Vikan - 25.02.1993, Page 20
TEXTIOG UOSMHJALTIJON SVEINSSON
Fyrir skömmu lauk í Reykja-
vík fjölskyldunámskeiði
sem haldið var af Fjöl-
skyldufræðslunni en að baki
henni standa samtökin Ungt
fólki með hlutverk. Á undan-
förnum þremur árum hafa slík
námskeið verið haldin nokkrum
sinnum bæði í Reykjavík og úti
á landsbyggðinni og hafa nú
um þúsund manns tekið þátt í
þeim. Námskeið af þessu tagi
hafa verið haldin um öll Norður-
lönd á síðustu árum við miklar
vinsældir auk námskeiða um
einstök efni í tengslum við
hjónabandið og fjölskylduna,
eins og fyrirgefninguna, trúnað
og svo framvegis.
Norðmaðurinn Eyvind
Fröen hefur meðal annarra
kennt á öllum námskeiðunum
og hefur túlkun hans á náms-
efninu og viðhorf hans vakið
athygli þeirra sem hafa hlýtt á
hann. Hann var staddur hér á
landi á dögunum í örfáa daga
og náði blaðamaður Vikunnar
tali af honum kvöldið áður en
hann flaug heim til Noregs.
Eyvind var beðinn um að
segja undan og ofan af efni
námskeiðanna, þar sem um-
fjöllunarefni hans er hjóna-
bandið og fjölskyldan.
allt eins gengið út á svalirnar
hérna á sjöundu hæð og látið
okkur detta niður.
LÖGMÁL LÍFSINS
„Þegar við lærum að aka bíl
fáum við margra tíma kennslu
og þurfum síðan að taka próf
til þess að fá ökuréttindin.
Þegar við giftum okkur fáum
við ekki einu sinni kennslu í
fimm mínútur áður en stóra
stundin rennur upp. Það er
aftur á móti miklu einfaldara
að aka bíl heldur en að vera í
hjónabandi. Hér er um að
ræða svið sem erfitt getur ver-
ið að hafa vald á.
Eðlisfræðileg lögmál eru
margs konar í lífinu og tilver-
unni allt í kringum okkur og til
þess að geta tekið þátt í
henni verðum við
að kunna skil á
og hafa tilfinn-
ingu fyrir
þeim. Þar á
meðal er
þyngdarlög-
málið. Ef við
erum ekki
meðvituð
um það
gætum
Sama er að segja um lög-
mál þau sem gilda til dæmis í
viðskiptum. Ef við ætlum að
stunda viðskipti þurfum við
fyrst að læra þau til þess að
okkur farnist vel en förum
ekki á hausinn. Hins vegar
gilda margs konar lögmál í
mannlegum samskiptum án
þess að við gefum gaum að
þeim. Við göngum gjarnan í
hjónaband án þess að skilja
þær reglur sem þar gilda,
þegar þær eru brotnar getur
slíkt haft alvarlegar afleið-
ingar. Á námskeiðunum leit-
ast ég við að gefa þessum
hlutum nafn svo að fólk skilji
að ákveðin hegðun og
viðmót getur haft
nei-