Vikan - 12.11.1987, Blaðsíða 9
Dómarar og stjómendur kepninnar.
Guðfinna Jóhannsdóttir og Brósi.
UNGFRÚ HEIMUR:
Miðinn kostar
12.800 krónur
Á hverju ári fara alltaf nokkr-
ir íslendingar til London til
að fylgjast með því hvemig
Ungfrú íslandi reiðir af í
keppninni um titilinn Ung-
frú Heimur - og svo er einn-
ig að þessu sinni. Baldvin
Jónnson, forsvarsmaður Feg-
urðarsamkeppni íslands,
fræddi okkur á því að hvert
þátttökuland fengi 10 miða í
bestu sæti til ráðstöfúnar
hverju sinni og hann hélt að
líklega væri búið að ráðstafa
8 þeirra. Fjórir þessara átta
sem fara hafið farið nokkr-
um sinnum, enda þykir
þetta hin besta skemmtun.
Baldvin sagði að miðinn kost-
aði um 200 pund (ca. 12.800
kr), en inni í þessu verði er
innifalinn veislumatur og vín
ásamt aðgangi að balli sem hald-
ið er eftir keppnina, en stærsti
hluti aðgangseyrisins er látinn
renna til barnahjálpar. Þeir sem
ekki vilja borða né fara á ballið
geta komist inn fyrir um 50
pund. Baldvin sagði að það væri
mjög eftirminnilegt og
skemmtilegt að vera á þessu
balli því á því væru íbúar 80—90
þjóðlanda, en yfirleitt eru um
1000 manns í kringum hverja
keppni; aðstandendur stúlkn-
anna og keppninnar í hverju
landi.
Sunnudagskvöldið fyrir
keppni bjóða aðstandendur
keppninnar öllum stúlkunum
og forsvarsmönnum keppninnar
í svokallað „jólaboð" og þá er
allt frítt. Pressan og veðbankarn-
ir fara síðan á fullt eftir helgina
og á miðvikudeginum er ekki
um annað rætt í London en
keppnina og mikið spáð og
spekúlerað í stúlkurnar. _ BK
RÚV lagði ekki
í kostnaðinn
Keppnin um titilinn Ungfrú
Heimur verður sýnd í beinni út-
sendingu á Stöð 2. Reyndar átti
Ríkissjónvarpið forkaupsrétt
á þessu efni en hafnaði því.
Ástæðan var verðið.
Samkvæmt áreiðanlegum
heimildum hefði bara leiga á
gervihnattarás kostað a.m.k. tvö
hundruð þúsund krónur. Því
hefur verið fleygt að kostnaður-
inn í sambandi við þessa útsend-
ingu sé um hálf milljón króna.
—AE.
VIKAN 9