Vikan - 10.08.1989, Blaðsíða 51
MÆFILEIKAPROF
Gætir þú rekið
eigið fyrirtæki?
EFTIR DONNU DAWSON
ÞÝÐING:
SIGRÚN HARÐARDÓTTIR
Spurningin er hvort allt
sem þarf sé vilji, tími
og hæfileikar. Hér eru
nokkrar spurningar
handa upprennandi
atvinnurekendum af
kvenkyninu.
1. Til þess að hefja rekstur
fyrirtækis þarf að sækja um
bankalán. Þú:
a) Hefur manninn þinn með
þér til stuðnings.
b) Ógnar bankastjóranum
með þekkingu þinni á við-
skiptum.
c) Fellur saman og lætur und-
an um leið og hann segir nei.
d) Ferð til bankastjóra með vel
ígrundaðar hugmyndir um
hvað þú ætlar þér og með fjár-
hagsáætlun í hendinni.
2. Þú þarfnast ráðlegginga á
sviði fjármála, viðskipta eða
markaðssetningar til þess
að koma fyrirtækinu á lagg-
irnar. Þú:
a) Leitar í símaskránni að
endurskoðendum.
b) Spyrst fyrir hjá öðrum sem
reka svipað fyrirtæki sem
gengur vel hvar þeir fengu
aðstoð. '
c) Leitar til stofhana sem veita
ókeypis upplýsingar til
atvinnurekenda.
d) Reynir að krafla þig fram úr
þessu sjálf til þess að spara
peninga.
3. Þú vilt hefja rekstur á
fyrirtæki á sviði sem þú
þekkir ekkert til. Þú:
a) Hefur rekstur og lærir af
eigin reynslu.
b) Öðlast hæfhina sem þú
þarfhast með því að sækja
námskeið.
c) Lest allar þær bækur sem þú
finnur á þessu sviði.
d) Færð þér fyrst vinnu hjá
einhverjum á þessu sviði til
þess að öðlast reynslu.
4. Þú vilt hefja rekstur fyrir-
tækis en átt ung böm. Þú:
a) Hefur reksturinn heima hjá
þér.
b) Setur börnin í dagvistun
þótt það verði dýrt.
c) Biður mömmu þína eða
annan ættingja að líta eftir
þeim.
d) Fæðr manninn þinn til þess
að taka meiri ábyrgð á þeim.
5. Fjölskyldu þinni finnst
henni ógnað með athygl-
inni sem þú veitir nýja
fyrirtækinu þínu. Þú:
a) Segist eiga rétt á því að hafa
tíma fyrir þig.
b) Reynir að hafa fjölskylduna
með í ráðum eins og hægt er.
c) Lætur sem þú heyrir ekki
kvartanimar og vonar að hún
venjist þessu.
d) Skipuleggur vinnutímann
þinn þannig að hann henti
öðrum fjölskyldumeðlimum
eins og hægt er.
6. Þú kemst að því að þú
munir ekki geta framfleytt
þér meðan þú kemur fyrir-
tækinu á laggirnar. Þú:
a) Ákveður að peningarnir,
sem renna til fyrirtækisins, séu
heilagir og finnur aðrar leiðir
til þess að fá peninga til fram-
færsfu.
b) Reynir að spara eins og
hægt er þótt útgjöldin verði
mikil fyrst í stað.
c) Notar hluta af peningunum
sem þú fékkst að láni til fýrir-
tækisins.
d) Flytur inn til vina eða ætt-
ingja sem krefjast lítillar eða
engrar leigu þangað til fýrir-
tækið fer að bera sig.
7. Góð markaðskönnun
þýðir:
a) Að komast að því hvað
verðið er hjá keppinautum og
hafa það lægra.
b) Að komast að því hver eftir-
spumin er eftir vöru/þjónustu
þinni og hvort fólk muni vilja
borga uppsett verð.
c) Að selja vöm/þjónustu þína
eins mörgum og hægt er.
d) Að spyrja fjölskyldu þína
eða vini álits um vöru/þjón-
ustu þína.
8. í öðru bæjarfélagi hefur
öðrum aðila tekist vel með
sams konar hugmynd og
þú hefur. Þú:
a) Gleymir henni og reynir að
finna þér annað að gera.
b) Hermir nákvæmlega eftir
honum á þeim forsendum að
hann þjóni öðru svæði. -
c) Aðlagar hugmynd þína svo
að hún sé öðruvísi.
d) Reynir að betmmbæta vissa
þætti í þessum vel heppnaða
rekstri með því t.d. að bjóða
upp á fleiri liti, aukin gæði,
áreiðanlegri afgreiðslu eða
lægra verð.
9. Þú ákveður að fá þér fé-
laga í fýrirtækið. Þú:
a) Biður góða vinkonu/vin að
taka þátt í fýrirtækinu.
b) Biður ættingja þinn.
c) Finnur einhvem sem passar
við hæfileika þína, hefur rekst-
ur og vonar það besta.
d) Gerir skriflegan samning
við manneskjuna sem þú
velur.
EINKUNNAGJÖF
Merktu við svörin þín við
hverri spumingu. Við 2., 3.,
5. og 6. spurningu eru tvö
af svörunum rétt og skal
því merkja við tvö svör við
þeim. Þú færð eitt stig fyrir
hvert rétt svar.
Frh. á bls. 52
16. TBL 1989 VIKAN 49