Vikan - 15.12.1988, Qupperneq 41
Þegar hér var komið sögu gerðu fæstir íslendingar sér vonir um stærri sig-
ur en annað eða þriðja sætið Lindu til handa — þó auðvitað hafi öllum
landsmönnum þótt hún hiklaust elga erlndi í fyrsta sæti. Á myndinni eru
t.v. ungfrú Spánn, Linda, ungfrú Venesúela, sem veðbankar höfðu spáð
sigri í keppninnl en komst þó ekki í neitt þriggja efstu sætanna, þá kemur
ungfrú BreUand, sem komst i þriðja sæU og loks ungfrú Kórea, sem náði
öðru sæU.
Þessi mynd var tekin á því augnabliki er tilkynnt var að Linda Pétursdóttir
væri Miss World. Islendingamir fagna ákaft - en á sviðinu stóð Linda Pét-
ursdóttir enn hreyfingarlaus og ekki búln að átta sig á þvi að hún hafðl
sigráð í keppnlnni.
Núna þegar þetta tölublað Vikunnar
kemur á markaðinn, er Linda nýkomin
heim eftir að hafa gegnt embættisskyldum
sínum sem Miss World í mánuð. í Lundún-
um hafa verið teknar af henni tugir þús-
unda ljósmynda og myndir af henni hafa
prýtt ótal blöð út um allan heim. Ballið er
samt rétt aðeins að byrja, allt næsta ár
verðu hún á þönum út um allan heim og
ótrúlegt að hún eigi eftir að ferðast annan
eins kílómetraíjölda um heiminn eftir að
hún hefúr skilað kórónunni til Miss World
1989.
Linda Pétursdóttir er fjórða íslenska
stúlkan á flmm árum, sem kemst í lokaúrslit
Miss World keppninnar. Á sama tíma hafa
íslenskar stúlkur einnig komist í fyrsta,
annað og þriðja sæti keppninnar um titil-
inn Ungfrú Skandinavía. Þennan góða
árangur síðustu ár má hiklaust þakka
vönduðum vinnubrögðum aðstandenda
Fegurðarsamkeppni íslands, góðri sam-
vinnu þeirra Baldvins Jónssonar og Ólafs
Laufdal, sem ekkert hafa til sparað við
keppnishaldið hér heima, þjálfun kepp-
endanna fyrir keppnina um titilinn Feg-
urðardrottning íslands og síðan áfram-
haldandi þjálfun þeirra stúlkna sem hér
komast í úrslit og halda utan til þátttöku í
keppni um alþjóðlega titla.
Lengi var framkvæmdastjórn keppninn-
ar í höndum Kristjönu Geirsdóttur, þá tók
Sif Sigfúsdóttir við og starfaði í eitt ár, en
núna síðast tók Gróa Ásgeirsdóttir mót-
tökustjóri á Hótel Borg við ffamkvæmda-
stjórninni. í viðtali við Vikuna skömmu
fýrir útkomu þessa tölublaðs kvaðst Gróa
þegar vera farin að líta í kringum sig eftir
þátttakendum í næstu keppni. Og allar
ábendingar væru vel þegnar.
{ lok febrúar verður keppt um titilinn
Ungfrú Reykjavík og um svipað leyti fer
keppnishaldið af stað úti á landi, en því
mun ljúka síðari hluta marsmánaðar. Úr-
slitakeppnin á Hótel íslandi fer svo að
venju fram á annan dag hvítasunnu.
Það samstarf sem tókst á milli Vikunnar
og Fegurðarsamkeppni íslands á þessu ári
varðandi kynningu á keppendum verður
ekki minna í sniðum á næsta ári. Kynning-
in fer fyrr af stað og verður ítarlegri. í lok-
in gefet lesendum Vikunnar svo kostur á
að greiða atkvæði, sem munu hafa visst
vægi þegar dómnefndin tekur til starfa og
fegurðardrottning íslands 1989 verður
valin.
Þeir sem vilja koma ábendinum á ffarn-
færi ættu ekki að draga það deginum
lengur. Ábendingum er annað hvort hægt
að koma símleiðis til Gróu á Hótel Borg
eða skriflega og þá helst með myndum ef
þess er kostur.
Er ekki að efa það, að fjölmargar íslensk-
ar stúlkur fýsi að taka þátt í Fegurðarsam-
keppni íslands eftir að hafa fýlgst með
ævintýrum Hólmfríðar á meðan hún bar
titilinn Miss World og hafa síðan fylgst að
nýju með íslenskri stúlku taka við sprotan-
um og kórónunni á þessu ári. □
27. TBL. 1988 VIKAN 41