Vikan - 06.02.1992, Qupperneq 18
Við erum nú farin að velta fyrir okkur starfs-
aðferðum lögreglunnar og höldum því áfram.
Valdimar segir aðferðirnar mótast eftir þörfum
verkefnisins og það séu meðal annars breyt-
ingar á viðmóti almennings við lögreglu sem
eigi þátt í þróun vinnubragða. „Fyrir nokkuð
mörgum árum var til dæmis ekki farið inn á
heimili til að fjarlægja ölvaða menn án þess að
við þá þyrfti að slást. Það var bara tíska, menn
létu sér ekkert segjast og þá þýddi ekkert að
tala þá til. Síðan breyttist þetta með tímanum
en ég er ekki frá því að mér sýnist aftur stefna
í sama gamla farið og nú jafnvel af meiri hörku
en áður.“
DETT BAR’ Í’ÐA HÉR
Hann segir oft vera um sömu einstaklingana
að ræða í slíkum tilfellum og man til dæmis eft-
ir einum sem helgarvisst þurfti að taka kolvit-
lausan heima. Einu sinni kom hann skálmandi
á lögreglustöðina með nokkrar flöskur, skellti
þeim á borðið og sagði: „Það er best að ég
detti bara í það hérna. Þá þurfið þið ekki að
vera að sækja mig út í bæ!“ Valdimar vill þó
ekki meina að heimiliserjur séu stór hluti af
starfinu nema þá um helgar. „Helgarstörfin að
nóttu til helgast nánast af Bakkusi, þá gjarnan
í nágrenni við samkomuhús og síðan í heima-
húsum þegar fólk kemur af dansleikjum. Oft á
tíðum slettist þá upp á vinskapinn. Mér finnst
þetta koma í öldum eins og annað og sem
dæmi má nefna að þegar pöbbarnir spruttu
upp með bjórlíkið þá fjölgaði kærum vegna
ölvunaraksturs um þriðjung. Síðan var skrúfað
fyrir bjórlíkið og þá datt þetta niður í fyrra horf
en hefur verið að aukast jafnt og þétt síðan,"
segir Valdimar en segir slíkum kærum ekki
hafa fjölgað teljandi síðan alvörubjór kom til
skjalanna. Menn afsaki sig hins vegar oft með
því að segjast hafa drukkið bjór vegna þess að
það sé auðveldara en að segja viskí eða
eitthvað slíkt, þrátt fyrir að náttúrlega sé um
áfengi að ræða í báðum tilvikum.
RAMMIR AÐ AFLI
Aðrar kröfur eru gerðar nú en áður til manna
sem hyggjast hefja störf í lögreglu. Fyrr á tim-
um var það helsti kostur lögreglumannsins að
vera rammur aö afli, helst fjögurra manna
maki. Nú er meira lagt upp úr því að menn séu
með hausinn í lagi þó með þessum orðum
skuli alls ekki hallað á lögreglumenn fortíðar-
innar hvað gáfnafar varðar. Hjá því verður þó
ekki litið að mun minna var til dæmis um skóla-
göngu lögreglumanna fyrr á tímum.
Til eru margar skemmtilegar sögur af þess-
um heljarmennum sem oftar en ekki gátu tekið
ærlega til hendinni. Valdimar segir lögreglu-
embættið í Kópavogi vera það ungt að þar hafi
f gegnum tíðina ekki verið mikið um starfs-
menn sem Sigmund teiknar í Moggann. „Þetta
voru miklir persónuleikar sem maður man al-
mennt eftir í lögreglunni og þessir karlar, sem
voru ráðnir á stríðsárunum og voru enn við
störf þegar ég byrjaði, voru heljarmenni, ráðnir
sem slíkir til slíkra verka. Margir þeirra voru
mjög skemmtilegir karakterar og vissulega er
Lögregludagurinn er liöur í þyi að skapa jákvæð
tengsl lögreglu við borgara. Á þessum síðum
kemur m.a. fram að lögregla nútímans hittir varla
borgarann nema undir neikvæðum kringumstæð-
um.
Logreglan sinmr einnig björgunarstörfum og hefur t.d. aðgang að báti Hjálparsveitar skáta i
Kópavogi. Hér eru lögreglumenn á námskeiði í meðferð búnaðarins.
framferði. Ég man eftir svona hegðan unglinga
áður en fyrrgreindar skemmtanir voru teknar
upp og þær gjörbreyttu ástandinu."
Valdimar segir þennan þjóðfélagshóp hafa á
sínum tíma lagt undir sig skiptistöð strætis-
vagnanna í Kópavogi og þá hafi fullorönir jafn-
vel sneitt hjá henni þar sem þá hafi hún ekki
gegnt hlutverki sínu sem slík heldur verið sam-
komustaður hundruða unglinga. Hann segir
unglinga oft viðhafa þá aðferð að safnast sam-
an á einn stað til þess að egna lögregluna á
móti sér og slást við hana. Því sé lítið gert að
því að senda einkennisklædda lögreglumenn
inn í slíka hópa þar sem þá sétilgangi ungling-
anna náð.
„Mér finnst árangursríkara að fara með
óeinkennisklædda lögreglumenn í slík tilfelli
og reyna þannig að tala við unglingana í stað
þess að standa í átökum við þá. Það er von-
laust og ekki vinnubrögð sem viðhöfð eru nú til
dags.“
ÓEINKENND LÖGREGLA
Lögreglan vinnur fleiri störf sín óeinkennd.
Valdimar hefur litla tiltrú á slíku nema nauðsyn
beri til. „Það geta komið upp þau atvik að
nauðsynlegt reynist að menn séu óeinkennis-
klæddir og á ómerktum bílum. Við getum tekið
sem dæmi umferðargötu þar sem brotið hefur
verið ítrekað gegn stöðvunarskyldu, hraðatak-
markanir eða umferðarljós ekki virt án þess að
hin einkennda lögregla hafi náð að stemma
stigu við því. Þá getur haft skammtímaáhrif að
beita ómerktu eftirliti en að mínu viti þarf þá að
auglýsa það og menn viti að þeir geti átt von á
sl íku hvenær sem er - til að vegfarendur viti að
fylgst er með þeim. Síðan geta slík vinnubrögð
gagnast okkur þegar innbrotaalda gengur á
ákveðnum stöðum og auðveldað lögreglu að
komast í tæri við brotamenn. Að mínu viti á
samt lögreglan að vera mjög vel sýnileg og
merkt, í því felst það aðhald sem á að vera til
staðar og við eigum ekki að þurfa að vera að
fela neitt."
Eins og Valdimar nefndi geta komið upp þær
aðstæður að óeinkennd lögregla getur náð
góöum árangri í afmörkuöum verkefnum og
hér kemur skondin saga um slíkt tilvik. „Þá var
brotist inn í fyrirtæki hér í Kópavogi og stolið
peningakassa sem fannst síðan utan við bæ-
inn en þá var ekki búið að opna kassann. Mig
minnir að komið hafi [ fréttum kvöldið eftir að
svo og svo mikið fé hafi verið í þessum kassa,
sagt var að hann hefði fundist en ekki hvar. Ég
var settur við annan mann á vakt við staðinn í
ómerktum bíl og óeinkennisklæddir. Við vorum
rétt komnir á staðinn þegar þar þustu að einir
fjórir eða fimm menn og ég gekk að einum
þeirra, bankaði í öxlina á honum og spurði að
hverju hann væri að leita. Og svarið kom um
hæl: „Ha, ég? Peningakassa!" Án þess að
hugsa," segir Valdimar og greinilegt á fasi
hans að sögur eins og þessa þykir honum ekki
leiðinlegt að rifja upp. Hann bætir við að erfitt
hafi verið að hemja mennina þar til aðstoð
barst því lítt voru þeir víst sáttir við lögregluað-
stoð í leit að stolnum fjársjóði.