Vikan


Vikan - 10.08.1989, Page 59

Vikan - 10.08.1989, Page 59
Hrúturinn 21. mars - 19. apríl Eitthvað óvænt gerist í peningamálunum hjá þér svo þú getur farið að anda léttar og hætt að hafa stöðugar áhyggjur af krónunum, sem þú þarft að láta frá þér. Líklega verður þér boðið f skemmtilegt samkvæmi um helgina. Nautið 20. apríl - 20. maí Þig langar mikið til þess að breyta til um þessar mundir og vikan lofar góðu um að þér gefist tækifæri til þess. Tvíburarnir 21. maí - 21. júní Það þýðir ekki fyrir þig að leita á náðir annarra til að leysa vandamál þín, því þú verður að leysa þau ein(n) og upp á eigin spýtur. Krabbinn 22. júní - 22. júlf Einhver verður til þess að móðga þig að því er þér finnst, en láttu þér fátt um finnast því sá hinn sami á ekki mikið undir sér og viðhorf hans til þín geta á engan hátt skaðað þig. Eyddu kvöldunum við að sinna áhuga- málum þínum. Ljónið 23. júlí - 22. ágúst Þér hefur lengi fundist þörf á því að lagfæra svolítið nánasta umhverfi þitt og núna f vikunni ættirðu að hafa aðstöðu til að láta verða af því að gera nauðsynlegustu úrbætur. Laug- ardagurinn er líklega einn besti ferðadagur ársins hjá þér. Meyjan 23. ágúst - 22. sept. Það er engu líkara en hvert happið reki annað hjá þér f þessari viku og vonandi kanntu að gera þér mat úr því. En um leið verðurðu að gæta þess að aðrir líði ekki fyrir velgengni þína. Heillalitur er Ijósgrár. Vogin 23. sept. - 23. okt. Þú getur lagt merkilegu máli lið þitt á einkar skemmtileg- an hátt á mánudagskvöldið og þá skalt þú ekki setja þig úr færi að gera það. Einhverjar blikur eru á lofti á vinnustað, en þær hjaðna von bráðar. Sporðdrekinn 24. okt. - 21. nóv. Einhver úlfúð hefur risið milli þín og nágranna þinna og skaltu reyna að verða fyrri til að jafna ágreininginn, því að annars getur hann haft óbætanlegar af- leiðingar, bæði fyrir þig og ná- grannana. Bogmaðurinn 22. nóv. - 21. des. Þessi vika er einkar skemmtileg hjá þeim, sem fæddir eru milli tíunda og fimmtánda dags desembermánaðar og þeir eiga eftir að minnast þessara daga lengi. Hinir eiga líka skemmtilegar stundir í þessari viku. Steingeitin 22. des. - 19. janúar Nú leikur allt í lyndi hjá þér og leiðindin sem þú varðst að líða í stíðustu viku, eru algerlega rokin út i veður og vind. Reyndu að gera allt, sem þú getur til að viðhalda góða skapinu, því það er gulls ígildi. Vatnsberinn 20. janúar - 18. febrúar Nánir vinir þínir leita á náðir þínar og þá gefst þér tæki- færi til að reynast sannur vinur í raun. Þetta tækifæri skaltu ekki láta ganga þér úr greipum, því að vinir þínir munu launa þér hjálpina margfalt síðar. Fiskar 19. febrúar - 20. mars Nú virðist margt benda til þess að loks sé komið að því, að gamli draumurinn þinn rætist og þú getir veitt þér allar þær lysti- semdir sem þig er búið að dreyma svo lengi um. Gakktu samt hægt inn um gleðinnar dyr. 5TJÖRMU5PÁ 16.TBL 1989 VIKAN 57

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.