Vikan - 27.07.1989, Side 67
5TJ0RNUMERKI
Ljónið og ástin
Eigir þú ljón fyrir aðdáanda
kemst þú ekki hjá því að vita
það. Hann er tilfinningaríkur,
ákafúr elskhugi sem getur íátið
sína heittelskuðu halda að hún
sé miðpunktur alheimsins.
Hann hælir henni og hrósar
mikið en það þýðir ekki að
ætla sér að fara út með ljóninu
og vera ekki í sínu fínasta
pússi. Rétt er að leggja sig
heldur meira fram en venju-
lega því ljónið ætlast til þess.
Ljónið sem vinur
Maður skemmtir sér kon-
unglega með ljóninu og það er
þægilegt að eiga það að vini.
Þegar kemur að því að ljónið
skuli endurgjalda gestrisni þá
er það gert með miklum glæsi-
brag. Það er ástæðulaust að
óttast að ekki sé hægt að
standa því jafhfætis á þessu
sviði eða koma sér í fjárhags-
vandræði til þess að endur-
gjalda velgjörðir ljónsins, því
SÍÐARI HLUTI:
Þannig ew Ijónið
líður nefnilega best þegar það
fáer að gefa og þegar það sér að
gjafirnar eru metnar. Sjái ljón-
ið að vinunum gengur ekki allt
of vel að skipuleggja líf sitt
hættir því til að grípa inn í og
leiðbeina. Ljónið vill vel en
það getur þó orðið einum um
of forvitið og afekiptasamt. Sé
því bent á það tekur það slíku
vel. Það er alltaf tilbúið að
biðjast afeökunar og sendir
gjarnan blóm til þess að sýna í
verki að það sér eftir því sem
það hefúr gert.
Ljónið í
daglega lífinu
Ljónin eru mjög viðkvæm
og viðkvæmari en flesta
grunar. Það kemur kannski
ekki fram í fýrstu en þau eru
auðsærð og þá er ekki aðeins
um tilgerð að ræða eða flótta
frá raunveruleikanum heldur
er þessi tilfinning raunveruleg.
Vel getur verið að ákafinn sé
einn besti eiginleiki ljónsins
og ljónið er yfirleitt mjög
glaðlynt og bjartsýnt en oft að
ástæðulausu. Ljónin ættu að
gæta sín á þessu því afleiðingin
getur verið sú að þegar á móti
blæs verða þau niðurdregnari
og þunglyndari en margir aðr-
ir. Þetta geðslag ljónsins minn-
ir einmitt á skyndilega sumar-
rigningu sem hreinsar loftið
og kælir. En þetta líður fljótt
hjá, ekki síst ef vinur segir fá-
ein hressileg orð eða kemur
með smágjöf. Já, það þarf
kannski ekki meira en kaffi-
bolla til þess að fá sólina til að
gægjast fram milli skýjanna á
nýjan leik.
Ljónið er mjög dramatískt í
framkomu og því hættir til að
setja á svið smáleikþætti í tíma
og ótíma. Ljón, sem er ekki í
fúllkomnu jafnvægi, reynir að
komast í sviðsljósið og vekja á
sér athygli á allan mögulegan
hátt en betur sett ljón lætur
sér nægja að skemmta sjálfú
sér og vinum sínum með smá-
uppákomum. Ljónið hefur
mikla þörf fyrir að tjá sig og
það með ýmsu móti. Það getur
haft gaman af að dansa eða
mála og það gerir það hvort
sem það gerir það vel eða illa
og þeir sem ætla að gefa ráð
eða gagnrýna geta alveg sleppt
því.
Ljónið og
hjónabandið
Ljónin verða að fara varlega
í sakirnar í hjónabandinu þar
sem þau eru svo ákveðin. Það
er ekki auðvelt fýrir unga
stúlku að giftast Ijóni sem er
drottnunargjarnt og stjórn-
samt.- Konur í ljónsmerkinu
verða að læra að vera eigin-
konur - þær vilja ráða en
verða að gera það svo lítið beri
á. Ljónið sem eiginmaður
verður að gæta þess að vera
ekki of drottnunargjarnt við
konu sína en um leið er rétt að
hún geri sér grein fyrir því að
hvað sem ljónið kann að segja
þykir því svo sannarlega vænt
um konu sína.
Hrúturinn
21. mars - 19. apríl
Margar frístundir og
óvenjumikið samband við kunn-
ingjana hressa þig mikið og þú
lítur bjartari augum á hversdags-
leik tilverunnar. Þú er spenntur
og eftirvæntingarfullur, en farðu
samt rólega.
Nautið
20. apríl - 20. maí
Þú ert í tímaþröng en
tekst þó að koma öllu af í tæka
tíð. Þú vinnur á þitt band per-
sónu er þú álítur mikils virði að
njóta stuðnings frá. Fjárhagslegir
erfiðleikar úr sögunni um tíma.
Tvíburarnir
21. maí - 21. júní
Annir þínar eru of miklar
þannig að þú vinnur verk þín
ekki eins vel og æskilegt er.
Eyddu ekki miklum tíma I þras,
það þýðir ekki að deila við dóm-
arann. Þú skemmtir þér vel á
laugardag.
Krabbinn
22. júní - 22. júlí
Þú gefur kunningja þín-
um hugmynd sem hann gerir sér
mat úr. Þú færð hluta af vinnu
þinni launaðan í hlunnindum. Þótt
þú teflir á tæpt vað eru miklar
líkur á að þú hafir heppnina með
þér.
Ljónið
23. júlí - 22. ágúst
Fjölskyldu þinni bætist
eign sem þarfnast nokkurrar
umönnunar, en veitir ykkur öllum
mikla ánægju. Þú ert óvenju af-
kastamikill heima fyrir. Eldri kona
leitar aðstoðar þinnar. Happatala
fjórir.
Meyjan
23. ágúst - 22. sept.
Þú ert ósanngjarn og
ættir samkvæmt samvisku þinni
að skera niður fullyrðingar þínar
um ákveðið efni. Þú fyllist mikl-
um eldmóði við björgun verð-
mæta. Þú ert dálítið utan við þig
og taugaóstyrkur.
Vogin
23. sept. - 23. okt.
Hugmyndir um breyting-
ar á húsnæði eru ofarlega á
baugi. Það ríður á að framkoma
þín sé fyrsta flokks, það er ekki
nóg að hæfileikarnir séu fyrir
hendi. Þú verður fyrir töfum á
ferðalagi.
Sporðdrekinn
24. okt. —21. nóv.
Þú' ert dálítið kvíðinn
vegna verks sem þú hefur tekið
að þér en skortir þjálfun til að
hagstætt geti kallast. Kunn-
ingjarnir bera upp við þig tillögu
sem þú skalt íhuga vel.
Bogmaðurinn
22. nóv. - 21. des.
Þú hefur nýlokið verk-
efni, sem hefur reynt mjög á
kraftana, og ert því ekki vel bú-
inn til nýrra átaka. Gefðu þér
tíma fyrir sjálfan þig. Þú færð
þaulsætinn gest.
Steingeitin
22. des. - 19. janúar
Þú ferð í sendiferð sem
verður mun skemmtilegri en við
var að búast. Þú hagnast vel á
vöruskiptum. Þú tekur virkan
þátt í áhugamáli félaga þíns. Það
er óvenju rólegt á vinnustað.
Vatnsberinn
20. janúar - 18. febrúar
Þú ert mjög hamingju-
samur og ánægður með lífið, en
þú ert of þreyttur. Óvænt happ
um miðja vikuna léttir af þér
nokkurri byrði. Gleymska annarra
gefur þér frest til að leggja hlut-
ina niður fyrir þér.
Fiskarnir
19. febrúar - 20. mars
Skemmtileg vika í
vændum. Þú færð að sjá, heyra
og reyna ýmislegt er þig hefur
lengi dreymt um að kynnast. Um-
gengni við fjölskylduna mætti
vera meiri. Skuldheimtumenn eru
nokkuð aðgangsharðir.
5TJORNU5PA
15. TBL 1989 VIKAN 65