Vikan - 12.11.1987, Blaðsíða 22
Pelsakaup vefjast ekki
fyrir gullkorthöfum.
Góðír
Það þykir ekkert tiltöku-
mál lengur að eiga kredit-
kort, þ.e.a.s. „venjulegt"
kort; aftur á móti er mjög
„fínt“ að hafa gull-kreditkort
upp á vasann. Best er að eiga
leðurseðlaveski með ótal
litlum hólfum undir öll
kreditkortin því það á að
vera hægt að setja samansem
merki á milli þeirra sem eiga
gullkort,ásamt öllum öðrum
fáanlegum kortum, og
manns sem er traustur í við-
skiptum.
— Hvað er svona merkilegt
við gullkort? Ýmislegt, vilja þeir
meina hjá kreditkortafyrirtækj-
unum á íslandi og hafa sent
völdum viðskiptamönnum boð
um að þeir geti fengið Gullið ef
þeir kæri sig um. Með boðunum
fylgir mikið lesefhi um ágæti
kortsins, til að lesa áður en
ákvörðun er tekin um að sækja
um kort, en mörgum finnst ár-
gjaldið ansi hátt og vilja kanna
vel hvað þeir fá fyrir sinn snúð.
Staðgreiðslu-
afsláttur?
Hér heima hafa gullkortin
korthafa ekki svo margt fram
yfir þau venjulegu. Þau veita þó
korthafa eins konar gæðastimpil
og úttektarmörkin mun hærri
og hægt er að versla fyrir allt að
200.000 krónur í einu — sem
kemur sér áreiðanlega vel ein-
hvern tíma.
í upplýsingabæklingnum fyrir
gullkort Visa segir að hægt sé að
fa fullan staðgreiðsluafslátt ef
greitt er með gullkorti. Þetta
atriði hefur valdið nokkrum
misskilningi og hjá Visa ísland
fékkst nánari skýring: þetta á við
um verslanir sem Visa gerir sér-
stakan samning við og í samein-
ingu bjóða þeir þá korthöfum
„vildarkjör" sem gilda jafht fýrir
handhafa almenns korts og
gullkorts. Inn í þessi vildarkjör
er staðgreiðsluafslátturinn
reiknaður og þar að auki er
hægt að greiða hlutinn án nokk-
urrar útborgunar og á nokkrum
mánuðum. Raðgreiðslur af
þessu tagi tíðkast einnig hjá
Euro.
Honum gæti dottið í
hug að kaupa
seglskútu...
Það er á ferðalögum erlendis
sem gullkortin geta gert kort-
hafa mest gagn. Einnig þar er út-
tektarheimildin mun hærri en á
almennum kortum, en heimildir
eiga þó að fara eftir reglum sem
Seðlabankinn setur. Þó er hægt
að sækja um hærri heimildir í
sérstökum tilfellum. í Bandaríkj-
unum er úttektarheimild gull-
korthafa mjög há og er blaða-
manni minnisstætt þegar einn
góður maður þar í landi fékk
gullkort sent í pósti. Konan hans
opnaði alltaf póstinn og þegar
hún sá kortið þá sagði hún: „Ég
ætla að fela þetta kort því hon-
um gæti dottið í hug að fara og
kaupa sér seglskútu." Hún
meinti þetta í fullri alvöru því
hún vissi sem var að með gull-
kort upp á vasann þá var þetta
mögulegt.
Gullkort veita korthöfum
ýmis fríðindi á ferðalögum, þar
á meðal afslátt á fjölmörgum
hótelum og bílaleigum og fá
korthafar bók yfir þessa staði. .
Hótelin sem um er að ræða eru
yfirleitt í dýrari “klassanum" en
bjóða 10-50 % afslátt frá venju-
legu verði. Það er ekki þar með
sagt að korthafar fái ódýrari gist-
ingu með þessu móti heldur en
ef þeir gista á hóteli sem ferða-
skrifstofa hér heima sér um að
útvega og þeir sem ekki vilja
eyða stórri fulgu í gistikostnað
ættu að kynna sér vel þetta
atriði áður en lagt er af stað. Aft-
ur á móti á ekki að vera nokkur
hætta á því að þeir sem bóka
gistingu með gullkortsnúmer-
inu sínu verði af gistirými;
pöntunin á að vera “gulltryggð".
Einnig borgar sig að kanna bíla-
leigutaxta hjá ferðaskrifstofun-
um og bera hann saman við
taxta þeirra sem veita gullkort-
höfum afslátt.
Gullkortið kemur sér einkar
vel fyrir þá sem mikið ferðast
því kortið veitir þeim aðgang að
ýmiss konar þjónustu sem gerir
ferðalagið þægilegra. Þar á með-
al ýmsum lokuðum einkaklúbb-
um sem bjóða upp á veitingar