Vikan - 12.11.1987, Page 4
Notaðar bandarískar bifreiðar viðsjárverðar:
Fimmtungur þeirra
með falsaða
ökumæla
Innflutningur á not-
uðum bandarískum
bifreiðum til landsins
hefur aukist gífurlega í
ár miðað við síðasta ár. í
fyrra voru 80 slíkar bif-
reiðar fluttar inn til
landsins en það sem af
er þessu ári eru þær
orðnar 634 talsins.
Kaupendur þessara bif-
reiða ættu hinsvegar að
vara sig á þeim því sam-
kvæmt könnun sem
tímaritíð Changing Tim-
es gerði er fimmtungur
þeirra með falsaða öku-
mæla, það er vegalengd-
in sem sést á ökumælin-
um hefur verið skrúfuð
niður til að auka verð-
mæti bifireiðarinnar í
endursölu.
í grein CT um þetta mál seni
ber yfirskriftina: „Ökumæla-
svindl, það er verra en þú
heldur," segir að vandamál þetta
sé raunar ekki aðeins bundið
við notaðar bifreiðar í Banda-
ríkjunum því nýlega varð upp-
víst að Chrysler-verksmiðjurnar
hefðu tekið úr sambandi öku-
mæla á 60.000 nýjum bifreiðunt
sem starfsmenn höfðu ekið,
áður en bifireiðarnar voru send-
ar sölumönnum um öll Banda-
ríkin.
Tímaritið segir að um það bil
einn bíll af hverjum fimm sem
seldir eru notaðir í Bandaríkjun-
um hafi falsaðan ökumæli og
vitnað er til NHTSA eða Þjóð-
vegaöryggisstofnunarinnar sem
segir að ökumælar séu skrúfeðir
að meðaltali aitur um 30.000
mílur í þremur milljónum bif-
reiða á ári og geri seljendum
þannig kleyft að svíkja kaupend-
ur um allt að 1000 dollara á bil
þannig að þetta sé 3 milljarða
dollara iðnaður á ári. (Ríílega
4 VIKAN
100 milljarðar isl. kr.). Tímarit-
ið segir að ökumælafals sé nú
orðið svo algengt að þú skulir
aldrei trúa því sem standi á öku-
mælinum um ekna kílómetra
sama hver sé að selja þér bílinn.
Með hliðsjón af hinnl gíftir-
legu aukningu sem orðið hefúr
á innflutningi notaðra banda-
rískra bíla hingað til lands á
þessu ári má áætla að af þeint
634 biffeiðum í ár séu um 130
þeirra með falsaðan ökumæli.
Kaupendur þessara bifreiða
ættu því að athuga gaumgæfi-
lega, áður en þeir festa kaup á
bifreiðinni, hvort líkur séu á að
átt hafi verið við ökumælinn, til
dæmis hvort skrúfúr séu lausar í
mælaborðinu eða ummerki um
að þær hafi verið losaðar nýlega.
Ef ökumælirinn snýst ekki al-
mennilega við reynsluakstur er
það vísbending um að átt h:tfi
verið við ökumælisbarkann og
gott er að athuga slit á hjólbörð-
um og hijggdeyfum sem oft er
ekki í neinu samræmi við það
sem uppgefið er um hve rnikið
bifreiðinni hafi verið ekið.
—FRI.