Vikan - 28.01.1993, Page 40
TEXTI: KARL PÉTUR JÓNSSON / UÓSM.: BINNI
Hér fer fyrir fögrum flokki ísmeygilegra hispursmeyja sjálf sýrudrottningin eöa Acid Queen. Þaö er Valgerður Guönadóttir, 16 ára stórefni-
leg leik- og söngkona, sem fer meó hlutverk sýrudrottningarinnar.
ROKKÓPERAN
TOMMY
Á HÓTEL ÍSLAN
SÝNINGIN KOSTAR Á FJÓRÐU MILUÓN
Nemendur Verzlunar-
skólans gera það ekki
endasleppt. Fyrir
skemmstu sögðum við frá
söngkeppni sem haldin var í
skólanum en nú stíga hinir
listhneigðu nemendur skólans
fetinu framar og ætla að setja
upp heila rokkóperu á Hótel
íslandi. Það er hin frábæra
rokkópera hljómsveitarinnar
The Who, Tommy, sem boru-
brattir nemendur Verzló setja
upp. Kór Verzlunarskólans er
í aðalhlutverki í sýningunni en
þetta er í annað skipti sem
kór skólans setur upp þessa
ágætu rokkóperu. Fyrra skipt-
ið var árið 1972 en þá voru
fæstir þeirra sem nú vinna við
sýninguna fæddir. Stjórnandi
Verzlunarskólakórsins er Þor-
valdur B. Þorvaldsson úr Tod-
mobile en sú ágæta hljóm-
sveit leikur undir í sýningunni.
Þorvaldur útsetti einnig tón-
listina fyrir kórinn. Dans skipar
veigamikinn sess í sýningunni
en Ástrós Gunnarsdóttir
samdi dansa og leikstýrir sýn-
ingunni f samstarfi við nem-
endur. Alls vinna um hundrað
manns að sýningunni en und-
irbúningur hefur staðið frá því
síðastliðið vor. Það er allt lagt
undir til þess að áhorfendur
megi njóta skemmtilegrar sýn-
ingar og að því er blaðamaður
og Ijósmyndari gátu best séð
ætti það að takast.
Rokkóperan Tommy fjallar
4 Heyrn-
arlaus og
blindur
starir
Tommy út
í bláinn og
hallar sér
upp aö því
sem veitir
Iffi hans
fyllingu,
kúluspil-
inu. Hann
nær
undra-
veröu lagi
á aö spila
kúluspil
og veröur
heimsins
besti kúlu-
spilari
meö þeirri
frægö sem
því fylgir.