Vikan


Vikan - 28.01.1993, Side 65

Vikan - 28.01.1993, Side 65
▲ Átök í vændum í myndinni 1492: Conquest of Parad- ise. ◄ Leik- stjórinn Ridley Scott viö tökur á 1492: Conquest of Para- dise. sagt að hún sé léleg. Sagn- fræðilega séð er hún vel unn- in. Ekkert var til sparað enda kostaði myndin 40 milljónir Bandaríkjadala. Þrjú seglskip í fullri stærð voru til að mynda smíðuð. Bandarískum sýning- argestum þótti myndin ein- faldlega of löng (rúmlega tvær stundir) og svo fannst þeim líka vanta meiri spennu og hasar. Hvernig sem á því stendur hefur myndum sem vegnar illa í Bandaríkjunum gjarnan vegnað vel í Evrópu. Franski leikarinn Gerard Depardieu fer með hlutverk Kristófers Kólumbusar og gerir hlutverkinu góð skil að mati kvikmyndagagnrýnenda. Undirritaður getur óhikað mælt með myndinni. Umgjörð hennar er fögur, tónlistin, búningarnir, leikurinn, klipp- ingin og kvikmyndatakan. Til að leiða fólk rétt aðeins inn í söguþráðinn greinir myndin frá Ameríkufundi Kólumbus- ar. Hann skilur eftir lið í Am- eríku en hverfur sjálfur aftur til Spánar til að greina ísa- bellu og Ferdínand, konungs- hjónunum á Spáni, frá upp- götvun sinni. í millitíðinni fer setulið hans í mikla herleið- angra gegn frumbyggjum. Þegar Kólumbus snýr til baka kemur hann að höfuðkúpum, beinum og rotnandi líkum indíána. Indíánabúðirnar eru líka allar yfirgefnar. Þeirri hreinu paradís, sem hann fann árið 1492, hefur verið breytt í kirkjugarð. hinn ódauðlega myrkrahöfð- ingja, Drakúla. Á næstu 400 árum leitar hinn tannhvassi að lifandi eftirmynd konu sinnar. Sú leit ber árangur en hún er líka löng. Winona Ryder leikur kennslukonuna Minu Murray sem er mjög lík eiginkonu Drakúla. Drakúla ætlar að gera Minu ódauðlega. Myndin kostaði í kringum 50 milljónir Bandaríkjadala og var því hvergi til sparað að gera hana að ósvikinni hroll- vekju. Hún var öll tekin í Sony kvikmyndaverinu því leikstjór- anum þótti of kostnaðarsamt að kvikmynda í Evrópu. Á prufusýningu í fyrrasumar hefði þurft að láta áhorfendur fá ælupoka því sumum fannst myndin of hryllileg. Tæknibrellurnar í þessari mynd eru vel útfærðar og eig- um við eftir að sjá greifann í ýmsum gervum. Hann breytir sér meðal annars í gamlan mann, úlf, leðurblöku, rottu og brynjaðan stríðsmann. Ekki er nóg að flokka Bram Stokers Dracula sem sígilda hroll- vekju, þetta er líka Ijóðræn og fögur ástarsaga. Leikararnir hafa allir fengið lof og Gary Oldman er talinn líklegur til að hljóta óskarstil- nefningu. Þetta er kvikmynd sem unnendur góðra kvikmynda ættu ekki að láta framhjá sér fara. Myndin verð- ur, eins og áður sagði, sýnd í Stjörnubíói. Þess má að lokum geta að þetta er fyrsta hrollvekja sem Francis Ford Coppola gerir síðan 1963. Fyrsta hrollvekjan hans hét Dementia 13 og þótti blóðug, greindi frá geðveilum axar- morðingja á írlandi sem hjó fólk í herðar niður. DÝR MYND UM FUND AMERÍKU Á síðastliðnu ári var lítillega minnst á þrjár kvikmyndir um Ameríkufund Kristófers Kól- umbusar, grínmyndaútgáfu sem Áframgengið gerði, mynd Vanur maóur á ferö. Gerard Depardieu í öllu sínu veldi. Salkindsfeðga og loks útgáfu leikstjórans Ridley Scott: 1492: Conquest of Paradise með franska leikaranum Gér- ard Depardieu en hún verður sýnd fljótlega í SAM-bíóun- um. Síðastnefnda myndin þykir skást enda er Ridley Scott fagmaður og verk hans bregðast sjaldan. Því til sönn- unar nægir að nefna Blade Runner, Black Rain og Thelma & Louise. Samt sem áður gekk 1492: Conquest of Paradise ekki nógu vel í Bandaríkjunum en ekki er þar með 2.TBL. 1993 VIKAN 65

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.