Vikan - 23.05.1985, Page 48
Pósturinn
AIRMAIL
PAR AVION
Búfræðinám
Mig langar að biðja þig
að svara nokkrum spurning-
um um búfræðinám.
1. Hvaða menntun þarf
maður að hafa og hvað þarf
maður að vera gamall?
2. Hvað lœrir maður
aöallega?
3. Fer allt námið fram í
skólanum ?
4. Er innifalið eitthvað um
hestamennsku ?
5. Getur maður tekið tamn-
ingapróf í búfrœðiskóla eða
þarf að gera það sér?
6. Hvað er námið langt og
hvað kostarþar?
Með fyrirfram þökk fyrir
birtinguna og von um skjót
svör.
Mœja.
Til þess aö komast í
búfræðinám þarf viðkomandi að
vera orðinn 16 ára og hafa lokið
grunnskólaprófi. Námið tekur tvo
vetur og fer fram í bændaskóla en
einnig á sveitabæ (3 mánuðir
verklegt). Nemendur geta fengið
að hafa hest og læra að temja og
eitthvað um hrossarækt.
Námsgreinamar eru ótalmarg-
ar, bæði ýmsar undirstöðu-
greinar, svo sem efnafræði, líf-
fræði, veðurfræði og erfðafræði,
svo eitthvað sé nefnt, svo og grein-
ar sem lúta að búfjárrækt, jarð-
rækt og öðru.
Á bændaskólunum er heimavist
og mötuneyti og erfitt að segja til
um kostnaðinn að svo stöddu. All-
ar upplýsingar um námið fást með
því að hafa beint samband við
skólana á Hvanneyri, sími 93-7000,
og Hólum, sími 95-5961.
Ekki komin
með nein
brjóst
Elsku Póstur.
Ég hef aldrei skrifað þér
áður en ég vona að þú birtir
þetta bréf. Ég er 15 ára (ný-
orðin) og mitt vandamál er
þannig að ég er ekki komin
með nein brjóst. Ég er eigin-
lega algjörlega flöt og hef á-
hyggjur afþessu. Ég er samt
alveg orðin þroskuð að öðru
leyti, búin að hafa blœðing-
ar í nokkur ár og svoleiðis.
Ég er að vísu mjög mjó og
löng en getur verið að þetta
eigi eftir að lagast? Er hœgt
að gera eitthvað til þess að
þetta lagist? Og þyrfti ég þá
að fara til lœknis? Ég vona
að þú getir sagt mér eitthvað
um hvað ég á að gera, elsku
Póstur.
Þín Bibba
Þú skalt ekki æðrast, brjóstin
gætu enn átt eftir að stækka á þér
og í öðru lagi er það nú svo meö
brjóst, eins og svo margt annað í
vaxtarlagi fólks, að þau eru með
ýmsu móti og margar konur hafa
mjög lítil brjóst. Háar og grannar
konur eru einmitt oft brjóstalitlar.
Sem dæmi mætti nefna ýmsar
frægar fyrirsætur og leikkonur en
hjá fyrirsætum er það einmitt oft
talinn kostur að hafa lítil brjóst.
En hver og einn verður að taka því
hvemig hann er skapaður og
sjaldnast er hægt að gera nokkuð
tU að breyta því. Það er að vísu
hægt að sprauta efni inn í brjóstin
til þess að stækka þau en það er
dýr læknisaðgerð sem hefur ýmis-
legt í för með sér. Ef þér líður afar
illa út af þessu er þó rétt að benda
þér á að tala viö lækni. Annars
skaltu frekar reyna aö sætta þig
við vaxtarlagið og klæða þig í
samræmi við það. Föt í
„herralegum” stíl, stórir jakkar
með axlapúðum, skyrtur og
frakkar, eins og mjög eru í tísku
um þessar mundir, klæða stúlkur
og konur með þitt vaxtarlag mjög
vel.
Vinnur
íbíói
um helgar. .
Kœri Póstur.
Ég er að deyja ... og ég
veit ekki hvað ég á að gera.
Það er nefnilega þannig að
ég er að verða 18 ára og ég
hef aldrei verið með stúlku
áður. Oft hef ég orðið
skotinn en aldrei eins og í
þessu tilfelli sem ég œtla að
segja þér frá hér:
Þannig er að ég var að
vinna í bæjarvinnunni í
fyrrasumar. í okkar hópi
var ein stúlka sem blindaði
mig algjörlega: Ijósa hárið,
brúna, mjúka hörundið (ég í-
mynda mér að hún hafi
mjúkt hörund en ég het
aldrei snert hana neittþann-
ig) og allt annað í fari henn-
ar œtlaði að trylla mig.
En ég er voða feiminn að
eðlisfari og ég þorði varla að
yrða á hana. Póstur, þú
verður að hjálpa mér. Ég fer
stundum í bíó og ég veit (ég
hef séð hana) að hún vinnur í
bíói um helgar . . . Vœri
soldið kjánalegt að fara
þangað og biðja til dœmis
um einn rauðan Opal, einn
bláan og einn grænan (til að
hún veiti mér athygli) og
bjóða henni þá á El
Sombrero (það er minn
uppáhaldsstaður), eða vœri
það of gamaldags ?
Ég sé engin önnur úrrœði
og því ákvað ég að ráðgast
við þig. Efþú hefur eitthvert
betra ráð þá segðu mér það
hér og nú því ég er að ör-
vinglast. Og segðu mér ekki
að það séu fleiri fiskar í
sjónum.
H.
P.S. Ég hef skrifað þér áður
en aldrei fengið svar. Þú
verður að hjálpa mér.
Það er ekki um annað að ræða
en manna sig upp, drengur. Ein-
hvers staðar segir: Sveltur sitj-
andi kráka en fljúgandi fær. Það
þýðir ekkert annað en hrista af sér
feimnina. Ef þú hefur unnið með
stúlkunni í fyrrasumar ættir þú að
geta talað við hana án þess að
þurfa að kaupa alla þessa Ópal-
pakka (það er þó ekki slæm hug-
mynd). Margt kvenfólk kann
einkar vel að meta dálítið gamal-
dags karlmenn og það hefur alltaf
þótt höfðinglegt að bjóða út að
borða. En fyrst og fremst verður
þú að losa þig við feimnina.
Feimni er viss tegund af hugleysi
og það er alveg hægt að yfirvinna
hana ef viljinn er fyrir hendi.
önnur leið, sem væri athugandi
fyrir þig, er aö reyna að komast aö
því hvar hún býr og hringja í hana
eða hvaða staði hún sækir og fara
þangað. Nú, svo hittist þið kannski
í bæjarvinnunni í sumar.
Aðdáenda-
klúbbar
Ein, sem er aðdáandi
John Taylor, sendi Póstin-
um utanáskrift nokkurra
aðdáendaklúbba og kann
Pósturinn henni bestu
þakkir fyrir. Hér koma
nokkrar og fleiri koma
síðar.
Ralph Macchio
c/oKarateKid
Columbia Pictures
Columbia Plaza
Burbank
Califomia 91523
U.S.A.
Wham! Fan Club
63 South Matton Street
London W1
England.
Limahl Fan Club
P.O. Box 26 w
London W1 a 26 w
England.
The Thompson Twins
Teefax
P.O. Box468
London SW10 9 AW
England.
Michael Jackson
c/o Epic Records
1801 Century Park West
Los Angeles
Califomia 91608
U.S.A.
48 Vikan Zl. tbl.