Vikan


Vikan - 28.01.1993, Síða 14

Vikan - 28.01.1993, Síða 14
TEXTI: ANNA S. BJÖRNSDÓTTIR / UÓSM.: BRAGIÞÓR JÓSEFSSON VIÐTAL VIÐ MARCO G. MINCHEV ÁÉGAÐ PÚSSA MEIRA? þ- Neda vinnur myndir eftir gamalli búlgarskri og rúss- neskri hefö. ► Hún vinnur gjarnan íkona- myndir sem hún þrykkir af gullþynn- um á viö- inn þar sem þeim er ætlaö aö vera. ▼ Marco tók þátt í samsýn- ingu í Sandgeröi á dögunum í tengslum viö M- hátíö. Stundum hefur hann sést teikna myndir af fólki á götum úti eða í Kolaportinu. Hann hefur þetta óræða augnatillit listamanns- ins sem virðist sjá lengra en augað nemur. Hann kemur frá Sofiu, höf- uðborg Búlgaríu, hugði á myndlistarnám á íslandi en hér býr frænka hans ásamt fjölskyldu sinni. „Mér datt í hug að fara í myndlistarnám hér en listaskólarnir hérna pössuðu ekki nógu vel fyrir mig svo að það varð úr að ég tók að mér myndmennta- og smíðakennslu suður með sjó, bæði í Sandgerði og Vogum. Þetta er annað árið sem ég er hér og líkar mér bara vel. Það er gaman að kenna krökkunum, þeir eru skemmti- legir en stundum er hávaðinn of mikill fyrir mig og set ég þá upp eyrnaskjól, svona til að hvíla mig. Einnig er mikil á- reynsla að læra nýtt tungumál sem er ólíkt mínu, krakkarnir hjálpa mér en stundum tala ég ensku við fullorðna til að hvíla mig, nota hana eins og eyrnaskjólin. Þetta hefur gengið vel. í fyrravetur var ég kallaður „pússa meira“ því það var það fyrsta sem ég gat sagt og krakkarnir héldu sum að þetta væri nafnið mitt. Hljómar ekki sem verst.“ Marco brosir við að rifja þetta upp. Blaðamaður hefur frétt að nemendurnir, sem Marco kennir, séu mjög hændir að honum. Hann er einstaklega Ijúfur í framkomu og ef til vill finnst börnunum stafa ofurlitl- um ævintýrablæ af honum. „Ég er fæddur í Sofiu, bjó nokkur ár i Lýbíu sem barn en 14VIKAN 2. TBL. 1993

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.