Vikan - 15.12.1988, Page 31
Ragnhildur og Bryndís í dagstofunni.
„Það er mikill ' misskilningur að
kenna Jakobi um að Grýlumar hafi
hætt....“
múlur segi að maður eigi ekki að vera með
vinnustaðinn inni á heimilinu og blanda
saman heimilislífinu og vinnunni þá er það
bara regla sem gildir ekki í okkar tilfelli."
Áttræðir rokkarar
- Ragnhildur, við höfum nokkur dcemi
í sögunni um konur sem sp/widra hljóm-
sveitum. Yoko rústaði Bítlunum, Herdís
leysti upp Hálft í hvoru og svo framvegis.
Ert þú völd að því að Stuðmenn statfa nú
ekki lengur?
Það skríkir í söngkonunni. ,Ja, ég veit
það ekki,“ svarar hún loks. „Eru Stuðmenn
splundraðir? Ef Stuðmenn hætta endan-
lega verður mér sjálfsagt kennt um það.“
„Og ef Stuðmenn halda áfram verður
henni þakkað það,“ bætir Jakob við.
— Er það etidilega svo?
„Valgeir Guðjónsson orðaði það ein-
hvern tímann þannig að koma Ragnhildar
í hljómsveitina hafi virkað sem hið besta
þorskalýsi. Ég held að margt sé til í því.
Stuðmenn eiga náttúrlega níu líf en ég
held að þau fjögur sem að baki eru hefðu
ekki orðið jafn löng og ljúf ef við hefðum
ekki haft kvenmann innanborðs hin síðari
árin. En svo verðum við bara að bíða og sjá
hvernig hin fimm æxlast."
- Stuðmenn eiga setn sagt eftir að
kotna satnan á ný?
„Fimm sinnum," svarar Jakob stutt og
ákveðið. „Við höfum oft talað um það með
tilhlökkun að verða áttræðir rokkarar í
fúllu fjöri. Sovétmenn eiga sína fimm ára
áætlun. Við Stuðmenn vinnum eftir flmm-
tíu ára áætlun."
— En Stuðmenn eru sem sagt stikkfrí
eitts og er. Hvað er hins vegar framundan
hjá ykkúr á músíksviðinu?
„Þetta er bara spurning um skapandi
vinnu," svarar Jakob, „að halda líkamanum
og sáiinni í þannig ástandi...
„í allsherjar jafnvægi," skýtur Ragnhild-
ur ákaflega óhátíðlega inn í en raskar þó
ekki spámannslegu yfirbragði manns síns:
„ ... að maður geti látið eitthvað gott af
sér leiða. Einhverja nýja músík. Við ætlum
að vera dugleg að semja lög á næstunni og
svo ætlum við bara að vera dugleg við að
færast í fang fleiri upptökur, fleiri plötur
og hljómleikaferðir og jafnvel fleiri kvik-
myndir.“
— Er kvikmynd á teikniborðinu?
„Við erum alltaf að búa til bíó,“ segir
Ragnhildur.
,Já, í huganum," bætir Jakob við. „Svo
verðum við bara að bíða eftir rétta tíman-
um til að hefjast handa. Það verður að taka
mið af aðstæðum hverju sinni.“
— Hvernig eru aðstœður til sköþunar
ogframkvœtnda um þessar mundir?
„Tja, þær hafa oft verið betri," svarar
Jakob. „Bíómyndaframleiðsla stóð í blóma
þessi tvö til þrjú ár eftir að hún hófst að
nýju, 1979 til ’81 eða svo. Vorið svokall-
aða. Við erum, tel ég að upplifa veturinn
núna og verðum bara að vona að það komi
nýtt vor að honum loknum.
Ferill kvikmyndaframleiðslunnar er ekk-
ert ólíkur músík eða bara rekstri sjón-
varps- og útvarpsstöðva. Of mikið léttefni
kallar á eitthvað bitastæðara. Of mikið
amerískt afþreyingarefni í tveimur sjón-
varpsstöðvum kallar á bitastæðar íslenskar
kvikmyndir. Það er bara eins einfalt og það
er.“
- Hyggist þið vinna fyrír sjónvarp eða
breiðtjald?
„Væntanlega hvort tveggja."
s#-
Sérstaklega
vandað satin,
mjúkt og létt.
„Sjarmerandi"
satínnáttföt, jakki,
buxur og sloppur.
Fallegir litir,
mildir eða líf-
legir að vild.
ŒB AUGiySINGAPJONUSTAN / SIA
Gjöfin hennar
Pósthússtræti 13, sími 22477.
27. TBL. 1988 VIKAN 31