Vikan - 28.01.1993, Síða 58
JONA RUNA KVARAN SKRIFAR
INNSÆISNEISTAR
Hvers kyns framhleypni
veldur oftar en ekki ó-
notum í samskiptum
fólks. Viö sem finnum til þess
aö aðrir hafa gróflega gengið
yfir eölilegan rétt okkar í hin-
um ýmsu málum getum átt til
aö finna okkur knúin til aö
spyrna duglega á móti, auö-
vitað viö litlar vinsældir við-
komandi skells. Þaö er engin
ástæöa til aö kyngja kurteis-
lega hvers kyns tilefnislausum
þjösnahætti og láta eins og
þaö sé meira en sjálfsagt aö
láta yfirganga sig frekjulega.
Einstaka fólk hefur tamið
sér atferli sem er bæöi óbil-
gjarnt og framhleypið og
kemst upp með þaö. Þetta
gerist einmitt vegna þess að
þaö er töluvert erfitt að bregö-
ast viö óvæntri ófyrirleitni.
Þau okkar sem erum hrekk-
laus og í eðli okkar nærfærin
erum oftast meö ákaflega litl-
ar varnir í andlegu farteski
þegar aö okkur beinist til
dæmis ósvífni þess sem segir
og fullyrðir eitthvað sem okkur
þykir ranglátt og lítilsiglt og við
vitum aö á ekki viö nein rök
aö styðjast.
Hvaö nákvæmlega veldur
samúöarleysi þvf sem er eitt
megineinkenni þeirra sem eru
ófyrirleitnir skal ósagt látiö en
víst er að varla hentar sérlega
vel sá andlegi grófleiki sem
einkennir þá sem eru tillits-
lausir og þjösnalegir í sam-
skiptum viö aöra. Ófyrirleitni
getur til dæmis komiö fram
meö þeim hætti aö hug-
myndasnauðir og lítt skapandi
eigna sér blygðunarlaust verk
annarra og finnst sem þeir
séu að skapa meistaraverk þó
þeim í fátækt sinni takist tíma-
bundið að láta líta út sem þeir
hafi átt hugmynd þá sem þeir
af ósvífni setja mark sitt á.
Vissulega má segja aö
auðvelt sé aö taka þannig þaö
sem er annarra en auövitaö
veröur hægt aö uppræta slíkt,
því hugverk bera til dæmis
ætíð f eðli sínu kjarna höf-
unda sinna. Þótt þeim sé
smávegis snúið við og aðrir
eigni sér þau um tíma kemst
slíkt sem betur fer alltaf upp á
endanum og þá dugar lítiö fyr-
ir viðkomandi hugmyndaþjóf
að beita fyrir sig ósvífni sjálf-
um sér til varnar.
í umferöinni ber töluvert á
freklegum akstri þeirra sem
trúa því að þeir eigi göturnar
og þeim beri ekki aö ástunda
tillitsemi í umferðinni og fara
aö settum reglum. Þeir sem
eru ófyrirleitnir aö þessu leyti
fara bókstaflega freklega sínu
fram þangað til verðir laganna
komast I tæri viö þá. Þá er of
seint aö láta sig því þá eru
venjulega komnar einhverjar
afleiðingar af þjösnalegu akst-
urslagi þeirra.
í viðskiptum er töluvert um
alls kyns ósvífni. Það er óneít-
anlega viðkunnanlegra að
mæta kurteisi og stakri tillit-
semi í viðskiptum. Öll þjón-
usta, sem við þurfum aö nýta
okkur, veröur okkur ánægjuleg
ef við finnum á meöan hún er
rétt aö okkur aö sá sem veitir
hana er elskulegur og bless-
unarlega laus viö hvers kyns
framhleypni og óbilgirni.
Við skulum því venja okkur
á nærfærna framkomu hvert
viö annað, hvort sem er
heima eöa heiman. Látum aft-
ur á móti hvers kyns ósvífni
einfaldlega fjúka, eflum frekar
samskipti sem eru hefluö og
auðmjúk og hana nú. □
HÓTELSTJÓRI
Frh. af bls. 36
„Mér gengur, held ég, á-
gætlega aö halda utan um
þetta enda er góður andi
meðal starfsfólksins og við
hugsum öll um aö halda
þessu gangandi. Við vinnum
öll aö eflingu hótelsins. Hér er
ekki deilda- eða stéttaskipting
af sömu stæröargráðu og er
aö finna hjá stórum hótelum,
sérstaklega erlendis. Allir
veröa að geta gengið í allt
þannig aö allt gangi vel fyrir
sig.
Starf mitt er síðan ennfrem-
ur fólgið í starfsmannahaldi
og launaútreikningum, bók-
haldi, áætlanagerö og
skýrslugerð til stjórnar meö
öllu öðru sem daglegum
rekstri fylgir. Mér finnst líka aö
stjórnandinn eigi ekki aö vera
lokaöur inni á skrifstofu heldur
á hann aö geta séö rekstrar-
eininguna utan frá líka. Mjög
reglulegur vinnutími hentar
mér ekki, ég verð aö geta
hagað honum eins og mér
sýnist. Þaö gengur heldur
ekki annaö vegna þess að til
dæmis er aðalannatíminn milli
fimm og átta, þá koma gest-
irnir yfirleitt á hóteliö fyrst. Og
eiginlega má segja aö þetta
sé tuttugu og fjögurra tíma
starf, maður er alltaf aö hugsa
um vinnuna."
ERGILEG VIÐHORF
„Ég hef alltaf ætlaö mér aö ná
langt og ég get ekki svarað
því hvort Akureyri er einhver
endapunktur. í starfsframa er
ég mjög metnaðargjörn, mig
langar til aö feröast og ætla
mér þaö. Mig langar til aö
vinna erlendis en þaö er
möguleiki sem kannski kemur
eftir þrjú til fjögur ár. Þá er
jafnvel inni í myndinni aö læra
meira, ég er meðal annars
meö skóla í París í huga.
Hann er ætlaöur fólki sem
hefur menntun og starfs-
reynslu á þessu sviöi. Banda-
ríkin koma einnig til greina,"
segir hún og taliö berst aö á-
hugamálum og heimilishög-
um.
Sigrún gengur mikið um
„Mér
finnst
svolítið
leiöinlegt
að hugsa
til þess að
konur
þurfi alltaf
aö velja á
milli
frama
og fjöl-
skyldu."
Akureyri og næsta nágrenni,
auk þess sem hún sækir alla
tónleika sem haldnir eru og
þá einna helst þá klassísku.
Hún les líka mikið, bæöi fag-
bækur og skáldsögur, er í
bókaklúbbi sem hún og nokkr-
ar aðrar konur skipa þar sem
lestur þóka og umræður um
þær eru í hávegum haföar á
fundum og nú er hún byrjuð
aö leggja land undir göngu-
skíöi, svo eitthvað sé nefnt af
áhugamálum Sigrúnar og
tómstundaiðkun. Sem stendur
býr hún ein en það glampar
þó á einhverjar breytingar á
þeim vettvangi í augum henn-
ar þegar heimilishagir eru
ræddir.
„Enn sem komið er bý ég
ein,“ segir hún. „Kannski er
eitthvaö f deiglunni. En þetta
með fjölskyldulífið er eiginlega
vandamál okkar kvennanna,
eitthvað sem fylgir bara. Mér
finnst svolítið leiðinlegt aö
hugsa til þess aö konur þurfi
alltaf aö velja á milli frama og
fjölskyldu, frekar en karlar,
nema eiginmennirnir séu
þeim mun skilningsríkari. Ég
hef fundiö fyrir því aö oft er
það fyrsta sem kemur upp í
viðtölum fyrir starfsumsóknir
varöandi ráðagerðir um barn-
eignir. Mér finnst konur meira
aö segja koma fyrr meö þá
spurningu heldur en karlarnir.
Þaö er eins og konur á mín-
um aldri, tuttugu og fimm til
þrjátíu og eitthvað, séu ekki
gjaldgengar. Mér finnst þaö
ergilegt," segir Sigrún og þó
hana virðist langa til aö berja
borðið lætur hún það ógert.
En hvað sem verður þá er
hún á Akureyri, kann vel viö
sig og getur ekki hugsað sér
aö vera í neinu ööru starfi.
Hún er á réttri hillu. □
58 VIKAN 2. TBL. 1993