Vikan - 23.05.1985, Page 54
Litla stelpan sem varð
frægur kvikmyndaleikari
Einu sinni var lítil stelpa í Amer-
íku sem hét Shiríey Tempíe. Hún
var með liðað hár og brosti oft svo
djúpir spékoppar komu í kinnarnar
á henni. Þegar Shirley litla var bara
fjögurra ára var hún í dansskóla og
þá kom þangað maður sem var að
leita að barni til þess að leika í kvik-
mynd. Hann vildi fá Shirley til þess
að leika en pabbi hennar og mamma
sögðu fyrst alveg nei. En síðan sam-
þykktu þau að leyfa dóttur sinni að
reyna. Fyrst lék hún í stuttum kvik-
myndum sem voru allar fremur vit-
lausar. En þegar Shirley var sex ára
fór hún að leika í löngum bíómynd-
um og henni gekk mjög vel. Fljót-
lega þekktu allir litlu stúlkuna með
krullumar og spékoppana sem kom
þeim til að hlæja með uppátækjum
sínum og skemmti þeim með leik,
dansi og söng.
Allir sem unnu við að búa til kvik-
myndimar skemmtu sér vel þegar
Shirley var á staðnum. Fólkið fór í
feluleik við hana eða settist á gólfið
oglékviðhana.
Það var skemmtilegt að vera fræg
kvikmyndastjama en það var líka
erfitt stundum. Allir þekktu Shirley
hvert sem hún fór. Fólk vildi fá að
sjá hana, koma við hana, og stund-
um gleymdi fólk því að hún var bara
lifandi lítil stelpa. Shirley gat ekki
gengið í skóla með öðrum bömum
því hún var svo oft að leika í kvik-
myndum og hún gat sjaldan leikið
sér við önnur böm. Þegar hún átti frí
frá kvikmyndunum komu kennarar
til hennar og kenndu henni.
Það voru búnar til Shirley Temple
dúkkur, Shirley Temple Utabækur
og dúkkulísur. Shirley Temple fékk
bréf frá fólki út um allan heim og
margir sendu henni leikföng. Hún
fékk svo margar dúkkur að mamma
hennar og pabbi gátu ekki komið
þeim fyrir inni í húsinu sínu.
Shirley fékk mikið kaup fyrir vinn-
una sína í kvikmyndunum. Þeir voru
allir settir í banka og svo fékk hún
dálitla vasapeninga einu sinni á
viku. Hún var óspör á að kaupa sæl-
gæti og gosdrykki handa öðrum
bömum sem unnu með henni og
stundum dugðu vasapeningarnir
hennar skammt.
Shirley litla hafði mjög gaman af
dýrum og átti margar kanínur í leik-
herberginu sínu í kvikmyndaverinu
þar sem kvikmyndimar voru búnar
til.
Þegar Shirley Temple stækkaði
hætti hún að leika í kvikmyndum.
Hún gifti sig og átti þrjú böm og
gerðist stjómmálamaður. Nú er litla
stelpan með spékoppana orðin 57 ára
gömul og löngu orðin amma.
54 Vikan 21. tbl.