Vikan - 24.03.1988, Blaðsíða 15
MANSTU HVAÐ ÞU FEKKST
I FERMINGARGJÖF?
Það er því miður í langflestum tilvikum þannig að fermingargjafirnar eru fermingarbörnum
síðari tíma ofar í huga en Guð almáttugur. Fermingargjafirnar verða stöðugt verðmætari og
veislurnar veglegri. Jafnvel ekki minnu til kostað en við brúðkaup.
Vikan gerði það til gamans að spyrja fáeina aðila um það hvað þeir hefðu fengið í
fermingargjafir. Voru þá m.a. nefnd til sögunnar hálsbindi og vasaklútur sem og hross og
steríógræjur. Þarf vart að taka það fram að allmargir áratugir liðu milli þess sem gjafir þessar
voru mótteknar. Þegar Vikan svo spurðist fyrir í verslunum kom í Ijós að það nýjasta
er afruglarar fyrir Stöð 2 - sem svo kallar vitaskuld á lítið sjónvarpstæki í
unglingaherbergið og jafnvel myndsegulband líka . ..
TEXTI: BRYNDÍS KRISTJÁNSDÓTTIR OC ADOLF ERLINCSSON / UÓSM.: PÁLL KJARTANSSON, ADOLF O.FL.
Fá stelpurnar
peninga
og strákarnir
hljómtœki?
Þórunn Guðmundsdóttir var fermd
í fyrra og VIKAN leitaði til hennar til
að komast að því hvað hún og vinir
hennar hefðu fengið í fermingargjaf-
ir.
Þar sem Þórunn er á kafi í hestasportinu
með foreldrum sínum fannst þeim tilvalið
að gefa henni hest í fermingargjöf. Fyrir
valinu varð sjö vetra klár sem heitir Tígull.
Að öðru leyti fékk hún sígildar gjafir sem
stelpur fá yflrleitt, skartgripi, skartgripa-
skrín og svo peninga, en það virðist vera
einna algengast að fermingarbörnin fái
peninga sem þau mega svo ráöstafa að eig-
in vild.
Að sögn Þórunnar var algengast að vin-
konur hennar hefðu fengið peninga, en
strákarnir fengu flestir hljómtæki. Þó
mundi hún eftir því að ein vinkona hennar
hafði fengið utanlandsferð frá foreldrum
sínum auk peninga fyrir gjaldeyri.
Það virðist svo að auðveldara sé að velja
gjöf handa strákunum. Ef þeir eiga ekki
hljómtæki fyrir, virðast þau vera vinsæl-
asta gjöfin þar sem nánast alla stráka lang-
ar í þau. Stelpur virðast hins vegar al-
mennt ekki leggja jaíh mikla áherslu áþau,
þannig að fyrir utan ýmiss konar skartgripi
virðist vera einfaldast að gefa þeim pen-
inga og leyfa þeim svo sjálfum að ákveða í
hvað þær leggja þá.
VIKAN 15