Vikan - 12.11.1987, Side 42
Skákmeistarinn Richard Reti
samdi nokkur skákdæmi,
eða tafllok, sem þykja mikil
listasmíð. Flestir sem eitt-
hvað hafa fengist við tafl-
mennsku þekkja þraut hans
úr peðsendatafli, þar sem
hvítur virðist þurfa að brjóta
öll lögmál til þess að halda
jafntefli. Staðan er svona og
það er hvítur sem á leik:
abcdefgh
Stysta leiðin á skákborðinu
Hvítur er á leið upp blaðsíð-
una en svartur niður. Ekki verð-
ur séð hvernig hvítur ætlar að
stöðva svarta h-peðið í leið þess
að nýrri drottningu. Lykillinn að
þrautinni er sá, að hvíti kóngur-
inn slær tvær flugur í einu
höggi: Styður sinn frelsingja og
stöðvar þann svarta. Takið vel
eftir: 1. Kg7! h4 2. Kf6.
Nú og í næsta leik verður
svartur að eyða leik með
kóngnum. Ef 2. - h3, þá 3- Kd6
h2 4. c7 Kb7 5. Kd7 og báðir
vekja upp.
2. - Kb6 3. Ke5! Kxc6 4. Kf4
h3 5. Kg3 h2 6. Kxh2 - og h-
peðið er fallið.
Lítið aftur á stöðumyndina
hér að framan. Hún hefur verið
kennslubókardæmi allar götur
síðan 1921 er hún birtist fyrst.
Það er augað sem blekkir.
Kapphlaupið virðist vonlaust: 1.
Kh7 h4 2. Kh6 h3 3. Kh5 h2 4.
Klt6 h 1 = D og vinnur. Færri átta
sig á því að kóngar eru jafnfljótir
að hlaupa eftir skálínum eins og
beint af augum. Hann er sex
leiki til h2 eftir h-línunni en
jafnfljótur ef hann fer leiðina
Kh8-g7-f6-e5-f4-g3-h2, eins og á
sér stað í þrautinni.
Hér er annað dæmi, sem
byggir á frummynd Retis. Hvít-
ur á að halda jafntefli í að því er
virðist vonlausri aðstöðu. Höf-
undur Rússinn Pomogalov
(1973):
Lausn: 1. Ka7 Bc8 2. Kb8
Be6 3. c8=D Bxc8.
Nú er 4. Kxc8 svarað með 4.
— Kg6 5. Kd7 Kxf6 6. Kxd6 a4
og svarta peðið verður að
drottningu. Hvað er til ráða?
4. Kc7!!
Vinnur dýrmætan leik. Ef nú
4. - a4, þá 5. Kxd6 Kg6 6. Ke7
og síðan f-peðið fram.
4. - Kg6 5. Kxd6 Kxf6 6.
Kc5 Bd7 7. Kc4 og hvítur
kemst fýrir peðið og nær jafn-
tefli. Hér bætist nýtt stef við
lausn Retis. Biskup og hornpeð,
ef uppkomureitur peðsins er
ósamlitur gangi biskupsins, geta
ekki unnið gegn kónginum ein-
um í horninu.
Jón L.
Ámason
Sterkt mót á Selfossi
Eitt af vinsælli mótum á ís-
landi er minningarmót Ein-
ars Þorftnnssonar á Selfossi.
í því taka þátt 36 pör. Mót
þessa árs var haldið laugar-
daginn 24. október og var
það mjög sterkt að vanda.
Þó vantaði nokkur af sterk-
ustu pörunum frá Reykjavík.
Sigurvegarar mótsins tirðu
nokkuð óvænt Ragnar Her-
mannsson og Einar Jónsson, en
þeir hafa lítið spilað saman.
Ragnar Hermannsson er aðeins
26 ára gamall, en þeir félagarnir
hafa báðir sýnt og sannað að
þeir eru engir viðvaningar. Þeir
sögðust hafa grætt mikið á því
að nota opnim á veiku grandi
utan hættu, 9—12 punktar (ca.
15—20 vínarpunktar). Einar og
Ragnar leiddu mestallt mótið, Páll Ragnar Magnús Einar
en á kafla í síðari hluta mótsins Valdim. H. Ólafsson J
seig á ógæfúhliðina og þeir V N A S
misstu forystuna. Spil vikunnar 2 L
er frá þcim dapra kafla. pass 2T° 2 S 3 L
3 S 4 L pass 5 L
x pass pass pass
KlOxx 1) Spurnarsögn
AKlOxxx
9x
KlOxx
Gxx
G9xx
Dx
Dxx
Dxx
x
ÁKGlOxx
Útspil var lítill spaði sem aust-
ur drap á ás. Eftir tveggja mín-
útna umhugsun spilaði austur
litlu laufi. Einar, í suður, mat og
vó möguleikana á þessu harða
geinti og hleypti síðan lauflnu.
Þar með var samningurinn tvo
niður, en hefði orðið toppur ef
hann hefði farið upp með ásinn,
því hjartagosinn lá fýrir svín-
ingu. Meinleg óheppni þar.
í síðara spilinu af tveimur
fóru Páll og Magnús í þrjú grönd
þar sem allir spiluðu ljóra spaða.
Þremur gröndum mátti hnekkja
með útspili í tígli, en Ragnar
hitti ekki á það. Þrjú grönd unn-
in með yfirslag gáfu hreinan
topp og eftir þessa setu duttu
Einar og Ragnar úr fyrsta sæti
niður í það þriðja. í síðustu um-
ferðunum reyndust þeir svo
vandanum vaxnir og unnu með
nokkru öryggi.
(sak Örn
Sigurðsson
BRIDGE
ir
TL
Ji' •i&i,,,, «4
Þegar þú gerist áskrifandi að tímaritinu Hús & híbýli eru þér boðin tvö blöð í kaupbæti.
Fjögur tölublöð eru að vísu uppseld og mörg önnur tölublöð eru
að verða á þrotum. Það eru því að verða síðustu forvöð, fyrir þá sem vilja tryggja
sér blöð í safnið, að panta þau. Blöð frá eldri árgöngum, eða allt fram til síðustu
áramóta, kosta frá útgáfunni kr. 50 eintakið. Tekið er á móti áskriftarbeiðnum og
pöntunum á eldri blöðum í sima 83122. Athygli áskrifenda skal vakin á því, að nú
er hægt að greiða áskriftargjaldið í gegnum Eurocard og Visa.
42 VIKAN