrópaði
Heiðna upp. „Hvernig ætti ég
að geta það? Það myndu allir
taka eftir því. Ég skal hleypa
ykkur inn klukkan fimm. En í
guðanna bænum verið ekki of
seinar.”
Klukkan eitt stigu Kata og
Maxín upp í vagninn. Þær voru
rétt á undan Heiðnu sem
reyndi að draga athyglina að sér
með því að suða og skammast
hástöfum um leið og hún lyfti
fína kjólnum sínu yflr óhrein
þrepin. Henni tókst næstum
því að slá frökenina í götuna
um leið og Kata og Maxín
sluppu út um dyrnar að aftan.
jL
ata hentist aftur inn
á Imperial hótelið og upp bak-
stigana. Hún hægði ekki á sér
fyrr en hún var komin upp í
sjöttu hæð þar sem Nick beið
hennar. Þau flýttu sér eftir
ganginum að vinnuhjúastigan-
um. Þegar þau voru komin í ör-
uggt skjól í herberginu hans
faðmaði hann hana að sér og
hneppti síðan frá tvídkápunni
hennar. Kata tyllti sér varlega á
rúmstokkinn og það brakaði í
rúminu. Nick dró höfuðið á
henni að brjósti sér og strauk
hárið á henni lengi þar til hann
fann að hún slakaði á. Þá fór
hann að kyssa á henni hárið, þá
kinnarnar en snerti ekki munn-
inn á henni. En Kata teygði sig
fram og dró varir hans niður að
sér og með einu andvarpi var
öll hugsun horfin. Hann kyssti
hana af öllum þeim innibyrgða
ákafa sem hann átti til í sínum
átján ára líkama og uppsöfn-
uðu angist og kvöl síðustu átta
mánaða. Kossinn virtist standa
yflr hálftíma. Hann gat ekki
hugsað sér að hætta, hann fann
hvernig hann var að drukkna í
ilminum frá henni og mjúkum
líkamanum sem var heitur
innan í taftinu sem varð sífellt
krumpaðra.
Shirley Conran
ELLEFTIHLUTI
Það sem á undan er gengið. . .
Árið 1963 gengst þrettán ára stúlkubam undir
ólöglega fóstureyðingu á subbulegri lækningastofu í
París. . . Fimmtán árum síðar er fjórum glæsilegum
heimskonum stefnt á fund kvikmyndastjömunnar
Lilíar. Þær Heiðna, Kata, Maxín og Júdý vita ekki að
þeim er stefnt saman og vita ekki hver tilgangur
heimsóknarinnar er. , Jæja, tæfumar ykkar. Hver
ykkar er móðir mín?” spyr Lilí. . . Árið 1948 era
Heiðna, Kata og Maxín á fínum heimavistarskóla í
Sviss. Tvær þær fyrmefndu fara í skemmrigöngu upp
í hlíð og verða til að bjarga lifí ungrar stúlku sem
hafði hrapað niður klettana. Það er júdý, 15 ára
stúlka frá Bandaríkjunum sem vinnur sem fram-
reiðslustúlka á kaffiteríu glæsihótels. Júdý verður
brátt vinkona stúlknanna og einnig kemur ungur
þjónn á hótelinu, Nick, við sögu. Hann verður góður
vinur allra stúlknanna en er bara hrifínn af einni
þeirra. Smám saman era fleiri ungir menn nefndir
til sögunnar og ásrin blómstrar í snjónum í svissneska
fjallabænum.
42 Vikan 21. tbl.