Vikan - 10.08.1989, Blaðsíða 59
Hrúturinn
21. mars - 19. apríl
Eitthvað óvænt gerist í
peningamálunum hjá þér svo þú
getur farið að anda léttar og
hætt að hafa stöðugar áhyggjur
af krónunum, sem þú þarft að
láta frá þér. Líklega verður þér
boðið f skemmtilegt samkvæmi
um helgina.
Nautið
20. apríl - 20. maí
Þig langar mikið til þess
að breyta til um þessar mundir
og vikan lofar góðu um að þér
gefist tækifæri til þess.
Tvíburarnir
21. maí - 21. júní
Það þýðir ekki fyrir þig að
leita á náðir annarra til að leysa
vandamál þín, því þú verður að
leysa þau ein(n) og upp á eigin
spýtur.
Krabbinn
22. júní - 22. júlf
Einhver verður til þess að
móðga þig að því er þér finnst,
en láttu þér fátt um finnast því sá
hinn sami á ekki mikið undir sér
og viðhorf hans til þín geta á
engan hátt skaðað þig. Eyddu
kvöldunum við að sinna áhuga-
málum þínum.
Ljónið
23. júlí - 22. ágúst
Þér hefur lengi fundist
þörf á því að lagfæra svolítið
nánasta umhverfi þitt og núna f
vikunni ættirðu að hafa aðstöðu
til að láta verða af því að gera
nauðsynlegustu úrbætur. Laug-
ardagurinn er líklega einn besti
ferðadagur ársins hjá þér.
Meyjan
23. ágúst - 22. sept.
Það er engu líkara en
hvert happið reki annað hjá þér f
þessari viku og vonandi kanntu
að gera þér mat úr því. En um
leið verðurðu að gæta þess að
aðrir líði ekki fyrir velgengni
þína. Heillalitur er Ijósgrár.
Vogin
23. sept. - 23. okt.
Þú getur lagt merkilegu
máli lið þitt á einkar skemmtileg-
an hátt á mánudagskvöldið og
þá skalt þú ekki setja þig úr færi
að gera það. Einhverjar blikur eru
á lofti á vinnustað, en þær
hjaðna von bráðar.
Sporðdrekinn
24. okt. - 21. nóv.
Einhver úlfúð hefur risið
milli þín og nágranna þinna og
skaltu reyna að verða fyrri til að
jafna ágreininginn, því að annars
getur hann haft óbætanlegar af-
leiðingar, bæði fyrir þig og ná-
grannana.
Bogmaðurinn
22. nóv. - 21. des.
Þessi vika er einkar
skemmtileg hjá þeim, sem fæddir
eru milli tíunda og fimmtánda
dags desembermánaðar og þeir
eiga eftir að minnast þessara
daga lengi. Hinir eiga líka
skemmtilegar stundir í þessari
viku.
Steingeitin
22. des. - 19. janúar
Nú leikur allt í lyndi hjá
þér og leiðindin sem þú varðst að
líða í stíðustu viku, eru algerlega
rokin út i veður og vind. Reyndu
að gera allt, sem þú getur til að
viðhalda góða skapinu, því það
er gulls ígildi.
Vatnsberinn
20. janúar - 18. febrúar
Nánir vinir þínir leita á
náðir þínar og þá gefst þér tæki-
færi til að reynast sannur vinur í
raun. Þetta tækifæri skaltu ekki
láta ganga þér úr greipum, því
að vinir þínir munu launa þér
hjálpina margfalt síðar.
Fiskar
19. febrúar - 20. mars
Nú virðist margt benda til
þess að loks sé komið að því, að
gamli draumurinn þinn rætist og
þú getir veitt þér allar þær lysti-
semdir sem þig er búið að
dreyma svo lengi um. Gakktu
samt hægt inn um gleðinnar dyr.
5TJÖRMU5PÁ
16.TBL 1989 VIKAN 57