Vikan - 06.02.1992, Side 44
UMSJÓN: GUNNAR H. ÁRSÆLSSON LJÓSM.: KRISTJÁN LOGASON (RABBI)
LAUSN SÍÐUSTU GÁTU
RABBI:
ANDARTAK
EFNISMIKIÐ ANDARTAK
Rafn Jónsson, trommarinn
góöi frá ísafirði, hefur verið í
eldlínu dægurtónlistar hér-
lendis í fjölda ára og meðal
annars verið í hljómsveitunum
Ýr, Haukum, Galíleó, Bítla-
vinafélaginu, Sálinni hans
Jóns míns og Grafík, sem er
sennilega þekktasta og virt-
asta sveitin sem Rabbi hefur
komið við sögu í.
Trommuleik Rabba er best
lýst með orðinu einfaldleiki.
Það er ekki eins og það sé átt-
arma kolkrabbi á settinu held-
ur er það grunnrytmi popptón-
listarinnar sem ræður ríkjum.
Maður veit á hverju er von og
það eru jafnan traustir og vel
gerðir hlutir. Sú er raunin með
plötuna Andartak en á henni
koma margir kunningjar og
samstarfsmenn Rabba við
sögu, fólk úr hinum ýmsu
sveitum sem hann starfaði
með; Helgi Björnsson, Reynir
Guðmundsson, Sævar Sverr-
isson, Andrea Gylfadóttir og
fleiri.
Á Andartaki er að finna fyrir-
taks poppflugur sem flestar
eru eftir Rafn en titillagið er án
efa það þekktasta. Þó eru
mörg önnur lög góð, til dæmis
Orðin (sungið af Daníel úr
Nýdanskri) og Draumurinn
(kraftmikill rokkari) sem Helgi
Björnsson syngur og semur
einnig textann við. Nokkuö er
um tónlist án söngs á plötunni
og er lagið Æskuslóðir hlaðið
krafti, dulúð og spennu en út-
setningin er dálítið teygð. Þeg-
ar á heildina er litið er hér um
efnismikið og langt andartak
að ræða því eins og flestir vita
getur eitt andartak virkað eins
og heil eilífð.
STJÖRNUGJÖF: ★★★★
MAGNÚS ÞÓR
SIGMUNDSSON:
ÁLFAR
NÝR BELGUR, GAMALT VÍN
Með tilkomu geisladisksins
fóru alls konar endurúgáfur
að líta dagsins Ijós og hér er
eins slík; Álfarnir hans Magn-
úsar Þórs. Platan kom út árið
1979 og er sem sagt komin á
geisladisk. Eins og titill plöt-
unnar gefur til kynna er þema
plötunnar álfar og andlegir
hlutir. Hluti plötunnar er líka
óður til móður jarðar og það
eru textarnir sem best hafa
staðist tímans tönn.
Það sama má segja um
sumar lagasmíðar plötunnar
og á þetta aðallega við tvö
fyrstu lögin, titillagið Álfa og
Jörðina sem ég ann. Tónlistin
ber á stundum keim af þjóð-
lagarokki og framsæknu rokki,
þó það seinna sé minna áber-
andi. Frammistaða Magnúsar
einkennist af krafti og greini-
legt að hann á vel heima í tón-
list sem þessari. Fleiri söngv-
arar koma við sögu, svo sem
Jóhann Helgason og Ellen
Kristjánsdóttir.
Textalega séð hefur þessi
plata elst vel en tæknilega séð
er hún frumstæð, ef miðað er
við þær geysilegu tæknifram-
farir sem orðið hafa, en platan
var tekin upp í besta hljóðveri
landsins á þeim tíma, Hljóð-
rita. Hér er sem sagt gamalt
vín komið á nýjan belg og á
þangað fullt erindi.
STJÖRNUGJÖF: ★★★
ÚRVAL ÞESS BESTA
MEZZOFORTE:
FORTISSIMO
Sveinarnir í Mezzoforte hafa
haldið merki tónlistar sinnar
hátt á lofti á ferlinum og ekki
ofsagt að þeir hafi notið mikilla
vinsælda og átt það skilið því
þetta eru þrælgóðir tónlistar-
menn. Jafnframt er óhætt að
fullyrða aö tónlist sveitarinnar
hefur notið meiri vinsælda
utan landsteinanna og gert
það gott. Við munum öll Gar-
den Party dæmið.
Á disknum Fortissimo eru
fimmtán lög, þar af tvö ný.
Þrettán laganna eru af plötum
sem komið hafa út áður, flest
endurbætt á einn eða annan
hátt eða einfaldlega tekin upp
á nýtt, eins og lögin Midnight
Sun og Spring Fever. Diskur-
inn er alls um 75 mínútur að
lengd og gerast þeir ekki lengri
enda er ekki laust við að mað-
NÝJAR HLJÓMPLÖTUR
ur sé búinn að fá sinn skammt
af bræðingi þeirra Mezzoforte-
manna þegar diskurinn er
búinn.
STJÖRNUGJÖF: ★★★
MAGNÚS OG
JÓHANN:
DRAUMUR ALDA-
MÓTABARNSINS
í MÓTSÖGN VIÐ
TÍÐARANDANN
Þegar pönkbylgjan reis sem
hæst hérlendis, í byrjun ní-
+ + + + + + + + + + + + + + + + c;
+ 4 + + + V 0 LJ A :1 D I L K U R •T R
•+ + + + + I R I S +' A + G ó M + H A
+ + + + + L A F + I D K U N + H A M
+ + + + + H A T T + R A N G T + N 0
+ + + + + A R + A H ö L D + E N s
F J ó S + L E G E R K T F L ó N + T
+ A F M Æ L I + L E K + E T N + H +
+ F R A + U T A N V F I R F ö T E s
S N j ó + R I S A K ö N G U L ó I N
+ V 0 G U + + T + I L + 7 R + F L A
+ Æ + E L G + R Ý R + M N + S rp U Ð
+ G ó Ð L E G A R + H A + S V I M I
F I s + + L i K + H 0 R S K A R + +
+ S K R U G G A + E L S fT> A R + V A
+ L A + F j A N D I + + A U K N A
+ I L Ý S U R + U M G I R T U R G E
+ S ö L + S + E L s A + F A R + N N
+ T G j K K I R + K N 0 S A + L I N
+ 1 + R Y E L + R U n< T + U S A + I
+ N A + R I M L A R A M A R 0 + H L
F E G U R D + 0 L + S É R + G + E E
K R A N A + A G A + T R E G A R I G
+ + E N G I N N + L E I K U R + M A
G E R A N D I + B A 15 Ð U R L
V A N D R Æ Ð A L E G U rI + F A L T
ENYA:
SHEPHERD MOONS
ENGILLINN ENYA
Að hlusta á Shepherd Moons
er eins og að vera staddur í
Ijúfum draumi þar sem hvít-
klæddur engill að nafni Enya
svífur hægt og rólega um í
tóminu og syngur
Ijúflega. Hún veitir
hlustandanum
hugarró og af-
slöppun, nokkuð
sem fáum nútíma-
tónlistarmönnum
tekst eins vel og
henni. Enya er af-
bragðstónlistar-
kona - hún er lista-
maður.
Lagasmíðarnar
og útsetningar
bera þess greinleg
merki að Enya hef-
ur þroskast mikið síðan önnur
breiðskífan hennar, Water-
mark, kom út árið 1988. Lögin
eru ekki eins keimlík og á Wat-
ermark, annar blær yfir þeim
þó stíllinn sé í grunnatriðum
sá sami. Samstarf hennar og
upptökustjórans Nicks Ryan
hefur borið ríkulegan ávöxt
sem nýtur sín til fulls á geisla-
diskaforminu því rispur og
annar ófögnuður eru helsti
fjandi tónlistar sem þessarar.
Shepherd Moons er plata sem
hægt er að hlusta á aftur og
aftur.
STJÖRNUGJÖF: ★★★★
unda áratugarins, leit Draumur
aldamótabarnsins dagsins
Ijós. Þetta var árið 1982. Höf-
uðpaurarnir voru Magnús og
Jóhann en þeir voru um skeið
mjög áberandi í íslenskri dæg-
urtónlist, aðallega á áttunda
áratugnum.
Á Draumi aldamótabarnsins
er hið þekkta lag ísland er land
þitt í flutningi Pálma Gunnars-
sonar og einnig í nýrri útgáfu
anno 1991 sem Egill Ólafsson
syngur. Þetta er mjög fallegt
lag og það lag sem stendur
eins og klettur upp úr plötunni
sem inniheldur mestmegnis
frekar vandað en meðal-
mennskulegt popp. Margir
textarnir eru góðir en þá samdi
Margrét Jónsdóttir og er text-
inn við ballöðuna Nótt, sem er
góð sem slík, einfaldur, mynd-
rænn og hnitmiðaður.
Þessi plata hefur greinilega
verið í hrópandi mótsögn við
tíðarandann á þeim tima sem
hún kom út. Sjálfsagt hefur
tónlistin átt upp á pallborðið
hjá einhverjum fjölda fólks og
aðdáendur Draums aldamóta-
barnsins geta nú endurnýjað
gömlu, rispuðu vinylplötuna og
fengið sér geisladisk í staðinn.
STJÖRNUGJÖF: ★★
Mezzoforte i
upphafi
ferilsins -
ungir og
efnilegir.
Enya hefur
þroskast
síðan ’88
þegar önnur
breiðskífan
kom út.
44 VIKAN 3. TBL. 1992