Vikan - 23.05.1985, Blaðsíða 45
hrindandi þar til hún brosti
sínu sérkennilega heillandi
breiða brosi.
a>.
túii
túlkumar hröðuðu
sér eftir snævi þöktum
götunum þar til þær komu að
gluggum með móðu. Það var
kaffihúsið Deux Magots og þær
settust niður við eina auða
borðið og pöntuðu sér heitt
sítrónupúns.
,,Merde, ég meina helvítis,
ég þekki engan,” vældi Maxín.
,,Það er öðruvísi á kvöldin. Eg
sá Simone de Beauvoir einu
sinni rífast viðJean-Paul Sartre.
Og einu sinni sá ég Juliette
Greco. Hún er alltaf í svartri
peysu og síðbuxum — finnst
þér það ekki einkennilegur
klæðnaður?”
, ,Hún þarf þá ekki að ákveða
sig á morgnana,” svaraði lág-
vaxinn mjósleginn og ljós-
hærður piltur í svartri peysu og
buxum. Hann settist í auða
sætið við hliðina á henni. Hann
var eins og innbrotsþjófur sem
tekið hefur ofan grímuna.
Hann var með örlítið bogið
rómverskt nef, breiðan þokka-
fullan munn og bendu af
hamplitu hári. „Hamingjan
sanna, en sa munur
andlitið á þér, Maxín . . . Ég
hefði bara þekkt á þér
baksvipinn. Og þú ert svo
grönn að ég gæti notað þig sem
fyrirsætu.” Hann vafði síðum
svörtum treflinum frá háls-
inum og pantaði þrjár croque-
monsieur, steiktar samlokur
með skinku og osti sem er
aðalfæða franskra stúdenta.
,,Hvað er að frétta af þér?”
spurði Maxín.
,,Ég hef búið hér á vinstri
bakkanum á Hotel de Londres í
meira en ár, fatahönnuður, en
enginn virðist hafa veitt því
athygli.”
„Hvenær varðst þú fata-
hönnuður?” spurði Júdý og
dembdi sér inn í samræðurnar.
„Hvernig losnaðir þú við her-
þjónustu?”
_,,Ég fékk berkla þegar ég var
fjónán ára og því vildi herinn
mig ekki. Pabbi varð auðvitað
ofsareiður en mamma varð
hrifin þegar ég gekk til liðs við
Jacques Fath því þá hætti ég að
krefjast þess að fá að sauma
kjóla á hana. Hún sagði að það
væri svo leiðinlegt þegar ég
væri að láta hana máta — ég
stakk hana með títuprjónum! ”
Hann flissaði.
„Hvernig fórstu að því að
stökkva beint úr skólanum inn
á vinnustofu heimsfrægs fata-
hönnuðar?” spurðijúdý._
,,I hreinskilni sagt fékk ég
vinnuna hjájacques Fath vegna
þess að mamma þekkti yfir-
sölukonuna. Þegar ég var ekki
að tína upp títuprjóna eyddi ég
hverri frístund í að teikna Fath
föt. Fór eins lítið leynt með það
og ég gat, skiljið þið — ég get
rátt fyrir að Guy
Saint Simon léti kæruleysislega
sem hann væri snillingur ný-
skriðinn úr egginu var leyndar-
málið að velgengni hans að frá-
töldum hæfileikum hans það
að hann hafði óbilandi áhuga á
tískunni og það hafði leitt til
þess að hann eyddi hverri stund
sem gafst með klæðskerunum
og sníðurunum hjá Jacques
Fath. Hann hafði lært að sníða
af þeirri lagni sem þróast hafði
í tímans rás og gengið frá
manni til manns með fordæm-
teiknað frábærlega vel.” Hann
blés reyk að Maxín..
„Þegar ég var búinn að vera
eitt ár hjá Fath var ég tekinn
sem teiknari á vinnustofuna og
þegar ég var búinn að vera tvö
ár varð ég _ aðstoðarmaður
hönnuð.ar. Ekki aðstoðarmaður
Fath sjálfs, skiljið þið, heldur
einnar af undirtyllunum.”
Hann hellti víni í glösin þeirra.
„Mitt starf fólst í því að útfæra
teikningar Fath fyrir vinnustof-
una, síðan velja úr niðurstöð-
unum þar til prufuflíkin var til-
búin, síðan fylgjast með hverj-
um rennilási.og tölu þar til.flík-
in væri tilbúin til fyrstu mátun-
ar_. _Að sjálfsögðu h.öfðum við
ekkert af viðskiptavinunum að
segja — sölukonurnar sáu__um
þá. . . Maxín, þú ættir ekki að
borða cro.que-monsieur svona
hratt ef.þú ætlar að halda þess-
um ótrúlegu nýju línum. ’ ’.
, ,En hvernig . lærðir. þú að
gera föt?” spurðijúdý ákveðin.
Hún viidi vita allt.
„Ö, ég veit það ekki, ég
lærði það bara.” Guy yppti
öxlum.
inu einu saman (klæðskerarnir
voru alltaf karlmenn, konurnar
voru saumakonur).
„En það er ekki hægt að
,,.byrja bara”,” mótmælti
Júdý.
, ,Ja, ég gerði nokkrar al-
mennilegar dragtir fyrir
mömmu og hún gekk í þeim.
Ég hélt að hún gerði það bara
til þess að gleðja mig en þá
vildu allar vinkonur hennar
kaupa sams konar dragtir. Svo
— voilal.— ég var kominn út í
þetta! En segið mér nú hvað
þið ætlið að gera sjálfar. ’ ’
„Ég ætla að verða innan-
hússarkitekt og læra í Lon-
don,” svaraði Maxín, „en ég
þori ekki að segja pabba það
svo ég setla að fá Hortense
frænku til þess að vera milli-
göngumaður.”
„Og ég ætla að fá vinnu
hérna í París sem túlkur,”
bættijúdý við og virtist miklu
öruggari með sig en hún í raun-
inni var. Hún vissi að sam-
keppnin um störfm í París var
næstum eins ofsaleg og um-
ferðin og að í Frakklandi urðu
menn áð vinna langan
vinnudag fyrir lág laun.
„Svo ætlar hún aftur
til New York, ” sagði
Maxín fjörlega, „til þess
að fá vinnu í einhverju
glæstu alþjóðafyrirtæki þar
sem hún getur notað
tungumálakunnáttuna og að
lokum gifst forstjóranum
auðvitað!”
„Megum við fá að sjá fötin
þín, Guy?” spurði Júdý og
vildi breyta um umræðuefni.
„Að sjálfsögðu. Þið giftist
kannski báðar hræðilegum
gömlum milljónamæringum
og. verðið bestu viðskiptavinir
mínir. En ekki í dag. Ég þarf að
hitta þann sem gerir hnappana
fyrir mig eftir tíu m.ínútur.
Hittið mig eftir vinnu á morg-
un, klukkan _sex á. Hotel de
Londres. Ég skal bjóða ykkur í
mat á Beaux Arts á eftir því .þá
er Valentínusarmessa og stúd-
entarnir verða með brjálað
partí. . . Hvað er að? Af hverju
emð þið svona. skrítnar á svip-
inn. . .? Hef ég sagt eitthvað
sem kemur illa vi_ð_ ykkur? ’ ’
„Nei, nei,” sagði Maxín í
hasti, „það er bara að við lent-
um í smávandræðum í skólan-
um í fyrra á Valentínusar-
messu. Við . . . ee. . . komum
seinna heim af balli en við átt-
um að gera. ”
„Jæja, þið þurfið ekki að
hafa áhyggjur af svoleiðis
barnaskap lengur,” sagði Guy,
veifaði eftir reikningnum og
tók ekki eftir óþægilegri þögn
stúlkanna.
ár
yrir utan skein dauf
vetrarsólin, vindinn hafði lægt
og það var ekki nærri eins kalt.
Stúlkurnar tvær reikuðu eftir
steinlögðum quais, steingarð-
inum við bakka Signu, fram
hjá fornbókasölunum og dökk-
grænu sölubúðunum.
„Er Guy fyrir stelpur?”
spurði Júdý þegar þær gengu
yfir Pont Royal. Það var eitt-
hvað í því hvernig hann hreyfði
hendurnar.
„Ég veit það ekki. Kannski
ekki, ég hef ekki hugmynd um
það. Hvort heldur sem er þá
máttu ekki falla fyrir honum.
Ég vil skilja við þig í höndun-
21. tbl. Vikan 45
AWVlWJW
%os«e %08«t