Vikan - 25.02.1993, Qupperneq 4
o
k^FiTm
25. FEBRUAR 1993
4. TBL. 55. ÁRG.
VERÐ KR. 388
í áskrift kostar VIKAN kr. 310
eintakið ef greitt er með gíró en kr.
272 ef greitt er með VISA, EURO
eða SAMKORTI. Áskriftargjaldið er
innheimt fjórum sinnum á ári, sex
blöð í senn. Athygli skal vakin á því
að greiða má áskriftina með EURO,
VISA eða SAMKORTI og er það
raunar æskilegasti greiðslumátinn.
Tekið er á móti áskriftarbeiðnum í
sima 91-813122.
Útgefandi:
Samútgáfan Korpus hf.
Ritstjóri og ábyrgöarmaður:
Þórarinn Jón Magnússon
Ritstjórnart ulltrúi:
Hjalti Jón Sveinsson
Framkvæmdastjóri:
Jóhann Sveinsson
Markaðsstjóri:
Helgi Agnarsson
Innheimtu- og dreifingarstjóri:
Sigurður Fossan Þorleifsson
Framleiðslustjóri:
Sigurður Bjarnason
Sölustjóri:
Pétur Steinn Guðmundsson
Auglýsingastjóri:
Helga Benediktsdóttir
Aðsetur:
Ármúli 20-22, 108 Reykjavfk
Sími: 685020
Útlitsteikning:
Guðmundur Ragnar Steingrímsson
Ágústa Þórðardóttir og
Þórarinn Jón Magnússon
Setning, umbrot, litgreiningar
og filmuskeyting:
Samútgáfan Korpus hf.
Prentun og bókband:
Oddi hf.
Höfundar efnis í þessu tölublaði:
Þórdís Bachmann
Þórarinn Jón Magnússon
Jóhann Guðni Reynisson
Anna Hildur Hildibrandsdóttir
Hjalti Jón Sveinsson
Anna S. Björnsdóttir
Fríða Björnsdóttir
Sigtryggur Jónsson
Þorsteinn Eggertsson
Jónas Jónasson
Hallgerður Hádal
Gísli Ólafsson
Guðjón Baldvinsson
Jóna Rúna Kvaran
Lína Rut Karlsdóttir
Helga Möller
Gunnar H. Ársælsson
Þorsteinn Eriingsson
Christof Wehmeier
Svanur Valgeirsson
Myndir í þessu tölublaði:
Max Bradley
Magnús Hjörleifsson
Bragí Þ. Jósefsson
Friða Björnsdóttir
Rúnar Þór
Hjalti Jón Sveinsson
Jóhann Guðni Reynisson
Gústaf Guðmundsson
Þorsteinn Erlingsson
Binni o.m.fl.
Forsíðuna prýða þær
Ólöf Rún Skúladóttir fréttamaöur og Þórunn
Lárusdóttir frá Módel 79
(ungfrú Skandinavía 1993).
Hárgreiðsla: Erla Magnúsdóttir
í Hári og förðun, Faxafeni.
Förðun: Kristín Stefánsdóttir með Beverly Hills,
Gale Hayman.
Myndina af ólöfu Rún tók Bragi Þ. Jósefsson, en
•myndina af Þórunni tók Magnús Hjörleifsson.
WILD TIL SAMSTARFS VID
SAMÚTGÁFUNA KORPUS í
FORSÍÐUKEPPNINNI 1993
LEIT AÐ KEPPENDUM ER HAFIN
Nú er hafin leit að átta
stúlkum til þátttöku í
keppninni um titilinn
forsíðustúlka ársins 1993. Til
samstarfs við Samútgáfuna
Korpus er komin hin
nýstofnaða umboðsskrifstofa
Lindu Pétursdóttur, sem hún
nefnir Wild.
Ábendingum skal komið til
Samútgáfunnar eða Wild
ásamt mynd og upplýsingum
er greina frá aldri og hæð
viðkomandi. Skilyrði til
þátttöku í keppninni er að
stúlkan nái átján ára aldri á
árinu og sé um eða yfir 172
sentímetrar á hæð. Auk þess
má viðkomandi ekki vera á
samningi við önnur
sýningarsamtök, en sigur í
keppninni tryggir hins vegar
árssamning við Wild og fer
sigurvegarinn til myndatöku í
London og verður komið þar á
framfæri.
Kynning keppenda hefst á
prenti í maí og verður síðasti
keppandinn kynntur í
september. Úrslitakeppnin fer
svo fram á sviði í lok október
með miklum stæl að vanda.
Hingað til lands mun koma
þekktur, breskur Ijósmyndari,
Max Bradley að nafni, til að
mynda keppendurna fyrir
forsíðurnar. Til að gefa hug-
mynd um ágæti Ijós-
myndarans birtum við hér á
síðunni fáein sýnishorn af
verkum hans.
Allir munu keppendurnir fá
ókeypis aðgang að nám-
skeiðum Wild á þessu ári en á
námskeiðunum verða þeim er
hug hafa á að leggja fyrir sig
sýningarstörf veittar allar
nauðsynlegustu leiðbeiningar
þar að lútandi af bæði
innlendu og erlendu fagfólki.
Þó að skilyrði til þátttöku í
forsíðukeppninni í ár séu
lágmark átján ára aldur og
ákveðin hæð skal það skýrt
tekið fram að Wild leitar nú að
góðu fólki á öllum aldri og af
báðum kynjum til samstarfs
við sýningarsamtökin. Þrátt
fyrir að Wild hafi hafið
starfsemi sína fyrir aðeins
fáeinum vikum er þegar nóg
að gera og hefur Wild meðal
annars útvegað sýningarfólk
fyrir allmargar sýningar. □
4VIKAN 4.TBL. 1993
IEXTI: ÞÓRARINN JÓN MAGNÚSSON / UÓSM.: MAX BRADLEY