Vikan - 27.07.1989, Page 32
nÁnsKEiÐ
Bátsferð út á s jó
minninganna
- getur hjálpað þér í daglega amstrinu
Iseptember á síðasta ári settist ég á
skólabekk einu sinni enn. Eins og títt
er þá gerði ég mér ákveðnar hug-
myndir um það hvað ég vildi læra og
á hvaða sviði í þjóðfélaginu ég myndi nota
ffóðleikinn. En það tilheyrir þroskaferlin-
um að áherslur breytast og nýjar hug-
myndir skjóta upp kollinum.
Ég hef verið nemandi í Emerson Col-
lege í Sussex-héraði í Englandi síðastliðið
námsár. Ég valdi deild í þeim skóla sem
heitir Centre for Social Development. Sú
deild býður upp á haustönn sem ber heit-
ið „Einstaklingurinn og samfélagið",
vetrarönn sem heitir „Að mæta manneskj-
unni — heilbrigði í félagslegum samskipt-
um“ og vorönn sem kallast „Sýn í verki“. Á
vetrarönninni er einnig 12 vikna nám-
skeið fyrir ráðgjafa sem vilja vinna með
mannspekilegar aðferðir.
Fólkið sem kemur í þessa deild er ífá 25
til 70 ára og hefúr áhuga á því að læra
meira um manneskjur, samskipti og þróun
í tengslum við kenningar Rudolf Steiner.
Sumir einbeita sér að fyrirtækjaþróun, við-
talstækni og ráðgjöf, aðrir hafa meiri áhuga
á nýjum hliðum á fúllorðinsfræðslu. Marg-
ir ætla sér að eiga frumkvæði að nýjum
tegundum fýrirtækja með félagslegar að-
ferðir í samskiptum innbyrðis og við sam-
félagið. Svo eru þeir einstaklingar sem
vilja einfaldlega auka skilning sinn á mann-
eskjunni svo þeir megi vinna betur með
öðru fólki. Ég var í hópi þeirra síðast-
nefndu en hafði jafnffamt áhuga á þeirri
hlið sem snýr að starfsmannahaldi og
ráðgjöf.
Smám saman varð mér ljóst að námsferl-
ið í þessari deild var byggt upp á óvenju-
legan hátt og endurspeglaði í verki þær
kenningar og ffæðslu sem okkur var miðl-
að af. í fúllorðinsffæðslu, sem þarna fór
fram voru þátttakendur aðstoðaðir við að
skilja sjálfa sig og samfélagið og örvaðir til
þátttöku í atvinnulífmu á ferskan hátt. Sem
TEXTI: SIGRÚN HARÐARDÓTTIR
fyrrverandi kennara þótti mér aðferðin lif-
andi, gefandi og tímabær. Ég fór að vinna
með öðrum nemendum að námskeiða-
haldi fyrir fullorðna, sem miðaði að aukn-
um skilningi á þroskaferli mannsins, á-
kvarðanatöku, tímamótum og innri
kreppu, flokkum lundernis, persónulegum
samböndum og fleira. Á næsta ári held ég
áfram náminu og jafhframt reikna ég með
að vinna ein og með öðrum framhalds-
nemum við deildina að ffekara námskeiða-
haldi víða um Evrópu og Norðurlöndin,
þar á meðal á íslandi.
Á öllum námskeiðunum er unnið með
æviferil einstaklingsins. í fýrsta lagi kynn-
ast þátttakendur þeim þroskastigum sem
eru öllum eiginleg og við hverju megi
búast. í öðru lagi vinnur hver þátttakandi
með eigin feril. Námskeiðin eru í formi
fyrirlestra, hópvinnu, einstaklingsvinnu og
listar.
Úr fortíð í framtíð
— æviferilsnámskeið
Æviferillinn skiptist í innri og ytri feril,
það er ytri atburði og starfsferil (þar á
meðal húsmóður- og uppeldisstarf) og
persónulegan þroskaferil. Mjög róttækt
dæmi um mismuninn, sem getur verið á
þessum tveimur brautum, er Mózart, sem
skildi eftir sig ódauðleg tónverk, sem
milljónir manna njóta, en náði ekki að
þroskast sem manneskja og réð engan veg-
inn við persónulegt líf sitt. Auðvitað er
þessi mismunur ekki jafnáberandi hjá
öllum. En öll göngum við í gegnum erfið
tímabil innri átaka og ákvarðana og oft er
okkur það hulin ráðgáta hvaðan þessi ó-
ánægja kemur mitt í ytri velgengni. Stund-
um ýta ytri aðstæður okkur út í breytingar
sem við skiljum ekki ástæðuna fýrir.
Hvernig bregðumst við við þessum breyt-
ingum? Hvernig tökum við ákvarðanir?
Undir hvaða kringumstæðum beitum við
viljanum og hvenær reynist okkur það ó-
kleift?
Til þess að takast á við framtíðina verð-
um við að skilja fortíðina. Hver er ég?
Hver mótaði mig? Varð ég af einhverjum
þroskaþætti sem hindrar mig nú? Hvaða
lífshrynjandi var mér nauðsynleg í æsku?
Hvar er hún nú og svo framvegis.
Þetta námskeið hefur einnig verið notað
í tengslum við meðferð og hugarfar fólks í
peningamálum. Þá er peningaferillinn
skoðaður.
Stuðningshópar við krabbameinssjúkl-
inga hafa fengið fýrrverandi nema við skól-
ann til þess að nota þessa aðferð við að
skoða sjúkdómssögur og tengja þær
við þroska, breytingar, lífsmáta, lífsskoðun
og ytri og innri kreppu.
Að frelsa undan fortíðinni
Með því að skoða samskipti okkar við
foreldra, systkini og yfirmenn á myndræn-
32 VIKAN 15. TBL 1989