Vikan - 15.12.1988, Qupperneq 13
— Hefur þér aldrei dottið í hug að halda
námskeið fyrir hjón?
„Það eru milljón hlutir sem mér hefur
dottið í hug að gera. Sem stendur veit ég
ekkert til hvers uppstokkunin á starfscmi
minni kann að leiða. Almenningur hefur
verið með svo gífurlegar væntingar til mín
að ég hef ekki getað annað helmingnum af
því. Fólk hefur ætlast til að ég væri með
ókeypis símaráðgjöf, en þetta hefur vaxið
mér yfir höfuð, svo ég get ekki meira í bili.
Ég hef mjög gaman af að kenna og gæti
til dæmis alveg hugsað mér að halda eitt
„gamninámskeið" eða svo. Við gætum kall-
að það „Hvernig geturðu aukið kyntöffa
þína?“
Líkkistan í
menntaskólanum
.Annars get ég stundum orðið þreytt á
vanþroskanum sem kemur í ljós hjá
sumum. Ég var til dæmis fengin í einn
menntaskólann á dögunum til að flytja
fyrirlestur um öruggara kynlíf. Þegar ég
kom upp á sviðið var þar fyrir líkkista sem
einn nemandinn lá í. Krakkarnir voru fliss-
andi og fannst þetta greinlega sniðugt. Ég
harðneitaði að flytja fyrirlesturinn nema
kistan yrði fjarlægð af sviðinu, því ég
nennti ómögulega að taka þátt í þessum
gálgahúmor. Kistan var auðvitað fjarlægð
og ég flutti minn fyrirlestur. Ég held ég
geti fullyrt að þetta sé fyrsta fíflalega við-
bragðið sem ég varð vör við frá því ég
kom heim, ef undan eru skildar teikni-
myndir blaða og greinar undir dulnefh-
um.“
— En verðurðu þá ekki fyrir dónalegri
áreitni, svo sem símtölum?
„Það hringdu einn eða tveir þegar ég
var að byrja, en síðan ekki söguna meir.
Annar þeirra spurði hvort ég væri með
stutta verklega kennslu. Mér láðist alveg
að segja honum að erlendis starfa við hlið
„sex-therapista“ konur sem kenna listina
að elska.“
Tvenns konar kynlíf.
— Spilar kynlíf, að þínu mati, það stórt
hlutverk í hjónabandi að námskeið hjá þér
gæti leitt það af sér að hjón sem komin
væru að því að skilja myndu hætta við?
„Kynlíf er aðeins einn þáttur af ótal
mörgum í hjónabandi. Það er að vísu stór
þáttur. Gott kynlíf felst meðal annars í
opnum tjáskiptum, að fólk hafi næði til
samlífs, sé í afslöppuðu sambandi og um-
ffam allt tali saman um þessa hluti, opin-
skátt og hispurslaust. Gott kynlíf fer alls
ekki eftir því hversu oft í viku fólk gerir
það heldur byggir á innileika og hlýju.
„Það er til tvenns konar kynlíf, full-
nægjumiðað kynlíf og ánægjumiðað kynlíf.
Hið fyrra er eins og tröppur A—K. Þar er
alltaf sama atburðarásin, sem hefst á kossi
og endar á fullnægingu karls og/eða ekki
konu. Það má segja að þetta sé vélrænt.
Ánægjumiðað kynlíf byggir á sömu þátt-
um og hið fyrrnefhda. Þar eru allir þættirn-
ir settir í köku og fólk getur látið sér nægja
eina sneið í stað þess að taka hana alla í
hvert skipti sem það snertist. Þá lendir
fólk ekki í þeirri hefðbundnu rútínu sem
því finnst oft fullnægjumiðaða kynlífið
vera.“
— Hvað finnst þér um það sem sagt hef-
ur verið, að það sé eins konar kynlífsbylt-
ing að dynja yfir núna?
„Ég held að svo sé ekki. Það vakti mikla
athygli þegar ég kom til starfa og þá fór að
heyrast ýmislegt sem ekki hafði áður verið
sagt eða skrifað. Þetta kallar vafalaust á tal
um kynlífsbyltingu.
Ég hef skrifað greinar í Þjóðviljann að
undanförnu og tekið þar fýrir ýmislegt
sem ekki hefúr áður verið rætt opinber-
lega. Aðrir hafa svo séð um að taka hluta
úr þessum greinum og vekja þannig at-
hygli á þeim, eins og ég sé samnefhari fyrir
stór typpi og titrara. Þarna gleymist alveg
markmiðið, það er fræðslan. Til mín hafa
hringt konur sem hafa viljað ræða málin og
ffæðast um eitt og annað, þar á meðal titr-
ara. Þær sögðust alls ekki hafa þorað að fá
sér titrara áður en þetta hefði komið til,
þeim hefði þótt það hreint og beint klúrt."
— En hvað um sjálfa þig, lifir þú fúll-
komnu, teorísku kynlífi?
„Ég þekki sjálfa mig auðvitað miklu bet-
ur en ég gerði. En enginn þekkir sjálfan sig
til hlítar og ég lifi ekki fullkomnu kynlífi,
langt því ffá. Það er einfaldlega ekki til.
Þegar ég fór í nám gerðist auðvitað heil-
margt á skömmum tíma. Maður varð að
staldra við og endurmeta sig sem kynveru.
Og nú veit ég meira en ég vissi og kynlíf
mitt er betra en áður af því að ég hef
fræðst svo mikið. Nú, sem stendur hef ég
mikinn áhuga á að kynna mér andlegt kyn-
líf eins og það birtist í tantra-dulspeki. Ég
flutti fyrirlestur um þetta efni á Snæfells-
ásshátíðinni í sumar. Ég hef hug á að
endurflytja hann í Odda á næstunni."
- Og hver er svo ffamtíðardraumurinn?
Að komast í starf hjá hinu opinbera og
koma þar upp öflugri kynfræðslu?
„Ég gæti séð mig fyrir mér í hlutastarfi
hjá hinu opinbera, en ekki í fullu starfi, því
þá gæti ég ekki sinnt sköpunarþörfinni,
sem í mér býr, eins mikið. Ég vona hins
vegar að hið opinbera komi einhvern tím-
ann á fót bjargráðamiðstöð í kynfræðslu.
Ekki veitir af.“ □
NYR VALKOSTUR A
SUÐVESTURHORNINU
*))))
HUÓDBVLGJAN
FM 95,7
PÓSTHÓLF 908 - 602 AKUREYRI - S: 96 - 27714
27. TBL. 1988 VIKAN 1 3