Vikan - 12.11.1987, Síða 14
ANNA MARGRÉT jÓNSDÓTTIR:
Eg er keppnis-
manneskja
og vel upplögð
— en hérna eru yfir
80 fallegar stúlkur,
svo gerið ykkur ekki
of háar vonir.
Segir Anna Margrét Jóns-
dóttir Fegurðardrottning fs-
lands 1987 sem er fulltrúi ís-
lands í keppninni Ungfrú
Heimur 1987, í samtali við
blaðamann Vikunnar einni
viku fyrir keppnisdaginn.
Ungfrú Heimur keppnin fer
fram í Royal Albert Hall í
London fimmtudagskvöldið
12. nóvember og verður
sýnd í beinni útsendingu á
Stöð 2 þannig að landsmenn
geta fregnað það um leið og
aðrar þjóðir heims hvort
Anna Margrét bæti við sig
enn einum titlinum.
Hún var kosin Stjarna Holly-
wood og Fulltrúi ungu kynslóð-
arinnar þann 1. júní 1984. Hún
fór því til Japan sem fulltrúi ís-
lands í keppninni Miss Young
International það árið og komst
þar í úrslit, sem varð til þess að
henni bárust tilboð um að starfa
við sýningarstörf í Japan að
keppninni lokinni, en tilboðin
freistuðu hennar ekki nægilega
og hún kaus að koma heldur
heim og sýna með Model 79
sýningarhópnum, sem hún hef-
ur gert síðan.
Þrern árurn síðar, þann 8. júní
1987, bætti Anna Margrét enn
við sig tveim fegurðartitlum
þegar hún var kosin bæði Feg-
urðardrottning Reykjavíkur og
Fegurðardrottning íslands
1987, en sá ti,till færði henni
réttindi til að taka þátt í Ungffú
Heimur keppninni í London
þann 12. þessa mánaðar.
Ólafúr Laufdal hefur annast Fegurðarsamkeppni fslands í félagi
við Baldvin Jónsson og hafa þeir staðið að keppnishaldinu með
miklum sóma. Laufdal hefur auk þess staðið fyrir annarri keppni
yngismeyja, vali á Stjömu Hollywood, fyrst í samvinnu við tíma-
ritið Samúel og síðar Vikuna. Hér er Laufdal ásamt Stjörnu
Hollywood 1984, sem var engin önnur en Anna Margrét, sem
síðar hreppti titlana Fegurðardrottning fslands og Reykjavíkur.
Mikil fyrírhöfn
og kostnaður
Töluverður undirbúningur,
fyrirhöfn og kostnaður fylgir því
að taka þátt í keppni sent þessari
og Anna Margrét fór utan mörg-
um dögum áður en keppnin fór
fram. Fyrst fóru allar stúlkurnar
til Möltu þar sem allar sundbols-
mynda tökur fóru ff am, auk þess
sem stúlkurnar kynntust. í sam-
tali sem Vikan átti við móður
Önnu Margrétar, Marínu Sam-
úelsdóttur, kom fram að það
hefði verið nokkuð erfltt að
finna öll föt sem Anna Margrét
þurfti að hafa með sér sam-
14 VIKAN