Vikan - 25.02.1993, Page 22
hafa öörum hnöppum aö
hneppa og sækjast eftir
auknu samneyti við félaga
sína um leið og þau verja
meiri tíma í áhugamálin. Þörf-
in er engu aö síöur fyrir hendi.
Foreldrar veröa aö finna tíma
og leiðir til aö vera meö börn-
unum sinum á mismunandi
þroskaskeiöum."
VID NÁÐUM SAMBANDI
„Þegar sonur minn varö tíu
ára komst ég aö nokkru
merkilegu en um þær mundir
haföi samband mitt við hann
verið mjög takmarkaö. Mér
varð ijóst að ég yrði aö ráða
bót á þessu ástandi og auka
samveru okkar. En hvernig
ætti hún helst að vera? Ég
hélt mig hafa fengið góöa
hugmynd, sem var þess efnis
aö viö tækjnum okkur eitthvaö
sameiginlega fyrir hendur. Þá
hugsaði ég aftur: „Hvaö er
þaö sem mér þykir skemmti-
legt?“ Þá komst ég að þeirri
niðurstööu aö ég heföi á-
nægju af þvi aö veiða fisk,
fara í gönguferðir í skóginum
og svo framvegis. Ég keypti
því veiöistöng handa syni
mínum og tók hann því næst
meö mér í veiðtúr. Vandamál-
iö var bara eitt - hann hafði
engan áhuga á að veiða.
Þegar viö vorum aö búa
okkur í aöra eöa þriöju veiði-
feröina spuröi hann mig hvort
hann þyrfti endilega aö koma
meö. Ég horföi forviða á hann
og sagði: „Hvaö segirðu,
drengur? Ég sem hélt aö ég
væri aö gera þetta fyrir þig.“
Þá rann loksins upp fyrir mér
Ijós. Ég haföi nefnilega allan
tímann verið að gera það sem
ég haföi gaman af, án þess
aö spyrja hann hvort hann
heföi gaman af því líka, mér
fannst þaö bara svo sjálfsagt.
Ég lagði heilann í bleyti og
komst að þeirri niöurstööu aö
ég þyrfti aö gera þaö sem
honum þætti skemmtilegt,
ekki mér. Ég vissi aö hann
elskaði fótbolta og úr varð að
ég fór meö honum á fyrsta
leikinn - ekki vegna þess aö
ég heföi áhuga heldur af þeim
sökum aö mér þykir vænt um
son minn. Með því að fara
meö honum á fótboltaleiki,
sem var þaö skemmtilegasta
sem hann gerði, sýndi ég
honum aö ég vildi koma til
móts við hann. Ég skildi ekk-
ert í leiknum í fyrstu en eftir
aö viö höföum fariö í nokkur
skipti var mér líka fariö að
þykja gaman.
í eitt af fyrstu skiptunum
hafði ég ekki veriö meö hug-
ann viö það sem var að ger-
ast á vellinum heldur fólkið í
kringum mig, skýjafarið eða
fuglana. Allt í einu gerðist eitt-
hvað spennandi á vellinum og
sonur minn leit á mig til að at-
huga hvort ég hefði tekiö eftir
þessu líka. Hann sá aö ég var
úti á þekju og ég sá um leiö
vonbrigöin í svip hans. Þarna
uppliföi hann þaö sem svo
mörg börn þurfa aö gera þeg-
ar samband þeirra við foreldr-
ana er annars vegar, þó eink-
um við föðurinn, aö hann er
aðeins til staðar líkamlega -
hann er bara þarna. Barnið
hefur líka þörf fyrir andlegt
samband við hann og félags-
skap, samveru.
Þegar ég sá hvaö ég haföi
valdiö syni mínum miklum
vonbrigöum ákvaö ég aö taka
mig á. Ég læröi fótboltaregl-
urnar svo ég skildi betur þaö
sem fram fór á vellinum.
Nokkru síðar, þegar viö vor-
um horfa á spennandi leik, sá
hann aö ég var farinn aö
skemmta mér hiö besta. Um
miðjan fyrri hálfleikinn geröist
svolítið á vellinum og ég
sagöi: „Sástu hvað hann náöi
boltanum fallega af varnar-
manninum?'1 Sonur minn
haföi líka veitt þessu sérstaka
athygli. Viö litum hvor á ann-
an og ég sá hvaö andlit hans
Ijómaði þegar hann uppliföi
þaö aö ég haföi jafngaman af
þessu og hann. Viö höföum
náö sambandi.
Sonur minn hefði ekki tekið
mark á mér hefði ég einfald-
lega sagt viö hann að mér
þætti vænt um hann - ég varö
aö sýna þaö líka.“
AÐ ELSKA OG
VERA ELSKAÐUR
„Stærsta vandamálið í hjóna-
bandi er aö okkur er um megn
aö sýna hvert öðru ást og um-
hyggju en slíkt gerist á tveim-
ur sviðum.
Þú getur vitaö aö þú sért
elskaður af konu þinni. Hún
getur líka vitaö að þú elskir
hana. Málin horfa öðruvísi viö
þegar um er aö ræöa upp-
lifunina aö vera elskaöur. Þú
hittir nýgift hjón strax eftir at-
höfnina og spyrö frúna
tveggja spurninga á kirkju-
tröppunum: „Veistu hvort
maðurinn þinn elskar þig?“
„Aö sjálfsögöu," svarar hún.
„Viö vorum aö gifta okkur.“ Ef
ég spyr hana hvort hún finni
þaö, hvort hún upplifi þaö, þá
fær hún stjörnur í augun og
segir himinlifandi: „Já, svo
sannarlega." í þessu tilviki er
algjör samsvörun þarna á milli
- á því sem sagt er og hinu
sem er gert. Ef ég hitti þessa
sömu konu aö tveimur árum
liðnum svarar hún vafalítið
fyrri spurningunni játandi.
Þegar ég spyr hana hvort
henni finnist þessi ást vera á-
þreifanleg, hvort hún upplifi
sambandiö þannig, þá er hún
ekki alveg viss. Ef ég spyr
hana aftur að næstu tveimur
árum liðnum svarar hún
kannski báöum spurningunum
neitandi.
Þetta á ekki síður viö um
samband foreldra og barna.
Ég hef ekki tölu á öllum þeim
unglingum sem ég hef talað
viö. í starfi mínu hitti ég gjarn-
an fólk sem á viö einhvern fé-
lagslegan vanda aö stríða.
Samtöl viö unglinga koma oft
til minna kasta og þegar kom-
iö er aö sambandi þeirra við
foreldrana, hvort unglingarnir
haldi aö foreldrum þeirra þyki
vænt um þá, er viðkvæðið oft
aö svo sé ekki, foreldrarnir
hafi nákvæmlega engan á-
huga á þeim. Af lýsingunum
að dæma mætti halda aö for-
eldrarnir væru vondir og ó-
mögulegir í alla staöi - þeir
vanræktu börn sín gjörsam-
lega og hugsuðu aðeins um
sjálfa sig.
Eftir slík samtöl kalla ég
gjarnan á foreldrana líka til
þess aö heyra þeirra hlið á
málinu. í fjölmörgum tilvikum
veröa foreldrarnir mjög undr-
andi þegar ég segi þeim und-
an og ofan af afstööu barna
þeirra. Þeir segjast þá hafa
gert allt sem í þeirra valdi hafi
staðið til aö þóknast þeim og
koma til móts viö þau, þau
hafi ávallt fengiö allt sem þau
hafi beðið um - þeir elski börn
sín mjög mikiö. Gallinn er
bara sá að börnin finna ekki
þessa ást, þau upplifa hana
ekki vegna þess aö tjáskiptin
eru röng. Foreldrarnir sýna
börnum sínum ekki fram á aö
þeir elski þau og þyki vænt
um þau. Ég held aö þetta sé
ein skýringin á því hvers
vegna svo mörg börn af
svokölluðum góöum heimilum
fara út af sporinu og lenda í
einhverju misjöfnu. Ég hef
mörg dæmi um slíkt.
Þaö þýöir ekkert fyrir mig
sem foreldri að segja við
sautján ára dóttur mína aö
mér þyki vænt um hana - ef
ég sýni henni þaö ekki. Hún
trúir ekki orðum mínum ef ég
má ekki vera að því að ræöa
viö hana og sinna henni á
þann hátt sem hún þarf á aö
halda. Þaö þýöir heldur ekkert
fyrir mig sem fjölskylduráð-
gjafa að segja unglingi aö for-
eldrar hans elski hann og vilji
allt fyrir hann gera ef honum
finnst þeir ekki hafa sýnt hon-
um það. Þetta kemur foreldr-
um oft mjög á óvart, þeir verða
alveg gáttaðir: „Við sem gerum
allt fyrir börnin okkar.“ Barniö
veröur aö geta fundið þetta á
breytni foreldra sinna því aö
orðin duga skammt ef þeim er
ekki fylgt eftir á réttan hátt.
Á námskeiðunum reynum
viö aö kenna fólki aö sýna ást
og umhyggju, tjá hana á fleiri
vegu en meö orðunum einum.
Þaö er meö ólíkindum hvaö
aöstæöur innan fjölskyldu
geta breyst mikiö þegar fólk
er orðið meövitað um þetta.
Oft er hægt aö tala um bylt-
ingu, svo mikil veröur breyt-
ingin stundum til hins betra á
ótrúlega skömmum tíma.
í starfi mínu sem fjölskyldu-
ráögjafi hitti ég oft feður og
segi þeim aö sonurinn, dóttirin
eöa eiginkonan hafi kvartað
yfir ástleysi hans og afskipta-
leysi. „Þaö er skrítiö," segja
þeir gjarnan, „ég hef aldrei
heyrt aöra eins vitleysu, ég
sem hef keypt handa börnum
mínum og konu bókstaflega
allt sem unnt er að fá fyrir
peninga." Vandinn er sá að
fjölskylduna skortir þá hluti
sem ekki er hægt aö fá fyrir
peninga.“
TÍMINN OG VELFERÐIN
„Tíminn er mjög mikilvægt at-
riöi, án hans er hjónaband
vonlaust. Margir segjast ekki
hafa tíma fyrir hitt eöa þetta.
Staöreyndin er samt sú að
þaö er aðeins einn hlutur sem
allir menn hér á jörð hafa
fengið jafnmikið af í vöggugjöf
- tíminn. Það hefur nefnilega
enginn meira eöa minna en
tuttugu og fjóra tíma í sólar-
hringnum. Spurningin er því
um það til hvers við notum
tíma okkar. Tilhneiging okkar
er aö taka eitt fram yfir annaö
og setja hlutina í ákveöna for-
gangsröö eftir mikilvægi.
[ hinum vestræna heimi höf-
um viö lagt ofurkapp á verald-
lega hluti. Allt þaö sem snýst
um samveru, ástúð og hlýju
setjum viö mjög oft neðarlega
á þennan lista. Síöan leggjum
viö ofurkapp á að kaupa alls
konar hluti sem viö höfum svo
engan tíma til að nota og ef til
vill enga þörf fyrir heldur. Og
svo erum viö hissa á því aö
samband okkar viö makann
eöa börnin fari út um þúfur.
Einmitt á þessu sviöi sér
maður andstæðurnar meö
hinum vestræna heimi og
þriöja heiminum, þar sem fá-
tæktin getur verið ólýsanleg.
Fjölskylduböndin þar eru aftur
á móti sterkari en viö eigum
22VIKAN 4. TBL. 1993