Vikan - 10.08.1989, Blaðsíða 28
ÞÝÐING: SIGRÚN HARÐARDÓTTIR
Þú ert að búa þig undir mikilvægt
| viðtal hjá vinnuveitanda. Þú hef-
" ur valið viðeigandi fatnað, kynnt
þér fyrirtækið, undirbúið góðar
spumingar. Þá ertu tilbúin, ekki satt? Nei,
ekki alveg. Það gæti vel verið að þú hafir
gleymt einhverju mikilvægu, röddinni.
Röddin er nefnilega mikilvægur hluti af
framkomu þinni og hefur bein áhrif á það
hvemig fólk bregst við þér.
Röddin er oft sá þátturinn í heildarí-
mynd manns sem mest er vanræktur. Áður
en þú getur lært að betmmbæta hana
verðurðu að verða meðvituð um hana. Ef
þú ert eins og flestir hefurðu ekki hug-
mynd um hvernig rödd þín hljómar. Þú
tekur ekki eftir henni fyrr en eitthvað
kemur fyrir hana. Þegar þú ert kvefuð eða
nef- og ennisholur em stíflaðar er auðvelt
að heyra breytinguna á röddinni. Fyrir vik-
ið eykst meðvitund þín um hana í bili.
Þegar maður þroskar rödd sína verður
þessi meðvitund að haldast. Með þessari
meðvitund gefst tækifáeri til þess að þroska
með sér tilfinningu fyrir hljóði og finna
fyrir röddinni á algerlega nýjan og öðm-
vísi hátt. Þetta segir Jeffrey Jacobi okkur,
en hann er raddþjálfi í New York. Hér á
eftir koma æfingarnar hans.
ERFIÐAR RADDIR
Hér em nokkur algeng vandamál sem
konur hafa sérstaklega.
LÁGVÆR RÖDD OG LOFTKENND
Stjómandi í stóm fyrirtæki kvartaði
undan því að yfirmenn hennar af karlkyn-
inu tækju ekki mark á henni. Hún var álitin
góður starfskraftur en á fundum var lítið
hlustað á hana. Hún gerði sér grein fyrir
því að veikluleg röddin héldi aftur af
henni. Með því að styrkja röddina talar
hún nú af meira öryggi og tekst að halda
athygli annarra.
Samfélagið á að hluta sök á skortinum á
styrkleika og valdsmennsku í röddum
kvenna. Félagsleg skilyrðing hefur þjálfað
margar konur í kvenleika og feimnislegri
framkomu. Því miður heftir þetta af sjálfu
sér rödd konunnar og kemur í veg fyrir að
hún þroski með sér fullkomna raddgetu.
Afleiðingin er mjúk og loftkennd rödd.
Þótt sumum finnist þetta glæsilegt (t.d.
Marilyn Monroe rödd) er staðreyndin sú
að mikið loft í röddinni er veikleikamerki
og gefur í skyn að manneskjan sé veik-
geðja og auðveld bráð. Þessi tegund radd-
ar hindrar konur á nútímavinnustöðum.
NEFMÆLGI OG SKRÆKIR
Hvenær heyrðir þú síðast rödd sem
sargaði gegnum merg og bein? Fátt er
meira fráhrindandi en að sjá fallega konu
og heyra síðan hart og óþægilegt hljóð úr
munni hennar. Röddin eyðileggur ímynd
hennar undireins.
Nefmæltur eða skrækur tónn pirrar
þann sem hlustar og maður missir athygli
ÞJALFAÐU
í
26 VIKAN 16. TBL 1989