Vikan - 10.08.1989, Blaðsíða 4
EFNI5YFIRUT
k
VIKAN 10. ÁGÚST 1989
16. TBL.51.ÁRG.
VERÐ KR. 235
VIKAN kostar kr. 180 eintakið í
áskrift. Áskriftargjaldið er innheimt
sex sinnum á ári, fjögur blöð í senn.
Athygli skal vakin á því að greiða
má áskriftina með EURO eða VISA
og er það raunar æskilegasti
greiðslumátinn. Aðrir fá senda
gíróseðla. VIKAN kemur um sinn út
aðra hverja viku. Tekið er á móti
áskriftarbeiðnum í síma 83122.
Utgefandi:
Sam-útgáfan
Framkvæmdastjóri:
Sigurður Fossan Þorleifsson
Auglýsingastjóri:
Ingvar Sveinsson
Ritstjórar og ábm.:
Þórarinn Jón Magnússon
Bryndís Kristjánsdóttir
Aðstoðarframkvæmdastjóri:
Pétur Steinn Guðmundsson
Höfundar efnis í þessu tölublaði:
Bryndís Kristjánsdóttir
Gunnlaugur Rögnvaldsson
Sigrún Harðardóttir
Þórarinn Jón Magnússon
Sturla Birgisson
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
Hjalti Jón Sveinsson
Guðmundur Sigurfreyr Jónasson
Þórey Einarsdóttir
T.E. Brooks
Guðjón Baldvinsson
Þorsteinn Eggertsson
Niels Bonnik
Þorsteinn Erlingsson
Pétur Steinn Guðmundsson
Donna Dawson
Arnþór Hreinsson
Gísli Ólafsson
Svandís Hauksdóttir
Ljósmyndir í þessu tölublaði:
Katrín Elvarsdóttir
Gunnlaugur Rögnvaldsson
Magnús Hjörleifsson
Egill Egilsson
Hjalti Jón Sveinsson
Björn Hróarsson o.m.fl.
Útlitsteikning:
Þórarinn Jón Magnússon
Setning og umbrot:
Sam-setning
Filmuvinna, prentun, bókband:
Oddi hf.
Forsíðumyndina tók
Gústaf Guðmundsson af
Kristínu Ingvadóttur.
Förðun: Irene Jónsdóttir.
Hárgreiðsla: Ari Alexander
Hár og snyrtingu.
6 Margrét Ákadóttir er ein af
okkar bestu leikkonum í dag.
Um þessar mundir fer hún með
annað aðalhlutverkið í Shake-
speare verkinu „Macbeth" sem
AlþýðuleiKhúsið sýnir í Óper-
unni. Vikan átti fróðlegt og
skemmtilegt viðtal við Margréti
rétt fyrir frumsýninguna.
10 Parísarferð verðlaunahaf-
anna í lesendakönnun Vikunnar
í tengslum við skafmiðaleik
blaðsins varð að sjálfsögðu hin
ævintýralegasta. Það voru
mæðgur úr Hafnarfirði sem fóru
í ferðina ásamt blaðamanni og
Ijósmyndara Vikunnar. í þessari
Viku birtist fyrsti hluti ferðafrá-
sagnarinnar.
14 Efri árin eru í margra augum
afar kvíðvænleg. Aðgerðar-
leysið eftir að horfið er úr at-
vinnulífinu skelfir þá. En slíkt er
með öllu ástæðulaust eins og
kemur fram í þrem viðtölum
sem Vikan átti við þrjá eldri
borgara sem hafa fundið sér
ýmislegt áhugaverf til þess að
fást við á efri árunum.
18 Meistarakokkarnir í Fram-
anda gefa lesendum að þessu
sinni uppskriftir að spínatsalati
og djúpsteiktum smokkfiski.
4 VIKAN 16. TBL. 1989
19 Hvernig tala karlmenn um
konur sín á milli? Vikunni lék
forvitni á að komast að hinu
sanna og spurðist fyrir.
20 Er hestamennska karla-
sport? Blaðamaður Vikunnar
brá sér á fslandsmótið í hesta-
íþróttum, sem haldið var I Borg-
arnesi fyrir skömmu og gaf sig á
tal við sex konur sem þar voru
meðal keppenda.
24 Sumarbrosið breikkar þeg-
ar maður virðir fyrir sér þær Ijós-
myndir sem hlotið hafa viður-
kenningu í Ijósmyndasam-
keppni Vikunnar og Kodak Ex-
press Gæðaframköllunar. Fjór-
ar bráðskemmtilegar Ijósmyndir
birtast í þessari Viku - og það er
ekki allt búið enn!
26 Þjálfaðu talröddina. Þú get-
ur þroskað með þér tilfinningu
fyrir hljóði og fundið fyrir rödd-
inni á algjörlega nýjan og öðru-
vísi hátt.
29 Helgidómur Hitlers nefnist
síðari grein Vikunnar um dul-
spekiáhuga Hitlers, en hann
sagði eitt sinn: „Ný öld dulspeki-
legrar túlkunar á tilverunni er í
vændum, túlkunar á máli viljans
en ekki vitsmunanna."
32 Atvinnuleit reynir svo sann-
arlega á fólk. Vikan birtir grein
um það hvernig heppilegast er
að bera sig að.
36 Kiækir karla er yfirskrift
greinar Paul Bryers rithöfundar,
sem ekki hefur farið varhluta af
uppgangi kvenna á vinnumark-
aðinum. Hann ákvað að kanna
margvíslegar aðferðir til þess
að ná sér niðri á konum. Ef til
vill kannast einhver við þá karla-
klæki sem hann segir frá.
38 Smásagan Óboðinn gestur
er eftir T.E. Brooks. Hve margir
snilldarlega úthugsaðir, vand-
lega skipulagðir og hárná-
kvæmir glæpir skyldu farast fyrir
á ári hverju sökum þess að
aðalmaðurinn til framkvæmd-
anna fær allt í einu tannpínu,
þursabit eða einhvern annan
slæman kvilla, einmitt þegartil á
að taka?
41 Létt krossgáta.
42 Er ísland á tveim heimsálf-
um? Er hægt aö fallast á þá
kenningu, að Atlantshafið sé
smám saman að breikka og ís-
land að gliðna þannig að vestan
sprungunnar sé Ameríka, en
Evrópa austan megin?
44 Sekur eða saklaus? Nú er
ég látinn. Ég get sagt sannleik-
ann. Og sannleikurinn er að ég
hef verið líflátinn fyrir morð sem
ég hef ekki framið. Smellin
smásaga eftir Niels Bonnik.
45 Færðu hellu fyrir eyrun í
Kömbunum? Annað væri ekki
eðlilegt eins og fram kemur í
fróðleiksmolum úr heilsufræð-
inni.
46 £r nafnið þitt á listanum á
blaðsíðu 46? Ef svo er getur þú
sótt til Vikunnar nýju hljómplöt-
una Bræðralög sem Steinar var
að gefa út. Það eru þrjátíu nöfn
á listanum Aðgættu hvort þitt
nafn sé þar á meðal.
48 Jafnvel veikustu neglur
geta orðið langar, segir í grein í
þessari Viku. Þar er sagt frá
uppbyggingarkúr fyrir neglur og
hvernig hægt er að láta nagla-
lakkið endast og endast.
49 Getur þú rekið fyrirtæki?
Leiki þér forvitni á að fá úr því
skorið skaltu spreita þig á per-
sónuleikaprófinu í þessari Viku.
54 Gauti heitir ný teiknimynda-
saga Arnþórs Hreinssonar, sem
fór af stað í síðasta tölublaði
Vikunnar.
56 Krossgáta.
57 Stjörnuspá.
58 Prjónauppskrift að skraut-
legri peysu fyrir tíu ára telpu.