Vikan - 10.08.1989, Blaðsíða 39
ATVinnULEIT
slíkt árum saman. Þessi aðferð sparar mér
geysimikinn tíma.
Það er líka ákaflega gagnlegt að fara í
fylu. Karlar eru frábærir fylupokar. Það er
klassísk hernaðaraðferð vegna þess að hún
brýtur andstæðinginn smám saman niður.
Konur gefast upp, friða hann og róa hann.
Ég veit ekki hvers vegna það er.
Fréttastjóri á sjónvarpsstöð þar sem ég
vann — hún er kona — ákvað að einn þul-
anna væri til trafala. Hann leit vel út á
mynd en hann gat ekki lesið fyrir framan
myndavél. Hann var vissulega fluglæs en
um leið og hann settist fyrir firaman sjón-
varpsmyndavél fór hann í mola. Hann gat
ekki lesið orð af textanum. Jú, reyndar eitt
orð, en alls ekki tvö. Fréttastjórinn var að
verða vitlaus á þessu. Hún öskraði á hann,
reifst í honum, örvaði hann en ekkert
gekk. Að lokum bannaði hún honum að
lesa firéttirnar. Hún rak hann ekki heldur
sagði hún honum að hann fengi ekki að
lesa fréttir í sjónvarpi fyrr en hann væri
orðinn læs.
Hann fór í fylu. Hann færði skrifborðið
sitt að dyrunum á skrifstofunni hennar og
sat þar í fylu. Hann var frábær. Hann var
aumkunarvert hrúgald af særðri karl-
mennsku. Algjör Hamlet.
Hún þoldi við í tvær vikur og síðan gáfu
taugarnar sig. Vikuna á eftir sat hann fyrir
firaman myndavélina og hélt uppteknum
hætti: „Konu var bjargað úr húsbrunni af
reykháfum slökkviliðsins."
Tilfellið er að konur hafa ekki úthald í
þetta. Þær þola ekki smásálarlegu hliðina,
hinn endalausa skæruhernað. Þær eru
ómögulegar í að taka þátt í leiknum. Þær
sjá engan tilgang með honum. Og við karl-
arnir erum meistarasmásálir.
Einu sinni átti ég að taka upp viðtal við
Caspar Weinberger á NATO-fúndi og ég
var kallaður fram að öryggishliðinu. Fram-
leiðandi þáttarins, sem var kona, var þarna
komin með stjórnanda fréttaþáttarins, sem
var karlmaður, og sá neitaði að skrifa nafn
sitt á pappírinn sem hann þurfti til þess að
fá að koma inn á öryggissvæðið.
Hvers vegna var það? Vegna þess að
skrifstofubáknið hafði engan flokk sem hét
stjómandi og hafði flokkað hann undir
tæknimann. Það var til flokkur sem hét
framleiðandi, en konan var búin að skrifa
sitt nafn þar. Hann ætlaði sko ekki að skrifa
undir neitt sem flokkaði hann undir tækni-
menn. Hins vegar vildi öryggisvörðurinn
ekki hleypa honum inn ef hann skrifaði
ekki undir plaggið. Öryggisvörðurinn var
kona.
Við björguðum málinu að lokum.
Stjórnandi þáttarins fór inn sem framleið-
andi og framleiðandinn fór inn sem tækni-
maður. Ég er ekki alveg viss um hver vann
þessa lotu. Mig gmnar við nánari umhugs-
un að það hafi verið öryggisvörðurinn. □
í næstu Viku skoðum við aðferðir sem
konur hafa notað öldum saman til þess
að afla sér valda. Þær eru enn við lýði, en
gagnast þær eins á þessum tímum kven-
frelsis? Virka kvennaklækir enn?
Frh. af bls 35
inn gerir til verðandi starfsmanna eru að
þeir hafi stúdentspróf eða sambærilega
menntun. Þó er það ekki skilyrði og get-
ur góð starfsreynsla úr banka eða af skyld-
um sviðum komið í sama stað þó prófið
vanti. Að öllu jöfhu vegur starfereynsla
þungt.
Margt hefur breyst í bönkunum hin
seinni ár, tæknivæðing og beinlínuvinnsla
sem gerir meiri kröfur til þekkingar og
þjónustulundar gjaldkeranna. Þeir verða
að sýna viðskiptavininum meiri athygli og
eru eins og andlit bankans út á við. Ari seg-
ir að Landsbankinn hafi ekkert síður ráðið
konur sem snúið hafa afitur til starfa eftir
eitthvert hlé vegna heimilsaðstæðna en
yngra fólk. „Þessar konur eru mjög verð-
mætt vinnuafl. Þær koma aftur til starfa
með ákveðna þekkingu og reynslu og hafa
reynst okkur mjög vel.“ Á hinn bóginn tek-
ur Ari ffam að reynsluleysi þurfi alls ekki að
vera til baga. Það sé nauðsynlegt að „hlúa
vel að ungviðinu" og geti verið afar
ánægjulegt „að ala fólk upp til starfa innan
bankans." í slíkum tilfellum ganga málin
ákveðinn farveg. Bankamannaskólinn og
fræðslufulltrúi innan bankans sjá um að
kenna fólki og þjálfa. Auk þess hreyfast
nýliðar með skipulegum hætti milli deilda
og fá þannig yfirsýn yfir starfsemi bankans.
„Venjulega kemur fólk til tveggja við-
tala, fyrst í byrjun þegar það er ffemur að
spyrjast fýrir, og aftur síðar ef til greina
kemur að ráða það. í þessum viðtölum
reyni ég að kynnast umsækjendum, reyni
að fara dýpra í saumana eftir því sem á
líður. Það þarf ekki að taka fram að allt
sem á milli okkar fer er trúnaðarmál." Ari
segir að þeir þættir sem hann leiti fyrst að
sé aðlaðandi ffamkoma og vilji til að starfa
hjá bankanum. Hann nefhir að fólk komi
ákaflega misjafnlega fyrir í viðtölum og
sumir séu óneitanlega taugaóstyrkir í
byrjun. „Ég reyni hins vegar að koma
þannig ffam við fólk að það komist í jafh-
vægi og verði afslappað, oft með því að
byrja að tala um eitthvað allt annað. Atriði
eins og útlit og klæðaburður geta haft
áhrif, en það þarf ekki að vera afgerandi.“
Ari er inntur nánar eftir þessu, hvort það
virki til að mynda ffáhrindandi ef kona
mæti mjög áberandi klædd og mikið mál-
uð til viðtals. Hann vill ekki taka alveg
undir það og nefnir að konan mæti í sínu
fínasta púsi vegna þess að hún sé að reyna
að sannfæra hann sem starfemannastjóra
um að hún sé sú eina rétta í starfið. Málin
eru vegin og metin út frá öðrum þáttum
og oft er góðu fólki hreinlega bent á hvað
mætti fara betur. „Best er að fólk komi
eðlilega fram og sé sjálfú sér samkvæmt,
að hver og einn komi ffam eins og hann er
klæddur."
Telur Ari sig vera mannþekkjara?
,Já, ég tel mig hafa öðlast þá reynslu að
geta skyggnst örlítið inn í sálu hvers og
eins. Það hefúr vanist eða lærst með
tímanum. Það kemur býsna margt ffam í
fýrsta viðtali sem segir manni til um áfram-
haldið."
HREYFINGAR OG
SVIPBRIGDI
Þeir sem annast ráðningar hafa oft á tíð-
um tamið sér svipbrigðaleysi til þess að
turfla ekki umsækjandann og láta hann
ráða ferðinni í viðtalinu. Þetta getur stund-
um virkað óþægilegt því umsækjandinn
hefúr iitla hugmynd um hvaða áhrif hann
hefúr á spyrjandann. Takið því vel eftir
ýmis konar smáhreyflngum. Réttir spyrj-
andinn úr sér eða hallar sér fram og horflr
beint á þig? Þá er líklegt að þú hafir náð at-
hygli hans og komir vel fyrir. Ýmiss konar
fálm og gláp út í loftið gæti þýtt að hann sé
að missa áhugann. Reyndu þá að koma
með skynsamlega spurningu.
Hreyfingar umsækjandans skipta einnig
máli. Öruggt handtak, hvorki of laust né of
fast, virkar vel. Hallaðu þér eilítið ffam í
áttina að spyrjandahdum, horfðu beint
ffaman í hann og sparaðu ekki brosin um
of. Forðastu að krossleggja handleggina á
brjóstinu (varnarstaða) og fikta í andlitinu
á þér (þú hefúr einverju að leyna). Að
halla sér aftur í stólnum eða hreyfa við
hlutum á skrifborði spyrjandans sýnir of
mikið sjálfsöryggi og virkar neikvætt.
VANDRÆDI
Er ferillinn ekki alveg sléttur og felldur?
Er eitthvað sem gæti skemmt fýrir þér?
Sérfræðingar leggja eftirfarandi til ef...
■ ...þig skortir ákveðna þekkingu
sem nauðsynlegt er. Ef þú hefur ekki
unnið reglulega við ákveðið verk, en hefur
þó unnið það stöku sinnum, segðu þá að
þú „hafir komið nálægt því.“ Ef þú hefur
aldrei unnið við það sjálf, fylgst með öðr-
um og heyrt talað um það segðu þá að þú
„vitir hvað það er.“
■ ...göt eru í náms- og starfsferlinum.
Það gæti vakið grunsemdir. Best er að
segja hreinskilnislega frá ef þú hefur verið
frá vegna fjölskyldu, náms, dvalar erlendis
eða verið að hugsa málið. Gerðu sem mest
úr því að þú haftr lært mikið og þroskast af
þessu.
■ ...þú hefúr verið rekin úr starfi. Þú
skalt aldrei segja ósatt um það. Reyndu
frekar að útskýra málin ffá þínum bæjar-
dyrum án þess að sverta vinnuveitendur.
Nefndu missætti, ólík sjónarmið og að þú
hafir nú betri skilning á hvað henti þér
best og þess vegna viljir þú fá umrætt starf.
■ ...þú ert að skipta algjörlega um
starfssvið. Segðu frá því hvers vegna þig
langar að breyta til og gerðu sem mest úr
sveigjanleika þínum og hve létt þú eigir
með að setja þig inn í nýja hluti, sem er
þegar allt kemur til alls einn mikilvægasti
eiginleikinn í nútímanum.
■ ...þú hefúr oft skipt um vinnu.
Þetta gertur valdið örðugleikum. Reyndu
að útskýra hvernig á þessu stendur. Ástæð-
urnar geta verið þannig að þú hafir ekki
fengið við þær ráðið. Fullvissaðu verðandi
vinnuveitanda um að þú hugsir þér að
verða til ffambúðar í starfi.
16. TBL.1989 VIKAN 37