Vikan


Vikan - 27.07.1989, Blaðsíða 21

Vikan - 27.07.1989, Blaðsíða 21
sýningin sem ég tók þátt í þegar ég kom hérna fyrst út í fyrravor. Þá hljóp ég í skarðið fyrir konu sem fór í barnsburðar- leyfi. Nú er hún mætt til leiks á ný og þá lauk mínu hlutverki þar.“ — Hefur fólk komið að heiman til að sjá þig dansa á sviðinu hér í Köln? „Ég á yndislega vini sem margir hafa komið hingað í heimsókn til mín og til að sjá mig dansa. Allir hafa í raun stutt mig ákaflega vel og það er gott að vita af því. Góður andi en mikil samkeppni Katrín stóð upp og náði sér í vatnsglas. Hún hefur þetta sérstaka göngulag sem einkennir ballettdansara — svífandi létt og svolítið útskeif. Hún settist á nýjan leik og leit á klukkuna. Ákveðið var að við notuð- um nokkra stund til þess að ganga um þetta skemmtilega listasalh, Wallraff Richartz, héldum um leið spjallinu áfram og kannski væri unnt að smella af henni nokkrum myndum. Blaðamaður hélt því áfram að svala for- vitni sinni um viðmælanda sinn annars vegar og ballettinn hins vegar og spurði Katrínu hvort henni þætti andrúmsloftið við ballettinn í Köln betra eða verra en hún hefði átt að venjast heima? „Mér finnst það mjög gott og mannlegt. Maður heyrir sögur annars staðar frá þar sem stjórnendur þjösnast á dönsurunum sínum eftir geðþótta. Þessi atvinnugrein getur verið feiknarlega grimm, einkum þar sem allir eru að reyna að ota sínum tota. Hér líður manni mjög vel. En þó andrúms- loftið í flokknum hérna sé mjög gott fann ég strax að það var af öðru tagi en ég átti að venjast heima. Hér flnnur þú fyrir sam- keppni, þú mátt aldrei láta bilbug á þér finna, þú verður að standa þig og vera sterkur hvað sem raular og tautar. Hér fer maður lítinn stuðning frá hinum, sem kemur náttúrlega til vegna samkeppninn- ar. Heima er meira um gagnkvæman stuðning að ræða.“ Við vorum komin upp á aðra hæð safnsins. „Stilltu þér upp þarna við mál- verkið eftir Salvador Dali,“ bað blaðamað- ur. Katrín sat fyrir eins og hún hefði aldrei gert neitt annað. Síðan voru spurningarnar látnar dynja á henni á nýjan leik. — Heima virðist dansflokkurinn vera í nokkrum vandræðum að fá til sín nægilega marga karldansara. Hvernig er hlutfallið hér? „f okkar flokki eru nefhilega miklu fleiri karlar en konur, sem er mjög fátítt. Jochen þykir skemmtilegra að semja fyrir karl- menn en auðvitað eru konur nauðsynlegar í öllum sýningum. Þegar hann setti upp „Ég dansa við þig“ í Þjóðleikhúsinu þurfti hann að bæta okkur upp með því að flytja inn tvo karldansara héðan.“ — Hvert er svo hlutfallið á milli Þjóð- verja og útlendinga í flokknum? „Hér eru allra þjóða kvikindi. Við erum tuttugu og fjórir dansarar frá þrettán löndum, svo ólíkum sem íslandi, Víetnam og Nýja-Sjálandi. í raun eru ekki nema ör- fáir Þjóðverjar þarna á meðal. í þessum dansflokkum er ávallt mikið gegnum- streymi af fólki. Dansarar fara gjarnan á milli balletthúsa til þess að öðlast sem mesta reynslu. Þýskaland virðist vera ákaf- lega vinsælt á meðal ballettdansara um þessar mundir. Hér eru líka svo margir dansflokkar, við liggur að hver einasti smábær á þessum slóðum búi yfir eigin ballettflokki." Nútímaballett meira gefandi - En hvort skyldi nú dansflokkurinn hennar Katrínar leggja meiri áherslu á klassískan ballett eða nútímaballett? „Við heyrum ekki til þeim hópum sem reyna að tileinka sér hinn sígiida ballett. Við dönsum að sjálfsögðu líka klaSsískan ballett en við leggjum meiri áherslu á nú- tímadansinn. Þó svo til dæmis Hnotubrjót- urinn sé sígilt verk hefur Jochen fert hann mikið í stílinn og þar með nær nútíman- um. f Wuppertal og Bochum eru til dæm- is flokkar sem nær einvörðungu helga sig dansleikhúsi. f raun má segja að við reyn- um að þræða hinn gullna meðalveg. Joc- hen semur mjög mikið fýrir flokkinn og auðvitað drögum við dám af honum. Sjálfri finnst mér meira gefandi að dansa nútímaballett en auðvitað er nauðsynlegt að byggja á hinum klassíska grunni í dans- inum. Stundum finnst mér eins og þessi gamli, klassíski dans sé orðinn svolítið staðnaður. Nú orðið búa dansarar yfir svo mikilli tækni og gamli ballettinn er einmitt byggður á henni. Því finnst dönsurum klassíski ballettinn vera góður sem akró- batík, til þess að koma fimi sinni og tækni á framfæri, en hann vantar á hinn bóginn eitthvað til að gefa áhorfendum. Dansar- ann hvetur hann heldur ekki til sköpunar, eins og nýi ballettinn sem er í raun meira „leikhús" eins og við köllum það. í íslenska dansflokknum höfúm við ávallt reynt að halda okkur við hinn klass- íska grunn en reynt um leið að spreyta okkur á nýjum straumum og stefhum í list- greininni. Um árið settum við upp sýningu sem nefhdist „Stöðugir ferðalangar". Þá hófst spennandi þróun sem flokkurinn fylgir enn sem betur fer. Gallinn er bara sá að hann á í stöðugri baráttu um tilverurétt sinn. Starfsemi hans er háð svo mörgum þáttum, eins og áhorfendafjölda, leikhús- inu, hversu mikið flokkurinn fær að sýna þar og svona mætti lengi telja.“ Ræturnar í íslenska dansflokknum Og auðvitað hlýtur síðasta spurningin að hljóða svo: — Kemur þú til með að dansa aftur heima? ,Já, auðvitað stefhi ég að því. Ég hef heldur ekki bundið mig hér nema næsta starfsár. Þegar ég byrjaði hér fýrir ári var ég staðráðin í því að vera bara í eitt ár. Það er eins og eitthvað togi í mann. Nú hef ég ffamlengt dvöl mína hér í Köln um stund- arsakir en að því búnu mun ég að öllum líkindum koma heim. Ég verð samt að viðurkenna að hvað at- vinnuna snertir er ekkert sérstaklega spennandi að fara heim í bráð. Þar ríkir þessi mikla sýningafæð en um leið og það ástand breytist vildi ég langhelst mega dansa þar. Auðvitað eru rætur mínar í ís- lenska dansflokknum og því er sárt að þurfa að yfirgefa hann til þess að geta þroskað hæfileika sína. Mér hefur líkað mjög vel að búa hér í Köln. Borgin er vinaleg en ég verð að segja það eins og er að mér finnast Þjóð- verjar kannski ekki svo mjög skemmtileg- ir. Það er vafalítið vegna þess að ég hef ekki lagt mig nægilega ffarn við að kynnast þeim. Samstarfsfólk mitt er flest útlending- ar eins og ég, þess vegna tölum við ensku saman — og þýskan verður út undan.“ Eftir að hafa gengið nokkra stund um listasafhið var haldið á ný út í iðandi mannlífið. Klukkan var farin að ganga fimm og innan skamms þurfti Katrín að vera mætt til að undirbúa sýningu kvöldsins. Það var engan skrekk að sjá á henni þó hún ætti eftir að fara með stærsta hlutverkið í Hnotubrjótnum fýrir fullu húsi eftir örfáar klukkustundir. Sýningunni verður ekki lýst hér í smá- atriðum. En hún var feiknarlega skemmti- leg og kröftug. Landa okkar, Katrín Hall, var sjálfri sér og uppruna sínum til mikils sóma. Enda ætluðu áhorfendur aldrei að geta hætt að klappa fyrir henni að sýningu lokinni. Þá var gaman að vera íslendingur í miðjum salnum í Óperunni í Köln. □ 15. TBL 1989 VIKAN 21
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.