Vikan


Vikan - 24.03.1988, Page 60

Vikan - 24.03.1988, Page 60
Nýja súperstjarnan Michael Douglas Michael Dougias ásamt Glenn Close í hinni umtöluðu kvikmynd Fatal raction. Þ ■ cgar 1 I egar hin fræga kvikmynd Gaukshreiðr- ið, með Jack Nicholson í aðalhlutverki sló eftirminnilega í gegn árið 1975, voru þeir ekki margir sem leiddu hugan að mannin- um á bak við sjálfa myndina, framieiðand- anum Michael Douglas. Gaukshreiðrið var frumraun Michael Douglas sem kvik- myndaframleiðanda, en fleiri myndir áttu eftir að fylgja í kjölfarið, þar sem hann tók líka að sér hlutverk leikara og leikstjóra. Nægir þar að nefna ævintýramyndirnar vinsælu þar sem hann og Kathleen Turner lenda í fjörlegum ævintýrum í frumskóg- um S-Ameríku og í Egyptalandi. Margir muna eflaust eftir myndinni The China Syndrome, þar sem Jane Fonda fór á kostum í hlutverki sjónvarpsfféttamanns og Jack Lemmon stal senunni sem sam- viskufullur kjarneðlisfræðingur. Michael Douglas lék kvikmyndatökumanninn, sem ásamt fféttakonunni, afhjúpaði kæruleysis- legan rekstur á bandarísku kjarnorkuveri. Stjörnuleikur Jane Fonda og Jack Lemmon í myndinni skyggði nokkuð á Michael Douglas í aukahlutverkinu, en það var þó engum blöðum um að fletta að Douglas var leikari af guðs náð og gæti hann því af eigin rammleik fetað í fótspor hins ffæga föður síns, gömlu kempunnar Kirk Doug- las, án þess að þurfa að nota sér fjölskyldu- tengslin sérstaklega. Nýlega voru frumsýndar tvær nýjar kvikmyndir á íslandi, með Michael Doug- las í aðalhlutverki, myndir sem hafa slegið svo eífirminnilega í gegn í Bandaríkjunum, að þær hafa verið útnefhdar til fjölmargra verðlauna, þar á meðal hinna effirsóttu óskarsverðlauna. Fatal Attraction, eða Hættuleg kynni, eins og myndin heitir á íslensku fjallar um afdrifaríkt ffamhjáhald elskulegs heimilis- föðurs. Myndin hefur nú verið sýnd um nokkurt skeið í Háskólabíói, við slíkar vin- sældir að það er nær ómögulegt að fá miða nema með því að leggja á sig langa stöðu í biðröð. Hin myndin, Wall Street, sem fjallar um umfangsmikið verðbréfabrask í kauphöll- um Wall Street í New York, hlaut mjög góða dóma í Bandaríkjunum, en einhverra hluta vegna hefur hún ekki gengið eins vel í augu íslendinga, sem þó eru braskarar að eðlisfari. í Fatal Attraction leikur Michael Doug- las hinn mesta ljúfling, sem skrikar aðeins einu sinni fótur á hinum hála vegi dyggð- arinnar, en þarf að greiða hrösun sína dýru verði. Áhorfandinn hefur þó samúð með honum alla myndina í gegn, þótt honum hafl orðið það á að halda ffam hjá konu sinni. í Wall Street leikur Douglas hins vegar hinn mesta fjármálafant sem svífst einskis í græðgi sinni effir auði og völdum. Þetta er fýrsta hlutverkið sem hann leikur þar sem hann er ekki „góði kallinn" og segja gagn- rýnendur að honum farist það bara vel úr hendi. Hraður uppgangur Michael Douglas á stjörnuhiminn kvikmyndanna undanfarin ár, hefúr eðlilega vakið forvitni fólks á hvern mann þessi snaggaralegi og vinalegi leikari hefur að geyma. Góður skúrkur, segir pabbi Hlutverk Michael Douglas, sem hinn valda og peningagráðugi Gordon Gekko í myndinni Wall Street, er talsvert ólíkt öðr- um hlutverkum hans, þar sem Gekko er illmennið í myndinni, en fram að því hafði Douglas alltaf verið ímynd hetjunnar góðu, sem ekkert aumt mátti sjá. Af mörg- um var það talið áhættusamt fýrir Michael Douglas að breyta þessari ímynd sinni þar sem góðmennis- og hetjuímyndin hefúr verið honum afar arðbært veganesti í kvik- myndum. Þessu svarar Douglas: „Pabbi hefúr alltaf sagt að ég væri upplagt efni í skúrk. Hann sagði einu sinni við mig: „Þú átt effir að leika frábæran morðingja einhvern tíma. Þú ert mjög aðlaðandi, en þeir eiga þó eff- ir að komast að því hvers konar skúrkur þú í rauninni ert.“ Það var ekki átakalaust fyrir Michael Douglas að lifa sig inn í hlutverk skúrksins Gekko. Ýmsar sögur gengu um erfitt sam- starf hans og leikstjórnans Olivers Stone, en Douglas vill gera lítið úr þeim sögum. Hann segir að Stone hafl þvingað sig til að horfast í augu við sjálfan sig og leggja sig allan fram og gagnrýni leikstjórans hafi aðeins gert sig ákveðnari í að gera hlut- verkinu góð skil. „Hann þverneitaði að Frh. á bls. 62

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.