Vikan - 24.03.1988, Síða 54
/ ■ 1 ískuflíkurnar virðast fæst-
I ar sniðnar með það íyrir
JL augum að við konur hér á
Fróni getum gengið glaðbeittar
að þeim. Oft hefur verið skorið
við nögl, naumt sniðið og
kroppurinn beraður í því sent
næst allri þeirri dýrð sem Drott-
inn gaf svo örlátlega forðum, —
en þó aldrei eins og nú. Stystu
pils í manna minnum, stuttbux-
ur, bert bak, gegnsætt hýjalín og
guð má vita hvað, er það sem
menn hnjóta um við íýrstu sýn,
þegar tískumyndir sumarsins
eru skoðaðar. En sé betur að
gáð, má sjá innan um geysigóða
hluti, sem jafnvel
gætu glatt
hjörtu okkar hér norður við
heimskaut.
Þó skammdegið hafi gert það
að verkuni að blórnin okkar
geispa nú golunni hvert af öðru
í stofugluggum flestra heintila
landsins, er von til þess að þau
rétti úr sér senn og verði orðin
hin blómlegustu innan fárra
vikna. Hið sama ætti að gilda urn
þær konur sem vilja tolla í tísk-
unni.
Rómantísk blómadýrð er eitt
það athyglisverðasta sem birtist
í tískufatnaði sumarsins. Fransk-
ir hönnuðir áttu þar forskotið,
litaglaðir og djarflr nteð Christi-
an Lacroix, Karl Lagerfeld, Dior
og fleiri fræga í broddi fýlkingar.
Mynstrin eru ýmist stórgerð eða
fínleg, litskrúðug eða hógvær,
en svo blómleg í þess orðs
fyllstu merkingu, að heilu
skrúðgarðarnir birtast í sumum
flíkunum. Helstu eru það auð-
vitað kjólar sem sniðnir eru úr
slíku dýrðarinnar líni og við þá
ganga veglegir stráhattar, blóm-
urn prýddir að sjálfsögðu, í mis-
munandi mæli þó.
Kjólar eru í miklum meiri-
hluta vel fyrir ofan hné, jafnvel
þó pilsmildir séu sumir hverjir.
Og séu efnin ekki sýnishorn af
flóru náttúrunnar, má ganga að
því vísu að blóm birtast með
einum eða öðrum hætti, til
skrauts, í lögun kjólanna eins og
t.d. í svonefndum túlípanapils-
um og kjólum, sem víða sáust.
Lengst gengur fyrrnefndur Lacr-
oix, sem hlotið hefur heims-
frægð á örskömmum tíma fyrir
kjólaltönnun, og þótti mörgum
kúnstugt að sjá hversu mikið
stáss var lagt í íburðamikla kjól-
ana, svona fyrir hásumarið.
Sunnar í álfúnni héldu ítalir
sínu striki, sýndu öllu hagnýtari
klæði með þessu hárfína ítalska
yfirbragði, en einnig þar birtist
.v;í
1** ■ * w* jrjt -' ,»*«** # ** r»j , •»* * ‘
* ***Æ** *,**L‘* m * ^4* * J1 «I * ** ^ » * 9 # * ^ 4
rnf 'Z***
X** * > - *»’' * ** * S n/lm* 3
54 VIKAN