Vikan - 12.11.1987, Qupperneq 55
Lisa í hinu umdeilda hlutverki
sínu í Angel Heart þar sem
hún lék í blóðugri rúmsenu á
móti Mickey Rourke.
Stoltur fyrirmyndarfaðir með
dótturina. Þrátt fyrir gagnrýni
segist Cosby vera algerlega
sáttur við það að Lisa skyldi hafa
leikið í Angel Heart.
Lisa Bonet, sem leikur Denise
Huxtable í hinum geysivin-
sælu þáttum Fyrirmyndarfaðir,
hneykslaði bandaríska áhorfend-
ur svo um munaði fyrr á þessu ári
og tók mikla áhættu ( sambandi
við hlutverk sitt í sjónvarpsþáttun-
um. ( mynd Alans Parker, Angel
Heart, sem var frumsýnd fyrr á
þessu ári lék hún heldur skugga-
lega dömu sem var á kafi í vo-
odoo trúarbrögðum. ( myndinni er
hún með Mickey Rourke í einni
blóðugustu samfarasenu sem
sést hefur á tjaldinu, og lítið var
reynt til að skýla líkama hennar
fyrir myndavélinni.
Til að bæta um betur lét hún
birta mynd af sér berbrjósta í
tímariti Andy heitins Warhols í
apríl, svona rétt ef ske kynni að
einhverjir hefðu ekki hneykslast
nóg á bíómyndinni. Stökkið frá
fyrirmyndarunglingi yfir í æsandi
kynlífsveru var of stórt fyrir suma.
Það var einfaldlega ekki hægt að
hugsa sér hina heilbrigðu Denise
Huxtable í blóðugum samförum
eða sem topplausa fyrirsætu í út-
breiddu tímariti.
Hvorki Lisa Bonet né forráða-
menn NBC sem framleiða þætt-
ina um fyrirmyndarföðurinn virð-
ast þó sérlega áhyggjufull yfir við-
brögðunum. Ekki er talið líklegt
að fólk hætti að horfa á þættina
bara vegna þess að Lisa beri sig.
Öðru máli gegnir aftur með henn-
ar eigin þætti sem eru að fara af
stað um þessar mundir. Hefur
hún eyðilagt ímynd sína þannig
að áhorfendur hafi ekki áhuga á
henni einni sér?
Nýi þátturinn hennar Lisu heitir
A Different World og er i beinu
sambandi við hlutverk hennar i
Fyrirmyndarföður. Denise Hux-
table fer einfaldlega i heima-
vistarskóla og þættirnir sýna líf
hennar þar með herbergisfélög-
um sinum. Hún hefur mikið sam-
band við foreldra sina og í einum
af fyrstu þáttunum heimsækja
þau hana f skólann. Með því að
halda tengslunum á milli þáttanna
ætlar NBC að reyna að tryggja
vinsældir hins nýja þáttar.
Ennfremur var ákveðið að sýna
þættina i sjónvarpi á besta hugs-
anlegum tíma, á fimmtudags-
kvöldum strax á eftir Fyrirmynd-
arföður. Að vísu mótmælti Lisa
þessum áformum þar sem hún
vildi láta reyna á það hvort þætt-
irnir gætu staðið einir sér, en lét
að lokum segjast. Þó að of
snemmt sé að segja til um hvern-
ig þættirnir eiga eftir að ganga
hafa fyrstu undirtektir verið mjög
góðar. ( nýlegri könnun varð hinn
nýi þáttur í öðru sæti á eftir Fyrir-
myndarföðurnum hvað áhorfun
varðar, og dómar gagnrýnenda
hafa verið jákvæðir.
Snemma á næsta ári ættu is-
lenskir áhorfendur að geta dæmt
um þættina sjálfir, þvi Ríkissjón-
varpið er búið að kaupa þá og
fyrirhugað er að hefja sýningar á
þeim öðru hvoru megin við
páska.
I nýju þáttaröðinni hennar Lisu Bonet sem
Ríkissjónvarpið hefur sýningar á næsta vor,
fer hún i nám við Hillman menntaskólann.
Með henni á myndinni eru herbergisfélar
hennar í þáttunum.
Fyrirmyndar-
dóttirin
send í skóla
VIKAN 55