Vikan - 16.04.1992, Page 22
TUND
Þegar Kvenfélag Reyk-
dæla fór í sína árlegu
skemmti- og kaupstað-
arferð á dögunum var mikið
um dýrðir þegar kom að leyni-
atriöi ferðarinnar. Skemmti-
nefndin hafði falast eftir
kennslustund í skotfimi hjá
Skotsambandi íslands og for-
maður þess, Þorsteinn Ás-
geirsson, tekið málaleitan
þeirri hið besta. Það voru
menn úr Skotfélagi Reykjavík-
ur sem aðstoðuðu dömurnar
við að munda rifflana en Skot-
félag Reykjavíkur er elsta
starfandi íþróttafélag landsins,
stofnað 1867.
Rúmlega fjörutíu konur tóku
þátt í undanúrslitakeppni og
síðan voru þær átta stiga-
hæstu beðnar að skjóta aftur.
Þegar þau úrslit lágu fyrir voru
þrír stigahæstu keppendurnir
beönir aö stiga fram og taka á
móti veglegum verðlaunapen-
ingum frá Skotsambandinu.
Þorsteinn Ásgeirsson hélt
stutta tölu í tilefni heimsóknar-
innar og taldi konurnar hafa
náð mjög góðum árangri. Þaö
má til sanns vegar færa, gull-
verðlaunahafinn var með 47
stig í fyrri umferð og 48 stig í
þeirri seinni, af 50 möguleg-
um. Bronsverðlaun hlaut Ást-
hildur Thorsteinsson, hús-
freyja að Hurðarbaki, Aldís
Eiríksdóttir, kennari við Klepp-
járnsreykjaskóla, fékk silfriö
og gullverðlaunin hreppti
Hulda Hauksdóttir íþrótta-
kennari. Eftir keppnina bauð
Skotsambandið gestum sín-
um veitingar og greinilegt var
að allir höföu haft hina bestu
skemmtun af þessu vel
heppnaða leyninúmeri.
TEXTI: ÞÓRDÍS BACHMANN / LJÓSM.: BRAGI P. JÓSEFSSON