Vikan - 12.11.1987, Page 21
i
I
I
GRAFÍK MEÐ NÝJA PLÖTU:
Hljómsveit
með sérstöðu
Ný hljómplata með hljóm-
sveitinni Grafík kom á mark-
aðinn í síðustu viku og ber
hún nafiiið Leyndarmál.
Þetta er fyrsta plata hljóm-
sveitarinnar fiá því að Helgi
Bjömsson yfirgaf hana, svo
búast má við nokkurri
stefnubreytingu á henni. Við
hlutverki Helga í söngnum
tók Andrea Gylfadóttir, en
aðrir nýir meðlimir em
Baldvin Sigurðarson (úr
Baraflokknum) á bassa og
Hjörtur Howser á
hljómborð. 3. desember
verður efnið svo gefið út á
geisladisk.
Hljómsveitin Grafík hefúr
ætíð haft sérstöðu meðal ís-
lenskra rokksveita. Jafhan hefiir
hún farið sínar eigin leiðir við
tónlistarsköpun og gerð
hljómplatna og hefúr því náð að
skapa sinn eigin tónlistarstíl.
Drifkraftar hljómsveitarinnar í
gegnum tíðina og jafnframt
helstu stílsmiðir hennar hafa
verið þeir Rafn Jónsson tromm-
ari og Rúnar Þórisson gítarleik-
ari.
Þeir Rafn og Rúnar stofnuðu
Grafík formlega árið 1981 í fé-
lagi við þrjá aðra vestfirska
sveina, nánar tiltekið á sólríkum
júnídegi. Þeir hófu samstarfið
með því að hljóðrita sjálfir efhi á
breiðskífu á 8 rása upptökutæki
við fremur ffumstæðar aðstæð-
ur í félagsheimilinu í Hnífsdal.
Plötuna gáfú þeir síðan út á eig-
in kostnað í september sama ár
og hlaut hún mjög góðar viðtök-
ur, sérstaklega lögin „Videó“ og
„Guðjón Þorsteinsson bifreiða-
stjóri". Þar með var kúrsinn
settur.
Það mátti greina hinn sér-
staka Grafíkhljóm strax á
þessari plötu og á þeirri næstu
„Sýn“ sem tekin var upp vorið
’82 þar mátti heyra tónlistarlegt
uppgjör Grafík við fortíðina.
Platan féll ekki í frjóan jarðveg
og seldist lítt. Strax að lokinni
útgáfúnni urðu breytingar á lið-
skipaninni. Rafn, Rúnar og Örn
Jónsson bassaleikari héldu
áfram en við bættist Helgi
Þau skipa
hljómsveitina Grafík:
Andrea Gylfadóttir
söngur, Baldvin
Sigurðarson bassi,
Hjörtur Howser
hljómborð, Rafn
Jónsson trommur
og Rúnar Þórisson
gítar.
Björnsson söngvari. Þeir tóku
sér gott hlé firá spilamennsku til
að bræða með sér nýjar hug-
myndir og móta stefnuna, en
hófu síðan dansleikjahald af
krafti vestur á fjörðum um
sumarið.
Um haustið komu meðlimir
Grafíkur síðan suður til vetur-
setu í höfuðborginni, líkt og
jafnan áður, en Grafík hélt þeim
sið í nokkur ár að dvelja fyrir
vestan á sumrin en á suðvestur-
horninu á vetrum. Á þessum
tíma urðu til lög eins og
„Sextán", „Húsið og ég“ (mér
finnst rigningin góð) og „Þús-
und sinnum segðu já“. Þessi lög
komu síðan út á plötunni GET
ÉG TEKIÐ SJENS sem kom út
seint í desember 1984. Á þess-
ari plötu lék Hjörtur Howser
sem gestur, en hann átti síðar
eftir að verða fastur meðlimur í
sveitinni. Áðumefnd þrjú lög
urðu feiknarvinsæl og um tíma
sátu þau í 2. 3. og 8. sæti vin-
sældarlista Rásar 2 sem er nán-
ast einsdæmi.
í ársbyrjun ’85 hætti Örn og
Jakob Magnússon bassaleikari
tók við. Sveitin hófst handa við
gerð nýrrar plötu sem koma átti
út þá um vorið. Upptökur dróg-
ust hinsvegar á langinn og í
millitíðinni gerði Grafík sinn
fyrsta útgáfusamning við Mjöt.
Platan STANSAÐ DANSAÐ
ÖSKRAÐ kom út í jólamánuðin-
um ’85 og var ráðist í að gera
myndband við lagið Tangó.
Þetta sama myndband hlaut ný-
verið gullverðlaun á Norrænni
auglýsinga og myndbandahátíð.
Grafík var nú orðin ein vin-
sælasta hljómsveit landsins og
hafið m.a. komið fram sem fúll-
trúi íslands á Norrokk hátíðinni
sem haldin var í Danmörku
haustið ’85. Þegar Listapopp
L986war haldið í Laugardalshöll
kom Grafík fram á tónleikum
ásamt Lloyd Cole and the Com-
motion og Simply Red.
Skömmu síðar hættu Helgi og
Jakob í sveitinni og Grafík lagð-
ist í hálfgerðan dvala á meðan
leit að nýjum söngkrafti stóð
yfir. Leitað var að söngvara með
sérstakan karakter og voru
margir prófaðir, en eftir mikla
leit var ung og óþekkt söngkona
með klassiskt söngnám að baki
ráðin. Hún heitir Andrea Gylfa-
dóttir og um líkt leyti tók Bald-
vin Sigurðarson við sem bassa-
leikari.
Svona skipuð kom hljóm-
sveitin fram í beinni sjónvarps-
og útvarpsútsendingu þann 18.
mars er Rás 2 hóf 24 stunda út-
sendingar sínar og vakti sveitin
gríðarlega athygli. Þá þegar
voru upptökur hafnar á efni
plötunnar „I.eyndarmál" og
stóðu þær nær linnulaust ffam á
haustið ’87.
Á nýju plötunni flytur Grafík
9 lög, hvert öðru betra. Upp-
tökumaður er Sigurður Bjóla
Garðarsson, en hann hefúr ann-
ast það hlutverk ásamt hljóð-
blöndun á plötum Grafík allt
frá árinu 1984. Leyndarmál
kemur út á hljómplötu, kassettu
og geisladiski.
VIKAN 21