Vikan - 12.11.1987, Side 23
og skemmtanir, einnig veitir
það aðgang að heilsuklúbbum
og golfklúbbum og er þessi
þjónusta ýmist ókeypis eða á
lækkuðu verði. Einnig fá gull-
korthafar aðgang að viðskipta-
miðstöðvum í ýmsum borgum
þar sem þeir geta fengið ieigðar
skrifetofúr og fengið þar marg-
víslega þjónustu.
Gullkortshafar vel
tryggðir á ferðalaginu
Korthafar sem greiða ferða-
kostnaðinn með gullkorti að
öllu leyti eða að hluta eru sjálf-
krafa tryggðir fýrir margs konar
óhöppum sem átt geta sér stað á
ferðalögum. Þar um að ræða
sömu tryggingar og þeir fá sem
hafa almenn kort og einnig
nokkrar fleiri, sem þar að auki
eru ekki almennt boðnar í ferða-
tryggingar „pakka“ tryggingar-
félaganna. Má þar t.d. nefha
tryggingu sem felur í sér að
hlutir sem keyptir eru með gull-
korti erlendis eru sérstaklega
tryggðir og greiddar bætur allt
að 2.500 dollurum nái hlutur-
inn ekki óskemmdur heim.
Gullkorthafar fá einnig
greiddar bætur að vissri fjárhæð
vegna tafa sem verða á afhend-
ingu farangurs, brottfaratöf eða
samgöngutruflana. þá er endur-
greiddur útlagður kostnaður t.d.
vegna aukins kostnaðar við að
komast á ákvörðunarstað, mál-
tíða, kaupa á nauðsynlegum
snyrtivörum og fatnaði og fleiru
smálegu. Vissar reglur gilda
varðandi þessi atriði og upp-
hæðin sem bætt er fer eftir því
hversu löng töfin hefúr verið,
eða af hvaða ástæðum erfiðleik-
ar voru að komast á áfangastað.
Gullkortshafi, ásamt maka og
börnum sem með honum ferð-
ast er sjálfkrafa ferða- og slysa-
tryggðir á svipaðan máta og þeir
eru sem tryggðir eru hjá ein-
hverju tryggingarfélaganna. Hjá
Samvinnutryggingum fengust
þær upplýsingar að grunnurinn
í tryggingunum hjá tryggingar-
félögunum og kreditkortafýrir-
tækjunum sé sá sami, en félögin
byggja sína „pakka" mismunandi
upp. Hjá Samvinnutryggingum
er samsett trygging sem algengt
er að fólk taki þegar það fer
t.a.m. í 3 vikna sólarlandaferð og
kostar kr. 2.075 á mann. Þá eru
menn ferða- og slysatryggðir
Úttektarheimild
gullkorta getur
veriö nokkur
hundruð þúsund
og „guirferða-
langar eru sjálf-
krafa vel tryggðir
auk þess sem farangurinn er
tryggður. Að sjálfsögðu eru
ýmsir skilmálar sem fylgja tryg-
gingunum, bæði hjá tryggingar-
félögunum og kreditkortafyrir-
tækjunum sem menn þurfa að
kynna sér vel; í stuttu máli: lesa
smáaletrið.
Gullkortid borgar sig..
Margt fleira er hægt að segja
um gullkortin, en það stendur
hvort eð er allt í bæklingunum
frá Euro og Visa. Okkar niður-
staða er sú að fýrir þá sem ferð-
ast mikið sé mjög gott að hafa
gullkort og að það sé vel þess
virði að greiða fyrir það árgjald-
ið, því möguleikarnir sem kort-
ið veitir eru þess fúllkomlega
virði. —BK
VIKAN 23
Gullið getur verlð lykilllnn að
vel heppnaðri utanlandsferð.
BJORGVIN